Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2018, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 12.01.2018, Qupperneq 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Máté Dalmay mate@365.is Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Það er frekar einföld ástæða, hún er bara sú að ég ætla ekki að eign­ast nein börn. Og þetta er einfaldasta leiðin til að koma í veg fyrir barneignir,“ segir Tinna Haralds­ dóttir, 27 ára barnlaus kona, spurð út í af hverju hún ætli í ófrjósemis­ aðgerð. Tinna hefur lengi vitað að hana langar ekki að eignast börn og síðar í þessum mánuði ætlar hún að gangast undir ófrjósemisaðgerð. „Önnur ástæða er líka sú að mig langar ekki að vera á hormónagetn­ aðarvörn lengur, það er mjög dýrt, hefur aukaverkanir og ég fékk bara nóg af því.“ Tinna birti nýverið bloggfærslu á blogginu sínu þar sem hún sagði frá áætlun sinni. Aðspurð hvernig viðbrögð hún hafi fengið við blogg­ færslunni segir hún: „Þau voru rosa­ lega góð, miklu betri en ég átti von á.“ Tinna viðurkennir að hún hafi alveg eins búist við að fá neikvæð viðbrögð vegna þess að í gegnum tíðina hefur hún fengið misjöfn viðbrögð frá fólki þegar hún hefur greint frá því að hún ætli sér aldrei að eignast börn. „Ég hef alltaf fengið þetta: „þú munt skipta um skoðun.“ Og fólk sem er eldra en ég og á börn er alveg visst um að ég muni sjá eftir þessu á meðan yngra fólk hefur oftast verið forvitið,“ segir Tinna sem er viss um að tíðarandinn í tengslum við barneignir sé að breytast smátt og smátt. „Núna, með auknu umtali um réttindi kvenna o.s.frv. þá er þetta vonandi að breytast. Konur hafa val og mega hafa þetta val.“ Glasafrjóvgun er möguleiki Ófrjósemisaðgerðir kvenna er ekki hægt að afturkalla en þær konur sem hafa gengist undir ófrjósemis­ aðgerðir eiga þó möguleika á að eignast börn með því að fara í glasafrjóvgun. Þegar Tinna komst að því átti hún auðvelt með að taka endanlega ákvörðun. „Ég vissi þetta ekki áður en ég fór til læknis í nóvember. Núna veit ég að glasa­ frjóvgun er möguleiki og get sagt fólki það, fólki sem efast um að ég sé að taka rétta ákvörðun. Og ég veit alveg að glasafrjóvgun er kostnaðarsöm og allt það, en það er líka dýrt að vera á getnaðarvörnum í langan tíma,“ segir Tinna. Tinna viðurkennir að læknarnir sem hún hefur rætt við um aðgerð­ ina virðist ekki vera mjög hrifnir af því að ung og barnlaus kona sé að fara í þessa aðgerð. „Þeir geta ekki neitað konu sem vill fara í ófrjó­ semisaðgerð um hana svo lengi sem hún er orðin 25 ára, en mér finnst eins og að ef þeir gætu sagt nei þá myndu þeir gera það,“ segir hún og hlær. „Ég fæ alveg á tilfinn­ inguna hver þeirra skoðun er.“ Tinna kveðst vera spennt fyrir að fara loksins í aðgerðina, eftir að hafa leitt hugann að þessum mögu­ leika lengi. „Ég er spennt, og sér­ staklega eftir að hafa fengið þessi góðu viðbrögð við bloggfærslunni minni. Ég hlakka bara til að halda áfram með lífið eftir þetta.“ Tinna bendir að lokum áhuga­ sömum á að hún muni halda áfram að fjalla um ferlið á blogginu sínu. „Í næstu viku ætla ég að reyna að birta bloggfærslu um samband mitt við börn. Ég var nefnilega mjög lengi hörð á því að ég þyldi ekki börn. En ég held að það hafi verið varnarviðbrögð hjá mér, að geta sagst þola ekki börn og að það væri ástæðan fyrir að ég vildi ekki eignast börn. Enn er ég að læra að mér má alveg líka vel við börn án þess að vilja eignast þau sjálf. Svo ætla ég að blogga um aðgerðina sjálfa þegar ég er búin í henni.“ Þess má geta að slóðin inn á blogg Tinnu er www. tinnaharalds.wordpress. com. gudnyhronn@frettabladid.is 27 ára og barnlaus í ófrjósemisaðgerð Tinna Haraldsdóttir er 27 ára barnlaus kona. Eftir nokkra daga fer hún í ófrjósemisaðgerð og ástæðan er einföld, hana langar ekki að eignast börn. Hún kveðst hafa fengið nokkuð góð viðbrögð frá fólki þegar hún greindi nýlega opinskátt frá ákvörðun sinni í bloggfærslu. Áhugasamir geta fylgst með Tinnu í gegnum bloggið hennar, www. tinnaharalds.wordpress.com. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Enn Er ég að læra að mér má alvEg líka vEl við börn án þEss að vilja EignasT þau sjálf. 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r34 l í F i ð ∙ F r É T T a B l a ð i ð VERSLUN SALEWA LAUGAVEGI 91 SALEWA VERSLUN ÍTALSKUR HÁGÆÐA FATNAÐUR FYRIR DÖMUR OG HERRA Salewa 9,9x390 útsala mbl.pdf 1 19/12/2017 13:26 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 9 -2 5 F 0 1 E B 9 -2 4 B 4 1 E B 9 -2 3 7 8 1 E B 9 -2 2 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.