Fréttablaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann
atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Það er frekar einföld ástæða, hún er bara sú að ég ætla ekki að eignast nein börn. Og þetta er einfaldasta leiðin til að koma í veg fyrir
barneignir,“ segir Tinna Haralds
dóttir, 27 ára barnlaus kona, spurð
út í af hverju hún ætli í ófrjósemis
aðgerð. Tinna hefur lengi vitað að
hana langar ekki að eignast börn og
síðar í þessum mánuði ætlar hún að
gangast undir ófrjósemisaðgerð.
„Önnur ástæða er líka sú að mig
langar ekki að vera á hormónagetn
aðarvörn lengur, það er mjög dýrt,
hefur aukaverkanir og ég fékk bara
nóg af því.“
Tinna birti nýverið bloggfærslu
á blogginu sínu þar sem hún sagði
frá áætlun sinni. Aðspurð hvernig
viðbrögð hún hafi fengið við blogg
færslunni segir hún: „Þau voru rosa
lega góð, miklu betri en ég átti von
á.“ Tinna viðurkennir að hún hafi
alveg eins búist við að fá neikvæð
viðbrögð vegna þess að í gegnum
tíðina hefur hún fengið misjöfn
viðbrögð frá fólki þegar hún hefur
greint frá því að hún ætli sér aldrei
að eignast börn.
„Ég hef alltaf fengið þetta: „þú
munt skipta um skoðun.“ Og fólk
sem er eldra en ég og á börn er alveg
visst um að ég muni sjá eftir þessu
á meðan yngra fólk hefur oftast
verið forvitið,“ segir Tinna sem er
viss um að tíðarandinn í tengslum
við barneignir sé að breytast smátt
og smátt. „Núna, með auknu umtali
um réttindi kvenna o.s.frv. þá er
þetta vonandi að breytast. Konur
hafa val og mega hafa þetta val.“
Glasafrjóvgun er möguleiki
Ófrjósemisaðgerðir kvenna er ekki
hægt að afturkalla en þær konur
sem hafa gengist undir ófrjósemis
aðgerðir eiga þó möguleika á að
eignast börn með því að fara í
glasafrjóvgun. Þegar Tinna komst
að því átti hún auðvelt með að
taka endanlega ákvörðun. „Ég vissi
þetta ekki áður en ég fór til læknis
í nóvember. Núna veit ég að glasa
frjóvgun er möguleiki og get sagt
fólki það, fólki sem efast um að
ég sé að taka rétta ákvörðun. Og
ég veit alveg að glasafrjóvgun er
kostnaðarsöm og allt það, en það er
líka dýrt að vera á getnaðarvörnum
í langan tíma,“ segir Tinna.
Tinna viðurkennir að læknarnir
sem hún hefur rætt við um aðgerð
ina virðist ekki vera mjög hrifnir af
því að ung og barnlaus kona sé að
fara í þessa aðgerð. „Þeir geta ekki
neitað konu sem vill fara í ófrjó
semisaðgerð um hana svo lengi
sem hún er orðin 25 ára, en mér
finnst eins og að ef þeir gætu sagt
nei þá myndu þeir gera það,“ segir
hún og hlær. „Ég fæ alveg á tilfinn
inguna hver þeirra skoðun er.“
Tinna kveðst vera spennt fyrir
að fara loksins í aðgerðina, eftir að
hafa leitt hugann að þessum mögu
leika lengi. „Ég er spennt, og sér
staklega eftir að hafa fengið þessi
góðu viðbrögð við bloggfærslunni
minni. Ég hlakka bara til að halda
áfram með lífið eftir þetta.“
Tinna bendir að lokum áhuga
sömum á að hún muni halda áfram
að fjalla um ferlið á blogginu sínu.
„Í næstu viku ætla ég að reyna að
birta bloggfærslu um samband
mitt við börn. Ég var nefnilega
mjög lengi hörð á því að ég þyldi
ekki börn. En ég held að það hafi
verið varnarviðbrögð hjá mér, að
geta sagst þola ekki börn og að það
væri ástæðan fyrir að ég vildi ekki
eignast börn. Enn er ég að læra að
mér má alveg líka vel við börn án
þess að vilja eignast þau sjálf. Svo
ætla ég að blogga um aðgerðina
sjálfa þegar ég er búin í henni.“ Þess
má geta að slóðin inn á blogg Tinnu
er www. tinnaharalds.wordpress.
com.
gudnyhronn@frettabladid.is
27 ára og barnlaus í
ófrjósemisaðgerð
Tinna Haraldsdóttir er 27 ára barnlaus kona. Eftir nokkra daga fer
hún í ófrjósemisaðgerð og ástæðan er einföld, hana langar ekki að
eignast börn. Hún kveðst hafa fengið nokkuð góð viðbrögð frá fólki
þegar hún greindi nýlega opinskátt frá ákvörðun sinni í bloggfærslu.
Áhugasamir geta fylgst með Tinnu í gegnum bloggið hennar, www. tinnaharalds.wordpress.com. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Enn Er ég að læra
að mér má alvEg
líka vEl við börn án þEss að
vilja EignasT þau sjálf.
1 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r34 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð
VERSLUN SALEWA LAUGAVEGI 91
SALEWA VERSLUN
ÍTALSKUR HÁGÆÐA FATNAÐUR
FYRIR DÖMUR OG HERRA
Salewa 9,9x390 útsala mbl.pdf 1 19/12/2017 13:26
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
9
-2
5
F
0
1
E
B
9
-2
4
B
4
1
E
B
9
-2
3
7
8
1
E
B
9
-2
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K