Fréttablaðið - 12.01.2018, Síða 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Júlía Sif Liljudóttir heldur úti veganblogginu Veganistur.is ásamt systur sinni, Helgu Maríu Ragnarsdóttur. Þær hafa
þróað dýrindis vegan súkkulaðitertu í samstarfi við Fabrikkuna. MYND/EYÞÓR
VEGAN BARBÍKJÚ 120 g Oumph í dúnmjúku sesambrauði, hvítlauksristaðir sveppir, bræddur
vegan ostur, Boston kál, tómatar og barbíkjúsósa Fabrikkunnar.
VEGAN UNG-
FRÚ REYKJAVÍK
120 g Oumhp!
í dúnmjúku
sesambrauði,
sólþurrkað
tómatmauk,
mesquite sósa,
Boston kál, tóm-
atar, rauðlaukur
og vegan mæjó.
VEGAN SALATVEFJUR Þú vefur himnesku hráefni inn í salatblað og borðar
með fingrunum. Oumph!, gulrætur, paprika, gúrkur, wakame (japanskur
þari), íslenskt bankabygg og mangósalsa. Þrjár sósur til hliðar: sæt teriyaki
sósa, hnetusósa og Fabrikkudressing.
VEGAN NEYÐARLÍNA 120 g Oumph! í dúnmjúku sesambrauði, jalapenjóchili-
piparmauk, mesquite sósa, vegan ostur, Boston kál, tómatar, rauðlaukur og
vegan mæjó.
Að mínu mati er fullkominn vegan réttur svo góður að sá sem er ekki vegan geti hæg
lega elskað hann. Það var leiðarljós
okkar þegar að við hófum þróun
á veganvalkostunum okkar,“ segir
Jóhannes Ásbjörnsson, einn eig
enda Hamborgarafabrikkunnar.
Hamborgarafabrikkan er ham
borgarastaður allra landsmanna.
Frá opnun fyrsta staðarins á Höfða
torgi árið 2010 hefur nýjungagirni
og framþróun í matreiðslu fært
landsmönnum ótal fjölbreytta og
frumlega hamborgara, nú síðast
Vilborgarann, sem er indverskur
eðalhamborgari, tileinkaður Vil
borgu Örnu Gissurardóttur, pólfara
og ævintýrakonu. Undanfarin miss
eri hafa vinsældir vegan lífsstílsins
farið ört vaxandi og eigendur
Hamborgarafabrikkunnar ákváðu
að bregðast við þeirri þróun – og
vanda til verksins.
„Við tókum okkur góðan tíma í
þetta, fengum til okkar fólk sem er
mjög framarlega í vegan menn
ingunni og hefur mikinn metnað
fyrir því að fjölga veganvalkostum á
veitingastöðum. Ef þú ert vegan þá
viltu ekki þurfa að vera viðskipta
vinurinn með vesenið – og þess
vegna vildum við útbúa frábæra
100% vegan rétti sem vegan fólk
getur treyst.“
Oumph! var lykilinn
„Við höfum prófað alls kyns útgáfur
af grænmetisborgurum en við
höfum aldrei fallið fyrir neinum
þeirra. Það var ekki fyrr en við
kynntumst Oumph! hráefninu sem
við fundum réttu leiðina,“ segir Jói,
en Oumph er nýtt sojakjöt sem er
framleitt í Svíþjóð og kom á markað
árið 2015. Áferðin er keimlík kjúkl
ingakjöti og bragðið frábært.
Niðurstaðan varð sú að þrír af
vinsælustu borgurum Fabrikkunn
ar voru hannaðir í vegan útgáfu.
Um er að ræða Ungfrú Reykjavík,
Barbíkjú og Neyðarlínuna.
„Við völdum þessa hamborgara
af því okkur fannst þeir halda
karakter einkennum sínum best
þegar búið var að skipta út hrá
efnum sem ekki eru vegan fyrir
vegan hráefni. Þarna fá viðskipta
vinir okkar hamborgara sem halda
sinni upprunalegu bragðsamsetn
ingu þrátt fyrir að vera orðnir 100%
vegan,“ segir Jói.
