Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 13
Ljósmynd/Kristín Heiða Blómalindin Gott er að sitja úti á palli þegar sólin skín. Pabbi Bogu ætlar að sjá um að klæða húsið að utan. á horni, til að sanna að hægt væri að starta þeim rekstri sem ég var með í huga. Þar var ég með súpu með hrá- efni beint úr héraði, sýningarsvæði fyrir list og handverk og bauð gest- um að þvo þvott og þurrka í þvotta- vélinni. Þar var ég út árið 2015 en þá pakkaði ég saman og fór aftur í blómasöluskúrinn minn, en núna hef ég stækkað og breytt. Ég keypti tvær gámaeiningar til að bæta við plássið og sótti þær alla leið í Köldu- kinn í Holta og Landsveit,“ segir Boga sem fékk pabba sinn til að hjálpa sér í framkvæmdunum. „Karl faðir minn er húsasmíða- meistari og hann hefur verið á fullu hérna hjá mér, þetta var alveg hrátt og margt sem þurfti að laga, til dæmis þurfti að hækka þakið. Þetta hefur verið linnulaus vinna í þrjá mánuði og ég einangraði þetta allt sjálf, bæði veggi og gólf, svo ég geti haft þetta opið í vetur, við notuðum til þess efnið sem við fengum úr milliveggjunum sem við tókum nið- ur.“ Pabbi sleppti mér ekki lausri hér innandyra í framkvæmdir Í Blómalindinni er einstaklega notalegt andrúmsloft, þar eru gamlir hlutir og endurnýting í hávegum höfð. Gamalt vagnhjól ber með sér anda liðins tíma, en það kemur frá föðurömmu og afa hennar, Þóri og Þóreyju. „Gömlu mjólkurbrúsana, balana og hjólkoppana sem eru hér fyrir utan, hef ég ýmist fundið sjálf eða fólk gaukað þeim að mér. Striga- pokarnir sem ég nota í stað borð- dúka koma utan af kaffibaunum frá Kaffi tári. Flest hér inni er eitthvað sem aðrir hafa ætlað að henda. Borð- in og stólarnir eru til dæmis frá Dalakoti, þeir áttu að fara í ruslið þar. Stóru stoðirnar hér inni eru úr gamalli hlöðu í Knarrarhöfn sem var hrunin, og bárujárnið framan á af- greiðsluborðinu og í loftinu er stór- merkilegt, þetta er fyrsta járnið sem fór á Hvammskirkju hér inni í Döl- um. Þetta er því háheilagt og kross- vígt bárujárn. Faðir kærastans míns hafði hirt þetta járn á sínum tíma og bunkað það upp í geymslu. Þetta var blýþungt og erfitt að koma þessu upp,“ segir Boga og bætir við að þeg- ar hún hafi ætlað að sjá sjálf um grófsmíðina inni í Blómalindinni hafi pabba hennar ekkert litist á blikuna. „Enda er hann mikill milli- metramaður. Hann sagðist ekki sleppa mér lausri hér innandyra í framkvæmdir, svo hann sá um allt hér innanstokks en reyndi að upp- fylla óskir mínar og ég var handlang- ari hjá honum,“ segir Boga og bætir við að pabbi hennar ætli líka að sjá um að setja utanhúsklæðningu á Blómalindina, enda er það vanda- verk og til stendur að ljúka því verki í haust. Bogu er margt til lista lagt, hún starfar yfir vetrartímann sem fé- lagsliði og á líka nokkrar kindur, á bænum Hvammi í Hvammssveit þar sem kærastinn hennar er með þá jörð á leigu eftir foreldra sína. Facebook: Blómalindin kaffi- hornið. Ljósmynd/Kristín Heiða Endurnýting Strigapokar utan af kaffibaunum eru í stað borðdúka. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Kryddin frá okkur eru ómissandi í matreiðsluna hjá ykkur POTTAGALDRAR VIÐ GRILLIÐ Í ALLT SUMAR Fjölmargt skemmtilegt er um að vera á Akureyrarvöku sem er nú um helgina í höfuðstað Norðurlands. Eitt af því sem vert er að vekja athygli á er listasýning sem heitir Fólkið í bænum sem ég bý í. Í tilkynn- ingu kemur fram að þetta sé óvenjuleg og spennandi lista- sýning sem samanstandi af átta listrænum ör-heimildar- myndum, en í hverri mynd verður sjónum beint að einum einstaklingi í bænum (Akur- eyri). Einstaklingarnir átta eru fjórar konur og fjórir karlar, á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn, en sameiginlegi flöturinn er búseta þeirra á Akureyri. Jafnframt verða munir úr eigu þeirra og fleira til sýnis ásamt ljósmyndum eftir Daníel Starrason. Sýningin var opnuð í gær en verður opin alla helgina á Ráðhústorgi 7, gengið er inn um rauðar dyr. Örheimildarmyndir á Akureyrarvöku Myndir Í hverri heimildarmynd verður sjónum beint að einum einstaklingi sem býr á Akureyri. 4 karlar og 4 konur á ólíkum aldri með ólíkan bakgrunn Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er manna fróðastur um höfuðstaðinn okkar en hann hefur í sumar gengið með þeim sem áhuga hafa tvisvar í mánuði um hafnarsvæði Reykjavíkur. Tilefnið er að í haust, 16. nóvember verða liðin 100 ár frá því að Gamla höfnin í Reykjavík var tekin formlega í notkun. Í tilefni af þessum merka áfanga hafa Faxaflóahafnir sf. boðið almenningi upp á þessar gönguferðir um hafnarsvæðið undir leiðsögn Guðjóns. Síðasta gangan verður á morgun, sunnudag 27. ágúst, kl. 14.00-15.30, og um að gera fyrir þá sem vilja njóta frásagnarlistar Guð- jóns og fróðleiks að skella sér. Gönguferðin byrjar við myndasýn- inguna á Miðbakka, síðan er haldið í vesturátt og endað úti á Granda. Endilega … Morgunblaðið/Ómar Við höfnina Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er fróður maður. … gangið með Guðjóni um Reykjavíkurhöfn á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.