Fréttablaðið - 12.01.2018, Qupperneq 13
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Í sumar eru liðin tuttugu og eitt ár frá því að hið skammlífa ungmenna-tímarit Hamhleypa gerði mjög
óformlega könnun á þekkingu ungs
fólks á grundvallaratriðum í íslenskri
stjórnskipan. Rannsóknaraðferðin
var mjög óformleg og ber því að taka
áreiðanleika niðurstöðunnar með
gríðarlegum fyrirvara; enda voru
blaðamenn bæði ómenntaðir í vís-
indalegri aðferðafræði og óvandvirkir
í vinnubrögðum, sérstaklega þegar
þeir voru ölvaðir við störf sín en það
var ekki óalgengt.
Fjögur ungmenni voru valin af
algjöru handahófi um hánótt í miðbæ
Reykjavíkur og beðin um að útskýra
þrískiptingu ríkisvaldsins. Þetta gekk
misvel. Eftirminnilegast er svar ungs
manns sem þverneitaði að gefa upp
fullt nafn eða aldur, en kemur fram í
blaðinu undir nafninu Snúlli. „Ríkis-
valdið má fara til helvítis sama hvað
það skiptir sér í margar einingar,“ var
svar hans við spurningu næturinnar.
Þeir sem sáu Snúlla þessa nótt myndu
eflaust ekki láta það koma sér á óvart
að hann ætti sitthvað vantalað við
yfirvöld; þar sem hann arkaði leður-
klæddur með hanakamb um miðborg
Reykjavíkur í leit að vandræðum.
Einn viðmælandi Hamhleypu
hóstaði upp úr sér að rétta svarið væri
löggjafarvald, framkvæmdarvald og
dómsvald.
Það er þó þannig að þótt Snúlli hafi
hvorki sýnt áhuga eða vit á stjórnskip-
un landsins þá eru það einmitt menn
eins og hann sem eiga hvað mest undir
því að stjórnkerfið í landinu sé skipu-
lagt þannig að sem allra minnstar líkur
séu á því að ríkisvaldinu sé misbeitt.
Og þótt ótrúlegt megi virðast í ljósi
þeirrar umræðu sem yfirleitt fer hæst í
fjölmiðlum þá stendur venjulegu fólki
ekki mesta ógnin af spillingu kjörinna
stjórnmálamanna—heldur af því ef
kerfið hefur ekki taumhald á því valdi
sem ókjörnum embættismönnum er
falið.
Íslendingar þekkja þetta vel frá
fyrri öldum þar sem misvandaðir
embættismenn skipaðir af fjarlægu
yfirvaldi höfðu nánast ótakmörkuð
tækifæri til þess að beita valdi sínu
með rangindum eftir litlu öðru en
eigin geðþótta.
Ríkið og borgararnir
Fyrir Snúlla virðist sem þetta ríkisvald
sé allt einn og sami hrærigrauturinn;
og þannig var það líklegast fyrir tíma
lýðræðisins. Þeir sterku og valdamiklu
stóðu saman—hvort sem þeir beittu
valdi sínu til að setja reglur, framfylgja
reglum eða refsa fyrir brot á þeim.
Þegar fjölgaði í hópi þeirra velmegandi
og velmenntuðu á Vesturlöndum fór
það að verða óþolandi ástand að
gamlar höfðingjaættir og kóngaslekti
gætu beitt valdi sínu af geðþótta og án
eftirlits.
Upp úr þeim suðupotti þegar borg-
arar fóru að krefjast aukinna valda í
formi lýðræðis urðu til ýmsar kenning-
ar um hvernig heppilegast og réttlátast
væri að haga samskiptum ríkisvalds-
ins við einstaklingana. Sá skilningur
varð ofaná að allir einstaklingar ættu
rétt á vernd gagnvart ríkisvaldinu; og
þróuðust af því hin borgaralegu mann-
réttindi sem nú orðið eru álitin svo
sjálfsögð að fæstir nenna að verja þau
þegar að þeim er sótt.
Borgaralegum mannréttindum
er meðal annars ætlað að tryggja að
„helvítis“ ríkisvaldið geti ekki níðst á
mönnum eins og Snúlla, jafnvel þótt
hann sé ólíklegur til þess að eiga marga
vini meðal æðstu embættismanna—
og þótt hann kjósi sér lífsstíl sem ekki
fellur fullkomlega að því sem hinir sett-
Stjórnspeki Snúlla og Montesquieu
legu borgarar í valdastéttunum telja
eðlilegan.
En það þarf meira til en borgaraleg
mannréttindi í orði kveðnu til þess
að hafa taumhald á því mikla valdi
sem ríkið hefur yfir almennum borg-
urum. Þegar stjórnspekingar átjándu
aldar veltu fyrir sér hvernig best mætti
tryggja að almenningi stæði ekki
ógn af ríkisvaldinu þá datt þeim það
snjallræði í hug að greina á milli þeirra
valdastofnana sem setja lög, framfylgja
lögum og skera úr um lagalegan ágrein-
ing. Og þannig er það líka á Íslandi. Í
kennslubókum er þessi hugmynd
eignuð Frakkanum Montesquieu.
Sjálfdæmi dómara
En stjórnvitringar 18. aldar gerðu sér
einnig grein fyrir því að ganga þurfti
lengra til þess að tryggja réttindi
almennings. Það er mannlegur breysk-
leiki að spillast af völdum og til þess
að sporna við þeirri tilhneigingu eru
stjórnkerfi víðast hönnuð þannig að
þótt ólíkar valdaeiningar ríkisins hafi
sjálfstæði í störfum þá lúta þær einn-
ig eftirliti og njóta aðhalds frá hinum
valdaeiningunum. Þetta er ástæða
þess að hér á landi er löggjafarvaldið
(Alþingi) kosið af fólkinu, framkvæmd-
arvaldið (ráðherrar í ríkisstjórn) þarf
stuðning löggjafarvaldsins og dóm-
endur hafa verið skipaðir af ráðherrum
til þess að skera úr um álitamál og laga-
deilur, sem meðal annars geta beinst
gegn aðgerðum framkvæmdarvaldsins
og lagasetningu Alþingis.
Krafan sem nú virðist ríkjandi
meðal dómara—að sitjandi dóm-
arar hafi sjálfdæmi um það hverjum er
hleypt inn í þeirra raðir—gengur því
algjörlega í berhögg við það jafnvægi
sem ríkja þarf svo óhætt sé að treysta
breyskum mönnum fyrir því mikla
valdi sem felst í því að fara með einn
angann af „helvítis ríkisvaldinu“ sem
Snúlla var svo mjög í nöp við.
Tökum afstöðu...
Er ÞINN vinnustaður búinn að skrifa undir?
Íslensk lög og reglur kveða á um að einelti,
kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og
ofbeldi á vinnustöðum skuli ekki liðið.
Komi slíkt upp skal bregðast við því með
markvissum hætti.
Vinnueftirlitið, ríkið og aðilar vinumarkaðarins
hafa skrifað undir viljayfirlýsingu og hvetja alla
vinnustaði til þess að skrifa undir og efla forvarnir.
áreitni á vinnustöðum...
NEI TAKK!
Hægt er að skrifa undir viljayfirlýsinguna
rafrænt á vef Vinnueftirlitsins
vinnueftirlit.is
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö S T u d a g u R 1 2 . j a n ú a R 2 0 1 8
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
9
-2
A
E
0
1
E
B
9
-2
9
A
4
1
E
B
9
-2
8
6
8
1
E
B
9
-2
7
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K