Auk veganborgaranna er hægt að
fá hinar vinsælu salatvefjur í vegan
útgáfu, og einnig geta viðskipta
vinir sett saman sína eigin vegan
rétti með því að skipta út kjöti og
kjúklingi fyrir Oumph!.
Vegan súkkulaðikaka í sam-
starfi við Veganistur
Hamborgarafabrikkan hefur
átt í skemmtilegu samstarfi við
Veganisturnar og systurnar Helgu
Maríu Ragnarsdóttur og Júlíu Sif
Liljudóttur. Þær eru frumherjar í
vegan menningunni og halda úti
vefsíðunni Veganistur.is þar sem
nálgast má frábærar vegan upp
skriftir og ýmsan fróðleik tengdan
vegan lífsstílnum. Þessa dagana
stendur yfir þróun á nýrri vegan
súkkulaðiköku sem stendur til að
kynna á matseðli Hamborgara
fabrikkunnar von bráðar.
„Súkkulaðikakan, sem við systur
erum að þróa með Hamborgara
fabrikkunni, er ein af uppáhalds
uppskriftum okkar því hún er svo
einföld í bakstri og alveg einstak
lega ljúffeng. Kakan kom sjálfum
okkur stórkostlega á óvart þegar
við reyndum að finna út hvort hægt
væri að baka vegan súkkulaðitertu
sem stæðist samanburð við venju
lega, djúsí súkkulaðiköku. Þessi
dísæta dásemd virkar alltaf, hún
er að vísu engin hollustukaka og
engan grunar að hún sé vegan þegar
þeir smakka hana, sem okkur þykir
einkar ánægjulegt,“ segir Júlía Sif
um kökuna góðu sem samanstend
ur af hráefnum sem almennt eru
notuð í bakstur; hveiti, sykri, kakó
og matarsóda. „Það er sumsé ekkert
skrýtið í henni, eins og einhver gæti
haldið um vegan bakstur.“
Og Jói veit hvað hann syngur
þegar kemur að góðri súkkulaði
tertu.
„Þegar kemur að þróun súkkulaði
kökunnar er markmiðið það sama
og með hina vegan réttina. Hún á
að vera það góð að sú staðreynd
að hún sé vegan er í raun algjört
aukaatriði.“
Um Hamborgarafabrikkuna
Saga Hamborgarafabrikkunnar er
sú að stofnendur og hugmynda
smiðir staðarins, þeir Jóhannes
Ásbjörnsson og Sigmar Vilhjálms
son, Jói og Simmi, létu gamlan
draum rætast og opnuðu sinn eigin
veitingastað. Í miðri fjármálakreppu
fannst þeim vanta nýjan stað
þar sem gaman er að koma með
vinum sínum eða fjölskyldu. Þar
sem maturinn er frábær og borinn
fram af brosandi og skemmtilegu
fólki. Staður sem hefur sál og býður
upplifun til viðbótar við sjálfan
matinn. Hamborgarafabrikkan sló
rækilega í gegn hjá Íslendingum og
síðan þá hafa tveir staðir bæst við,
í Kringlunni og á Akureyri. Fjórða
Fabrikkan er svo á hjólum, en það er
Fabrikkugrillbíllinn sem er vinsæll
kostur í stærri veislur og hátíðir.
Fabrikkusmáborgararnir hafa slegið
í gegn sem fingramatur í veislum af
öllum stærðum og gerðum og hafa
einnig verið hluti af matseðli flug
véla Icelandair. Vörur Fabrikkunnar
eru einnig fáanlegar í verslunum
Krónunnar fyrir þá sem vilja fara út
að borða heima hjá sér.
Borðapantanir í síma 5757575 og á
www.fabrikkan.is.
Framhald af forsíðu ➛
Gerðu þinn
eigin vegan-
rétt
Skiptu út kjötinu
á hvaða borgara
sem er fyrir
Oumph! eða
hvítlauksgrill-
aðan portobello
svepp.
Vegan sósur
Fabrikk-
unnar
Vegan mæjó,
vegan chili
mæjó, barbíkjú-
sósa og tómat-
sósa.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . JA N ÚA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVEGANÚAR
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
B
9
-5
7
5
0
1
E
B
9
-5
6
1
4
1
E
B
9
-5
4
D
8
1
E
B
9
-5
3
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K