Fréttablaðið - 12.01.2018, Side 36

Fréttablaðið - 12.01.2018, Side 36
Starri Freyr Jónsson starri@365.is Lögfræðingurinn Þóra Jóns-dóttir lét gamlan draum rætast fyrir síðustu jól þegar hún gaf út sitt fyrsta lag sem nefnist Orð til þín. Þóra, sem er 43 ára gömul, hefur frá barnsaldri tengst tónlist með ýmsum hætti. Hún lærði á píanó sem unglingur, söng í hljóm- sveitum og sótti söngnám í tón- listarskóla FÍH. Þegar hún stofnaði fjölskyldu milli tvítugs og þrítugs varð músíkin svolítið undir að hennar sögn. „Upp úr aldamótum héldum við Pétur Ben, náfrændi minn, saman nokkra tónleika og ég var svona að þreifa fyrir mér. Ég var þó ekkert farin að leiða hugann að því að semja músík á þessum árum. Tónlistarþráin blundaði þó í henni og lét sterklega á sér kræla öðru hverju. „Veturinn 2006-2007 tók ég ársnám í „complete vocal“ tækni sem hefur síðan rutt sér til rúms hér á landi og er mikið notuð af söngfólki. Mér fannst frábært að stunda þetta nám og ég lærði mjög mikið en mig skorti trú á að ég ætti erindi sem tónlistarkona.“ Þakklát tækifærunum Hún tók því u-beygju í lífinu og skráði sig í lögfræði sem hún klár- aði árið 2013. „Í dag starfa ég sem lögfræðingur hjá Barnaheillum. Ég elska vinnuna mína og hef mikinn áhuga á mannréttindamálum. Á síðasta ári ákvað ég þó, að nú ég gæti ekki lengur vanrækt tónlistar- áhugann eins og ég hafði gert of lengi og skráði mig á námskeið sem kallað er Söngur og sjálfstraust. Nú skyldi ég út með mig. Einnig ákvað ég að taka píanótíma hjá Pálma Sigurhjartarsyni sem ég kannaðist aðeins við. Þessar ákvarðanir leiddu mig á þann stað sem ég er komin á núna.“ Hún finnur að nú er rétti tíminn til að stíga fram sem tónlistarkona. „Ég var ekki tilbúin fyrr því ég setti fókusinn á annað af ýmsum ástæðum. En nú hefur líf mitt umpólast og það hverfist nánast um tónlistina og það er dásamlegt og magnað. Markmiðin mín eru þau helst að semja og semja, halda tónleika og gefa út músík. Og njóta og hafa gaman af. Og slaka á og fyrirgefa bullið í efasemdarödd- unum. Svo ætla ég að vera þakklát fyrir tækifærin sem koma. Það er aldrei of seint að láta drauminn rætast.“ Gott flæði Þóra samdi textann við lagið Orð til þín en Pálmi Sigurhjartarson samdi lagið. „Hann hvatti mig áfram í að taka mér pláss sem tónlistarkona, og var að leiðbeina mér á píanóið og í músík. Í kjölfarið fundum við þörf og flöt á samstarfi sem við leyfðum að verða til. Textinn við Orð til þín, sem er óður til ástarinnar og mjög persónulegur, fæddist í lok nóvem- ber og lagið kom nær samstundis þegar ég sendi hann til Pálma. Við ákváðum mjög fljótt að taka lagið upp og þegar því var lokið var engin ástæða til að bíða með útgáfuna. Ég var auðvitað orðin mjög tilbúin að koma frá mér efni og óskaplega glöð yfir þessari þróun.“ Þótt fyrsta lagið sé komið út seg- ist Þóra rétt komin út úr skápnum sem texta- og lagahöfundur. „En nú er flæðið mjög gott og margt að verða til. Textarnir mínir eru tilfinningatengdir og persónulegir. Ég leyfi mér að tala frá hjartanu. Tónlistin mín er enn svo ný að það er ekki hægt að merkja hana og hún gæti þróast á alls kyns vegu. Ég stefni á að gefa út fleiri lög á þessu ári en við Pálmi erum byrjuð að vinna nýtt efni. Við ætlum að halda tónleika á skírdag þar sem við munum flytja eigið efni ásamt lögum eftir aðra.“ Nánari upplýsingar um Þóru og tónlist hennar má finna á Facebook (Thora Þóra) og á Spotify. Rétti tíminn til að stíga fram Lögfræðingurinn Þóra Jónsdóttir hafði vanrækt tónlistaráhugann of lengi. Hún gaf út sitt fyrsta lag fyrir jólin og segir aldrei of seint að láta drauminn rætast. Þóra Jónsdóttir, söngkona og lögfræðingur, og Pálmi Sigurhjartarson sömdu saman lagið Orð til þín. Þau halda tónleika á skírdag. MYND/eYÞóR 6 KYNNINGARBLAÐ FóLK 1 2 . JA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 9 -5 7 5 0 1 E B 9 -5 6 1 4 1 E B 9 -5 4 D 8 1 E B 9 -5 3 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.