Fréttablaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 36
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Lögfræðingurinn Þóra Jóns-dóttir lét gamlan draum rætast fyrir síðustu jól þegar hún gaf
út sitt fyrsta lag sem nefnist Orð
til þín. Þóra, sem er 43 ára gömul,
hefur frá barnsaldri tengst tónlist
með ýmsum hætti. Hún lærði á
píanó sem unglingur, söng í hljóm-
sveitum og sótti söngnám í tón-
listarskóla FÍH. Þegar hún stofnaði
fjölskyldu milli tvítugs og þrítugs
varð músíkin svolítið undir að
hennar sögn. „Upp úr aldamótum
héldum við Pétur Ben, náfrændi
minn, saman nokkra tónleika og ég
var svona að þreifa fyrir mér. Ég var
þó ekkert farin að leiða hugann að
því að semja músík á þessum árum.
Tónlistarþráin blundaði þó í
henni og lét sterklega á sér kræla
öðru hverju. „Veturinn 2006-2007
tók ég ársnám í „complete vocal“
tækni sem hefur síðan rutt sér til
rúms hér á landi og er mikið notuð
af söngfólki. Mér fannst frábært að
stunda þetta nám og ég lærði mjög
mikið en mig skorti trú á að ég ætti
erindi sem tónlistarkona.“
Þakklát tækifærunum
Hún tók því u-beygju í lífinu og
skráði sig í lögfræði sem hún klár-
aði árið 2013. „Í dag starfa ég sem
lögfræðingur hjá Barnaheillum. Ég
elska vinnuna mína og hef mikinn
áhuga á mannréttindamálum. Á
síðasta ári ákvað ég þó, að nú ég
gæti ekki lengur vanrækt tónlistar-
áhugann eins og ég hafði gert of
lengi og skráði mig á námskeið sem
kallað er Söngur og sjálfstraust. Nú
skyldi ég út með mig. Einnig ákvað
ég að taka píanótíma hjá Pálma
Sigurhjartarsyni sem ég kannaðist
aðeins við. Þessar ákvarðanir
leiddu mig á þann stað sem ég er
komin á núna.“
Hún finnur að nú er rétti tíminn
til að stíga fram sem tónlistarkona.
„Ég var ekki tilbúin fyrr því ég
setti fókusinn á annað af ýmsum
ástæðum. En nú hefur líf mitt
umpólast og það hverfist nánast
um tónlistina og það er dásamlegt
og magnað. Markmiðin mín eru
þau helst að semja og semja, halda
tónleika og gefa út músík. Og njóta
og hafa gaman af. Og slaka á og
fyrirgefa bullið í efasemdarödd-
unum. Svo ætla ég að vera þakklát
fyrir tækifærin sem koma. Það er
aldrei of seint að láta drauminn
rætast.“
Gott flæði
Þóra samdi textann við lagið Orð til
þín en Pálmi Sigurhjartarson samdi
lagið. „Hann hvatti mig áfram í að
taka mér pláss sem tónlistarkona, og
var að leiðbeina mér á píanóið og í
músík. Í kjölfarið fundum við þörf
og flöt á samstarfi sem við leyfðum
að verða til. Textinn við Orð til þín,
sem er óður til ástarinnar og mjög
persónulegur, fæddist í lok nóvem-
ber og lagið kom nær samstundis
þegar ég sendi hann til Pálma. Við
ákváðum mjög fljótt að taka lagið
upp og þegar því var lokið var engin
ástæða til að bíða með útgáfuna. Ég
var auðvitað orðin mjög tilbúin að
koma frá mér efni og óskaplega glöð
yfir þessari þróun.“
Þótt fyrsta lagið sé komið út seg-
ist Þóra rétt komin út úr skápnum
sem texta- og lagahöfundur. „En
nú er flæðið mjög gott og margt
að verða til. Textarnir mínir eru
tilfinningatengdir og persónulegir.
Ég leyfi mér að tala frá hjartanu.
Tónlistin mín er enn svo ný að það
er ekki hægt að merkja hana og
hún gæti þróast á alls kyns vegu.
Ég stefni á að gefa út fleiri lög á
þessu ári en við Pálmi erum byrjuð
að vinna nýtt efni. Við ætlum að
halda tónleika á skírdag þar sem
við munum flytja eigið efni ásamt
lögum eftir aðra.“
Nánari upplýsingar um Þóru og
tónlist hennar má finna á Facebook
(Thora Þóra) og á Spotify.
Rétti tíminn til að stíga fram
Lögfræðingurinn
Þóra Jónsdóttir
hafði vanrækt
tónlistaráhugann
of lengi. Hún gaf
út sitt fyrsta lag
fyrir jólin og segir
aldrei of seint að
láta drauminn
rætast.
Þóra Jónsdóttir, söngkona og lögfræðingur, og Pálmi Sigurhjartarson sömdu
saman lagið Orð til þín. Þau halda tónleika á skírdag. MYND/eYÞóR
6 KYNNINGARBLAÐ FóLK 1 2 . JA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
9
-5
7
5
0
1
E
B
9
-5
6
1
4
1
E
B
9
-5
4
D
8
1
E
B
9
-5
3
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K