Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 18

Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 18
18 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Fyrirbyggir exem • Betri og sterkari fætur ÚR BÆJARLÍFINU Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Ljósanótt, bæjarhátíð Reykjanes- bæinga, hefst í næstu viku. Hátíðin hefur teygt anga sína fram fyrir setningarathöfn og því hefur mið- vikudagurinn verið tekinn formlega inn í dagskrá. Þá fer ljósanætur- hlaup líkamsræktarstöðvarinnar Lífsstíls fram, tónlistarsýningin Með soul í auga verður frumsýnd og verslanir hafa opið um kvöldið.    Sjálf setningin verður á fimmtudagsmorgun, 31. ágúst, með þátttöku allra grunnskólabarna í Reykjanesbæ og elstu leikskóla- barna. Það verður Ingó veðurguð sem syngur inn hátíðina með aðstoð barnanna. Síðan verður stóri ljósa- næturfáninn dreginn að húni, en hann stækkar á hverju ári þar til allir skólar hafa fengið sitt einkenni á fánann.    Það sem er einna best við svo langa Ljósanæturhátíð er að bæj- arbúar og gestir geta með auðveld- um hætti notið hvers dags, sem jafnan hefur sín einkenni. Á fimmtudeginum verða opnaðar sýn- ingar víðsvegar í bænum og versl- anir, sem sumar bjóða rými sitt til sýningarhalds, verða áfram opnar á kvöldin með skemmtilega stemn- ingu. Þá eru líka hjólbörutónleikar í Keflavíkurkirkju.    Á föstudeginum hefur bryggjuballið, með rjúkandi bragð- góðri kjötsúpu Skólamatar, alltaf verið vinsælt. Þá verða heima- tónleikar í gamla bænum í þriðja sinn, en vinsældir þeirra hafa vaxið með hverju ári. Unglingarnir tjútta í Stapa meðan eldri kynslóðin skemmtir sér á harmonikkuballi á Nesvöllum. Eitthvað í boði fyrir alla.    Laugardagurinn hefur jafnan verið aðaldagur Ljósanætur með vinsælli árgangagöngu að hátíð- arsvæði þar sem 50 ára árgangurinn er í forgrunni. Börnin geta svo valið úr ýmissi skemmtun víðsvegar um bæinn og boðið verður upp á fjöl- breytta tónlist í Duus-safnahúsum. Stórtónleikar verða á sviði bæði fyr- ir og eftir flugeldasýningu og þeir sem vilja meira geta skellt sér á Queen-messu í Keflavíkurkirkju að því loknu.    Á sunnudeginum er gott að gíra sig niður með sögugöngu um gamla bæinn, heimsókn í Hafnir á tónleika Elízu Newman og KK nú eða ná að upplifa það sem ekki náð- ist hina dagana, hvort sem það eru sýningar, tónleikar, leiktæki eða bara vera í bænum og njóta. Við vonum að sjálfsögðu að hugleið- ingar veðurfræðings verði okkur í vil yfir hátíðina.    Elsti leikskóli Reykjanes- bæjar, Tjarnarsel, fagnaði 50 ára af- mæli 18. ágúst sl. Ýmislegt hefur verið gert og verður gert á afmæl- isárinu. Meðal þess eru endurbætur á útisvæði, sem er með því skemmti- legasta sem gerist í leikskólum, og málþing um orðaforða verður haldið fyrir skólafólk 22. september nk.    Reykjanesbær færði leikskól- anum táknræna gjöf á afmælisdag- inn þar sem lýðræðisstarf leikskól- ans varð sýnilegt í söguspjaldi við Strandleið. Hugmyndir sem tengj- ast söguspjaldinu, bæði útsýnis- pallur við varnargarð og spjaldið sjálft, komu frá leikskólabörnum og starfsfólki inn á borð bæjarstjóra, fyrst árið 2005 og síðast í upphafi þessa árs.    Mörg söguspjöld eru við þessa fjölförnu útivistarleið frá Gróf upp að Stapa þar sem lesa má um sögu bæjarins, sögu þjóðar og landa- fræði. Það eru ekki síður ferðamenn sem veita spjöldunum athygli svo nú hefur verið hafist handa við að þýða texta þeirra yfir á ensku og endur- gera með íslenskum og enskum upplýsingatexta, ásamt myndum.    Önnur lærdómsstofnun í Reykjanesbæ fagnar tímamótum í ár, Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Þar hefur mikið vatn runnið til sjávar á þeim áratug sem liðinn frá opnun. Menntastig svæð- isins hefur hækkað, þróuð hefur verið nýstárleg vendikennsla og sprotafyrirtækjum og tækifærum fjölgað með fjölbreyttu námi, svo fátt sé nefnt. Aldrei fyrr í sögu skól- ans hafa eins margir sótt um frum- greinanám og nú en fjöldi umsækj- anda tvöfaldaðist milli áranna 2016 og 2017. Rúmlega 1.500 hafa verið útskrifaðir. Háskólabrú er nú einnig í boði á ensku.    Ekkert lát er á fjölgun íbúa í Reykjanesbæ. Milli júlí 2016 og júlí 2017 fjölgaði íbúum um 8,6%. Frá áramótum til dagsins í dag er fjölg- unin nú þegar komin í 7,3%. Erlend- ir íbúar eru 19,4% af heildaríbúa- fjölda, sem er um 17.500. Hingað hlýtur því að vera gott að koma þrátt fyrir neikvæða umræðu um stóriðju og mengun.    