Fréttablaðið - 12.01.2018, Page 30
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Stuttan tíma tekur
að útbúa sitt eigið
hummus en galdurinn er
að smakka það vel til og
ná rétta bragðinu.
Petrea Ingileif Guð-
mundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Gló.
Hjá Gló hefur ávallt verið lögð mikil áhersla á ljúffenga grænmetis- og veganrétti og
er Gló leiðandi í þróun veganrétta
á Íslandi. Sem dæmi má nefna
að fimm vinsælustu réttir
okkar á Gló á Laugavegi eru
allir vegan,“ segir Petrea
Ingileif Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri Gló,
en staðurinn kynnir
nýjungar á matseðli.
„Nýverið tókum við
matseðilinn hjá okkur
alveg í gegn og hafa Solla
og hennar teymi lagt nótt
við dag við að setja saman
nýjar skálar, hverja
annarri betri. Nú þarf
viðskiptavinurinn
ekki lengur að hafa
fyrir því að ákveða
hvaða hráefnum hann vill blanda
saman. Sérfræðingarnir hafa séð
um það og búið til frábæra rétti
með næringargildi og bragð í
huga,“ segir Petrea.
Nýi matseðillinn er
kominn í gagnið á
þremur af fjórum
stöðum Gló, í Hæðar-
smára, á Laugavegi og
á Engjateig. Á næstu
vikum verður matseðli
Gló í Fákafeni einnig
breytt. Samfara þeim
breytingum ætlum við
að opna nýjan kaffi- og
morgunverðarbar þar sem
verslun Gló var áður.
Petrea segir vinsældir ólíkra
rétta hafa spilað inn í breyting-
arnar.
„Gló var bæði með „street food“
staði og matsölustaði með mis-
munandi rétti á à la carte seðli. Við
skoðuðum einfaldlega hvað það
er sem viðskiptavinir okkar vilja
og teljum okkur vera búin að setja
saman matseðil sem inniheldur
alla vinsælustu réttina okkar
ásamt nýjum skálum.
Á à la carte seðlinum má nefna
spínatlasagne og grænmetisborg-
ara sem dæmi um afar vinsæla
rétti og þeir eru báðir vegan.
Við erum með nokkrar vegan
skálar og svo er hægt að skipta
kjúklingi út fyrir oumph! í öðrum
skálum til að gera þær vegan.
Hrákökurnar okkar eru mjög
vinsælar og þær hafa verið vegan
frá byrjun. Nú bjóðum við upp
á frábært kaffitilboð þar sem
hægt er að fá sér kaffi og kökubita
á aðeins 590 krónur.
Djúsarnir á Gló eru einn-
ig allir vegan og mjög vinsælir.
Eftirspurnin eftir þeim hefur náð
nýjum hæðum nú á nýju ári.
Landinn er greinilega að djúsa sig
upp eftir jólin en djúsarnir okkar
eru frábær leið til að núllstilla sig
eftir óhóflegt át sem oft vill ein-
kenna desember,“ segir Petrea að
lokum.
Spennandi
nýjungar
hjá Gló
Veitingastaðurinn Gló hefur fyrir löngu fest
sig í sessi sem einn helsti grænmetis- og
vegan veitingastaður landsins. Nýir réttir á
matseðli kitla bragðlaukana.
15 %
afsláttur
af öllum vegan
réttum Gló út
janúar.
8 KYNNINGARBLAÐ 1 2 . jA N úA R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVeGANúAR
Hummus smakkast vel með pítubrauði og grænmeti.
Hummus hentar vel sem ídýfa með grænmeti eða pítu-brauði og er ekki síður gott
sem álegg á brauð. Það er ómiss-
andi hluti af miðausturlenskum
smárétta platta sem kallast meze og
samanstendur oftast af mismunandi
grænmetisréttum, hverjum öðrum
betri. Stuttan tíma tekur að útbúa
sitt eigið hummus en galdurinn er
Ljúffengt, heimalagað hummus
Hummus er ein-
staklega gott
kjúklingabauna-
mauk sem á ræt-
ur sínar að rekja til
Mið-Austurlanda
og er sneisafullt
af hollustu.
að smakka það vel til og ná þannig
fram því bragði sem hverjum og
einum líkar best. Hummus hentar
vel fyrir þá sem vilja bæta vegan
mat inn í matar æði sitt.
Hummus með
pítubrauði
700 g kjúklingabaunir, tilbúnar til
matreiðslu
140 ml ólífuolía
2-3 hvítlauksgeirar
1 msk. tahini
Safi úr 1 sítrónu, eða meira ef vill
Salt á hnífsoddi
Til skrauts
½ tsk. reykt paprika
½ tsk. sumac krydd (má sleppa)
2-3 msk. steinselja
40 g granatepli
Pítubrauð eða langskornar papr-
ikur, gulrætur, gúrkur eða sellerí
Setjið um 600 g af kjúklingabaun-
um, 120 ml af ólífuolíu, hvítlauk,
tahini og sítrónusafa í matvinnslu-
vél og maukið vel saman. Gott er
að blanda sítrónusafanum smátt
og smátt saman við og smakka til
svo hummusið verði ekki of súrt á
bragðið. Ef hummusið er of þykkt
má bæta smá vatni út í það.
Þerrið vel það sem eftir er af
kjúklingabaununum. Hitið það
sem eftir er af olíunni á pönnu við
meðalhita og ristið baunirnar þar
til þær hafa tekið lit, eða um 4 mín.
Stráið salti saman við baunirnar
að smekk. Setjið hummusið í
skál, bætið ristuðum baunum
saman við og skreytið með reyktri
papriku, sumac kryddi, steinselju
og fræjum úr grantaepli. Berið
fram með volgu pítubrauði. Einnig
er gott að borða hummusið með
grænmeti á borð við gulrætur,
gúrkur, paprikur eða sellerí. Fallegt
er að skera grænmetið langsum og
bera fram.
1
2
-0
1
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
B
9
-3
4
C
0
1
E
B
9
-3
3
8
4
1
E
B
9
-3
2
4
8
1
E
B
9
-3
1
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K