Fréttablaðið - 12.01.2018, Síða 46

Fréttablaðið - 12.01.2018, Síða 46
Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík (útgefandi), hefur birt viðauka við grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins, sem dagsett er 13. desember 2017. Viðaukinn sem er dagsettur 11. janúar 2018 hefur verið staðfestur af Fjármálaeftirlitinu. Viðaukinn er á íslensku og birtur með rafrænum hætti á vef Almenna leigufélagsins ehf., https://www.al.is/#!/investors. Fjárfestar geta einnig nálgast viðaukann og grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf., að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, í 12 mánuði frá dagsetningu grunnlýsingarinnar. Reykjavík, 12. janúar 2018. Almenna leigufélagið ehf. Birting viðauka við grunnlýsingu Hér erum við með þrjú hólf og tvo l i s t a m e n n f r á ólíkum tímum í hverju rými,“ segir Markús Þór Andr- ésson sýningarstjóri um leið og við stígum inn fyrir þröskuld austur- salarins á Kjarvalsstöðum.  Þar er verið að ljúka uppsetninu sýningar- innar Myrkraverk sem verður opnuð á morgun klukkan 16. Verkin spanna tímabilið frá 1933 til dagsins í dag, nýjasta verkið er í mótun því lista- konan Sigga Björg Sigurðardóttir er að leggja lokahönd á eitt af sínum merkilegu skrímslum, sem einnig dreifa úr sér á öðrum hliðarveggn- um.  Salnum deilir Sigga með Sigurði Ámundasyni sem er yngsti kandi- datinn á  sýningunni. Verk hans eru stór, súrrealísk og epísk. „Hér á tími, ferðalag og framvinda sér stað, draumórar – eða draugar á kreiki. Sigurður er allur í undirmeðvitund- inni og farinn að tala eins og gamall bóndi, kveðst orðinn berdreyminn og segir sum verkin hafa forspár- gildi,“ segir Markús Þór  glaðlega. „En hann er í nútímanum líka því sumum verkum hans má líkja við tölvuleikjaborð og heim sem þar birtist,“ bætir hann við. Við færum okkur yfir í næsta sal sem samtíðafólkið Jóhanna Boga- dóttir og Alfreð Flóki (1938–1987) Myrkraverk sem hreyfa við ímyndunaraflinu Verk sex listamanna sem hafa sótt innblástur í þjóðsögur eða skapað eigin huliðsheim eru á sýningunni Myrkraverk. Hún er önnur tveggja sem opnaðar verða á Kjarvalsstöðum á morgun. Hin er Líðandin – la durée. Myndlistarkonurnar Sigríður Björg Sigurðardóttir og Jóhanna Bogadóttir ásamt sýningarstjóranum Markúsi Þór Andréssyni. FréttABlAðið/VilhelM ein af dæmigerðum myndum Alfreðs Flóka. Grafíkmynd sem málað er ofan í. Verkið er eftir Kristin Pétursson og er úr stórri þjóðsagnaseríu sem hann vann úti í Danmörku. Mynd eftir Ástu Sigurðar sem upp- haflega var í einni af bókum hennar. vegna kalla ég seríuna Ísland-Afríka – einn heimur.  Þegar mér bauðst að taka þátt í þessari sýningu fór ég að hugsa, hvað eru myrkraverk? og ég legg áherslu á að þau eru ekki úr handanheimum heldur verk mann- anna sem eru á bak við stöðu mála.“ Kola- og pennateikningar Alfreðs Flóka eru úr safneign Listasafns Reykjavíkur, að sögn Markúsar Þórs. Hann leiðir mig fyrst að borði með verkum sem túlka áhugasvið Flóka á unglingsárum, þar eru biblían, Don Kíkóti, Dostojevskí og Íslendinga- sögurnar. „Ef einhver var á myrkum slóðum þá var það Alfreð Flóki. Stöð- ugt að grufla í breyskleika mannanna og alls kyns órum. Alltaf að ögra,“ segir Markús Þór og bendir á að svip- aðan tón megi finna í verkum Ástu Sigurðardóttur (1930-1971). „Ásta var í stöðugri  baráttu við brodd- borgarana og stuðaði fólk bæði sem manneskja og í list sinni,“ segir hann og við hröðum okkur í salinn sem geymir hennar verk, á stökum vegg á miðju gólfi. Þar eru meðal annars myndir sem fjölskylda hennar á og áður birtust sem dúkristur í bókum hennar en Jóhann Torfason, sérfræð- ingur í grafíklistum, hefur nú þrykkt á pappír. Markús Þór  vekur  líka  athygli á málverki sem enn er niðri við gólf, dálítið stuðandi og bendandi á yfir- sjónir okkar mannanna. „Síðan verðum við með skjá þar sem við flettum gegnum mannspilin sem hún teiknaði. Allt er þetta mikið fágæti,“ segir hann. Síðustu listaverkin sem við gefum gaum eru eftir Kristin Pétursson (1896–1981), öll í sömu stærð og mynda línu eftir öllum veggjum sal- arins. „Hér eru þessar fallegu ætingar. Kristinn var fyrstur Íslendinga til að tileinka sér það grafíkform,“ segir Markús Þór. „Grafíkmyndir sem hann svo málaði í fáránlegum litum, fór út fyrir rammana og gerði alls- konar skrítna hluti sem gerir mynd- irnar svo sláandi. Allt sama serían frá 1933 sem hann gerði úti í Danmörku, nýbúinn í námi.“ Ein mynd Kristins nefnist For- eldrar skoffíns og sýnir skott á kisu og ref. „Íslensku þjóðsagnaminnin eru hér í bland við hin alþjóðlegu,“ segir Markús Þór og bendir líka á nokkrar myndir neðarlega á vegg. „Við reynum að hengja þetta þann- ig upp að krakkar geti líka fengið að kafa ofan í myndirnar, þær hreyfa svo skemmtilega við ímyndunarafl- inu og okkur langar að þessi sýning sé fjölskylduvæn.“ skipta með sér. Svo vel hittist á að Jóhanna er mætt, Markús spyr hana hvernig henni lítist á og hún lætur vel af því. Elstu verkin hennar í miðju rýminu eru frá 1980-81, graf- ísk verk sem koma úr pælingum þess tíma, þegar fólk var að vakna til vitundar um umhverfismál og femínisma. „Allt tjáir ólgu í samfélag- inu og ofgnótt,“ bendir Markús Þór á. Hann fræðir mig um að á þessari öld hafi Jóhanna farið þrívegis til Afríku og segir nýrri verkin full af hugmynd- um þaðan. Hún tekur undir það. „Ég mætti Afríku eins og einhverju lang- þráðu sem ég hafði beðið eftir. Þess- Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1 2 . j a n ú a r 2 0 1 8 F Ö S T U D a G U r26 m e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð menning 1 2 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B 9 -3 E A 0 1 E B 9 -3 D 6 4 1 E B 9 -3 C 2 8 1 E B 9 -3 A E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.