Andstæðingar stóriðju lýstu því yfir á fjölmennum íbúafundi í Stapa á fimmtudag að þeir myndu halda baráttu sinni áfram. Þeir huga að málsókn til að fá verk- smiðju Sameinaðs sílikons hf. lokað og verður fjármagni safnað gegnum Karolina fund, að því er fram kom á fundinum. Jafnfram skora andstæð- ingar stóriðju á almannavarnir að bregðast við mengun í bænum. Sameinað sílikon hf. hefur tíma til 30. ágúst nk. til að bregðast við bréfi Umhverfisstofnunar varðandi kröf- ur um úrbætur við mengunarvarnir.    Enn er líf og fjör í makrílveið- unum, svo sjá má báta í hópum úti fyrir Njarðvík og Keflavík og við Keflavíkurhöfn. Þessum veiðum fylgja ekki bara bátar og menn, mávarnir voka yfir í leit að æti og hvalirnir leita í makríltorfurnar. Það hefur því verið fjörlegt um að litast nú síðsumars og oft spenn- ingur yfir hvort sjá megi hvali við höfnina. Löng Ljósanótt að hefjast Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Söguskilti Hugmyndasmiðir á leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ að- stoðuðu Kjartan Má Kjartansson, bæjarstjóra við afhjúpun söguskiltis. Axel Helgi Ívarsson axel@mbl.is Douglas DC-3 flugvél, sem komst í eigu svissneska úraframleiðandans Breitling árið 2008, kemur hingað til lands í dag. Er Ísland einn af við- komustöðum vélarinnar í ferð henn- ar í kringum jörðina. Ferðin hófst í mars og lýkur í september. „Flugvélin kemur hingað frá Narsarssuaq á Grænlandi. Áætlað er að hún fljúgi yfir flugvallarsvæðið á Tungubökkum í Mosfellsbæ um klukkan fjögur síðdegis,“ segir Bald- ur Sveinsson, flugvélaljósmyndari, en fornvélasýningin Wings’n Wheels fer fram á Tungubökkum milli klukkan 12 og 17 í dag. Samflug með Páli Sveinssyni Stefnt er að því á morgun, ef veð- ur leyfir, að DC-3 flugvél Breitling fljúgi yfir nágrenni Reykjavíkur ásamt flugvélinni Páli Sveinssyni. Sú vél er af gerðinni Douglas C-47A, sem er herflutningaútgáfa DC-3 vél- ar. „Það á að taka myndir af Þrist- unum saman. Síðan fer Páll Sveins- son frá og fulltrúar Breitling taka myndir af sinni vél,“ segir Baldur. Baldur hefur verið í tengslum við aðila hjá Breitling frá því að hnatt- ferð DC-3 vélarinnar hófst. Kom m.a. hugmyndin um samflug DC-3 flugvél Breitling og Páls Sveins- sonar frá Baldri. „Ég viðraði hug- myndina fyrst hjá forsvarsmönnum ferðarinnar hjá Breitling og þeim leist einfaldlega vel á.“ Flýgur næst til Skotlands DC-3 flugvélin flýgur af landi brott á mánudaginn og fer til Wick í Skotlandi. Þaðan þræðir hún sig suður með Bretlandi og tekur svo stefnuna yfir á meginland Evrópu. Ferðin endar í borginni Sion í Sviss þann 13. september, segir í ferða- áætlun á vefsíðu Breitling. Ljósmynd/Katsuhiko Tokunaga Ferð Douglas DC-3 flugvél í eigu úraframleiðandans Breitling hóf flug sitt í kringum jörðina í mars síðastliðnum. Mun fluginu ljúka eftir tæpan mánuð. Þristur í hnattflugi kemur til landsins Ríkislögmaður hefur fyrir hönd fjár- mála- og efnahagsráðherra óskað eftir leyfi Hæstaréttar til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli ljósmæðra frá 30. maí sl. Í dómi héraðsdóms var ríkið dæmt til að greiða fimm ljósmæðrum vangoldin laun fyrir vinnu sem þær inntu af hendi meðan á verkfalli Ljósmæðra- félags Íslands stóð vorið 2015. Ljós- mæður höfðu áður tapað málinu í fé- lagsdómi. Í tilkynningu frá Ljósmæðrafélagi Íslands og BHM segir að áfrýjunar- beiðnin sé köld kveðja til ljósmæðra- stéttarinnar sem um þessar mundir sé að búa sig undir að hefja kjara- viðræður við ríkið. Benda ljósmæður á að margar þeirra náðu á sínum tíma að skila nánast fullri vinnu- skyldu í verkfallinu en engu að síður hafi ríkið ákveðið að halda eftir stórum hluta launa þeirra. Í dómi héraðsdóms var fallist á kröfur ljós- mæðranna hvað varðar fjárhæðir vangoldinna launa og að auki var rík- ið dæmt til að greiða þeim máls- kostnað. Segir í tilkynningunni að í áfrýjunarbeiðni ríkislögmanns f.h. ríkisins komi fram að fjármála- og efnahagsráðherra, sem fari með mál er varða réttindi og skyldur starf- manna ríkisins, telji brýnt að héraðs- dómurinn sæti endurskoðun. Segja ráðherra senda kalda kveðju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.