Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Eggert Afplánun Úr Hegningarhúsinu. Dómsmálaráðuneytið birti fyrr í þessum mánuði yfirlit yfir brot þeirra 32 sem hlotið hafa uppreist æru. Fjórir þeirra sem hlutu upp- reist æru voru dæmdir til fangels- isvistar undir einu ári, 14 dómar voru eins til tveggja ára langir en aðrir lengri. Flestir voru dæmdir fyrir skjala- fals eða auðgunarbrot. Fíkniefna- eða ofbeldisbrot voru einnig nokkuð áberandi og hlutu samtals níu þeirra sem eru á listanum dóma fyrir slík brot eða íkveikjur, en tveir voru dæmdir fyrir það síðastnefnda. Þá hafa sex nauðgarar fengið uppreist æru og þrír morðingjar. Níðst á manni eftir afplánun „Sko, það er eitt að vera dæmdur án sannana, það er mjög alvarlegt og ég er ekki að hanga á því vegna þess að það hentar mér. Málið er að það er enn verið, þegar þú ert búinn að sitja af þér og búinn með allt saman, þá er enn verið að níðast á þér,“ seg- ir maðurinn sem nauðgaði stjúpdótt- ur sinni nær daglega frá því að hún var fimm ára þar til hún var tæplega 18 ára gömul. Í dóminum yfir mann- inum kemur fram að hann hafi neit- að allri sök. Hann er einn fjögurra barnaníðinga sem hlotið hafa upp- reist æru síðan 1995. Breytingar á reglum í vændum Sigríður Andersen dómsmála- ráðherra sagði að unnið væri að breytingu á lögum um uppreist æru. Fyrr í mánuðinum kynnti hún rík- isstjórninni vinnu við frumvarp í ráðuneytinu þar sem stefnt er að því að ekki verði lengur í boði að veita uppreist æru. „Þetta verður á þing- málaskránni í haust, fyrir áramót,“ sagði Sigríður. johann@mbl.is ash@mbl.is Þessir hafa fengið upp- reist æru  Þrír morðingjar og fjórir barnaníðingar 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 • Bindivír 1 mm U hankir og rúllur 1.4 mm • Fjarlægðarstjörnur og steinar 20-50 mm • Plastlistar á undirslegnar plötur, einnig harðir • U listar á ull eða plasteinangrun • Járnstólalengjur, sterkir og góðir stólar frá 50 mm • Mótarör og kónar 10–50 mm • Öryggishlífar á kambstál, listar og sveppir Járnabakkar Járnabindingavörur Erum með á lager allar helstu gerðir af járnabökkum Vír og lykkjur ehf www.viroglykkjur.is - viroglykkjur@internet.is 772-3200/692-8027 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við erum núna að ræða við verk- taka um mögulegar leiðir til að skera niður kostnað,“ segir Pétur Þór Jón- asson, framkvæmdastjóri Eyþings, sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Erfiðlega hefur gengið að reka almenningssamgöngur á svæðinu og nú er komið að þolmörkum, að mati Péturs Þórs. Eyþing rekur tvær strætóleiðir innan landshlutans sam- kvæmt samningi við Vegagerðina og leiðirnar milli Akureyrar og Egils- staða og Akureyrar og Reykjavíkur í samstarfi við aðra. „Þessi akstur hefur engan veg- inn staðið undir sér og upphafleg áætlun hefur ekki gengið eftir að nokkru leyti. Vegagerðin greiðir framlag til okkar og síðan erum við með samning við verktaka um ákveðinn akstur. Sá samningur var gerður á grundvelli upphaflegra áætlana sem ekki standast,“ segir Pétur Samningurinn hljóðar upp á ákveðið framlag frá Vegagerðinni en það ásamt tekjum af farþegum átti að standa undir rekstrinum. Það hefur ekki gengið eftir og mikið tap hefur verið af akstrinum frá upphafi. „Í samningnum höfðum við svigrúm til að skera niður í akstri um 25 prósent. Það er löngu búið að gera það en hefur ekki dugað til. Meiri niðurskurður en það getur skapað bótaskyldu gagnvart verk- taka og það er það sem við erum að ræða núna,“ segir Pétur. Til að halda akstrinum gang- andi hefur Vegagerðin lagt auka- fjármagn í reksturinn. „Vegagerðin hefur hlaupið undir bagga þannig að við lentum ekki í greiðsluþroti gagn- vart verktakanum . Nú eru þeir farnir að ókyrrast því þetta er ekki að ganga upp. Aksturskostnaður er að hækka og samdráttur hefur verið í notkun.“ Uppsafnað tap frá 2014 var 49 milljónir króna um síðustu áramót, að sögn Péturs. „Við höfum tilkynnt Vegagerðinni og ráðuneytinu um að- gerðir og bíðum svara. Við getum ekkert gert fyrr en við fáum svör.“ „Þessi akstur hefur engan veginn staðið undir sér“ Morgunblaðið/Ómar Akstur Rekstur strætisvagna hefur gengið erfiðlega hjá Eyþingi.  Uppsafnað tap 49 milljónir króna Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Til eru meðferðir til endurvaxtar á hári eftir hárlos, sem virka og hefur meðferð Harklinikken sýnt það, seg- ir dr. Panos Vasiloudes. Hann er læknir og hefur starfs- réttindi í bæði húð- og barnalækn- ingum auk þess að vera lækninga- forstjóri danska fyrirtækisins Harklinikken og mun flytja erindi í Heilsumiðstöðinni Ármúla 9 í dag. Erindi hans fjallar um endurvöxt á hári og hvort slíkt sé yfirhöfuð mögulegt. Er fyrirlesturinn hluti af fræðsludegi Heilsumiðstöðvarinnar í Ármúla samhliða því að nýtt fyrir- tæki, Harklinikken, er að hefja starf- semi á Íslandi. Fræðsludagurinn hefst klukkan 11:30. Unnið markvisst í yfir 20 ár „Lars Skjoth, stofnandi Har- klinikken, hefur unnið af kostgæfni í yfir 20 ár við að þróa meðferð við hárlosi, sem hann hefur svo fínpúss- að í gegnum árin,“ segir Vasiloudes í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. Vasiloudes komst í kynni við Lars eftir að hafa farið um Bandaríkin og Evrópu til þess að sækja vísindaráð- stefnur um hárlos. „Ég man að það var í marsmánuði árið 2008,“ segir Vasiloudes og heldur áfram, „ég eyddi þremur dögum á klíníkinni hans og hitti þar fólk með afar fjöl- breyttan bakgrunn og á ýmsum aldri. Eftir þrjá daga með Lars á klínikinni og eftir að hafa talað við sjúklingana hans, metið þá sjálfur og litið á myndir teknar fyrir og eftir meðhöndlun, áttaði ég mig á því að meðferðin, sem Harklinikken bauð upp á, hafði eitthvað mjög sérstakt til að bera.“ „Eftir að hafa fylgt Harklinikken í níu og hálft ár um allan heim og með- höndlað fólk, t.d. í Dúbaí, Los Angel- es, New York og Kaupmannahöfn, og borið saman ef fólk var t.d. með einhver ofnæmisviðbrögð, sýkingu í hári eða önnur vandamál, þá get ég sagt með fullri vissu að nánast allir þola þessa meðferð. Öryggi hennar er 100% og ég hef ekki séð neinar út- breiddar eða staðbundnar aukaverk- anir.“ Helstu innihaldsefni þeirra vara, sem notuð eru í meðferð Harklinikk- en, koma frá Evrópu. Efnin eru unn- in úr plöntum og er blandað saman við mjólk. Út því verður vökvi, sem nuddað er í hársvörðinn. Þessi vökvi er lagaður að þörfum hvers og eins enda er hársvörður fólks mismun- andi, t.d. getur hann verið þurr eða olíukenndur. „Það er ekki til ein lausn sem virkar fyrir alla,“ segir Vasiloudes. Konur í meirihluta Á hverju kvöldi er þessi vökvi bor- inn á þau svæði þar sem hárlos hefur gert vart við sig og hárið síðan þveg- ið með sjampói Harklinikken hvern morgun eftir áburð. Kostnaður við slíka meðferð er tæpir 90 dollarar á mánuði, eða því sem nemur tæplega 9.500 íslenskum krónum. Vasiloudes segir að meirihluti þeirra sem leita til Harklinikken í meðferð við hárlosi séu konur. Á það sérstaklega við konur, sem hafa farið í meðferð vegna veikinda, við tíða- hvörf eða vegna ýmiskonar horm- ónabreytinga. „Það tekur oft mikið á fyrir fólk að missa hárið vegna t.d. læknisfræðilegra eða erfðafræði- legra ástæðna.“ Vasiloudes sýnir blaðamanni myndir af fólki í meðferð. Meðal þeirra eru myndir af fólki við upphaf meðferðar og aðrar myndir sem sýna það að nokkrum mánuðum liðnum. „Fyrstu merki um árangur sjást eftir um þrjá mánuði og verulegur árangur sést eftir um níu mánuði,“ segir Vasi- loudes er blaðamaður spyr hann frek- ar úti í myndirnar af hármeðferðinni. „Meðferðin hefur breytt lífi fólks til hins betra,“ bætir hann við að lokum. Hefur þróað meðferð til að láta hár vaxa að nýju  Danska fyrirtækið Harklinikken hefur þróað meðferð við hárlosi í rúm 20 ár Morgunblaðið/Hanna Læknir Dr. Panos Vasiloudes er hér á landi til þess að flytja erindi um end- urvöxt á hári eftir hárlos. Hann segir endurvöxt á hári vera vel mögulegan. Fyrirtækið, Harklin- ikken, sem á íslensku gæti út- lagst „Hárklín- íkin“, er danskt að uppruna og er stofnað af Lars Skjoth. Hann gerði uppgötvun árið 1994 sem gerði honum kleift að þróa ár- angursríka meðferð við hár- missi. Síðan þá hafa yfir 120.000 einstaklingar fengið virka og árangursríka meðferð og nú rekur Harklinikken nú meðferðarmiðstöðvar víðs- vegar um heiminn, t.d. í Bandaríkjunum, Þýskalandi, og í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ísland bætist nú í hópinn en í dag hefst starfsemi Harklin- ikken í Heilsumiðstöðinni í Ár- múla. Ástæða þess að fyr- irtækið hefur starfsemi á Íslandi er meðal sá áhugi sem Lars Skjoth, stofnandi Harkl- inikken, hefur á landinu, þó markaðurinn hér sé óneit- anlega minni en í þeim lönd- um sem fyrirtækið starfar nú þegar í. Starfar víða um heim DANSKT FYRIRTÆKI Lars Skjoth

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.