Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Amadeus borðstofuhúsgögn Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Komið og skoðið úrvalið Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ekki hafa úr miklu markaðsfé að moða, náð árangri sem þau gátu ekki látið sig dreyma um hér áður.“ Valdimar segir hefðbundna aug- lýsingalíkanið í bobba. „Tölurnar eru allar niður á við hjá hefðbundnum miðlum eins og áskriftarsjónvarpi og blöðum. Þetta er orðinn opnari víg- völlur. Ef þú ert áhugaverð persóna með góðan hóp fylgjenda beinist áhugi auglýsenda að þér.“ Valdimar segir að þessi leið við markaðssetningu sé góð að því leyti að þarna séu einstaklingar að tala beint við aðra einstaklinga án milli- liða. „Fólk ákveður sjálft að horfa á svona. Þetta er ekki „truflunarmark- aðssetning“ þar sem til dæmis sjón- varpsþáttur er rofinn með auglýs- ingu.“ Hægt að ganga of langt En er ekki hætta á að menn gangi of langt í auglýsingamennskunni á kostnað efnisins? „Jú, vissulega er alltaf hætta á því, en þá er auðvelt að finna bara annan áhrifavald og svo koll af kolli. Ís- lenska hugbúnaðarfyrirtækið Ghost- lamp hjálpar til dæmis fyrirtækjum að finna fullt af smærri áhrifavöld- um, þannig að þegar einn dettur úr tísku, þá er bara að snúa sér til þess næsta. Auglýsendum er nokkuð sama, bara ef þeir ná til síns mark- hóps á sem áhrifamestan hátt.“ Valdimar segir að áhrifavalda- markaðssetning verði sífellt veiga- meiri eftir því sem eldri aldurshópar byrji að nota miðlana. „Þetta er ekki lengur bundið við fólk undir 20 ára.“ Mikil lærdómskúrfa Hugi Sævarsson framkvæmda- stjóri Birtingahússins, sem þjónust- ar fyrirtæki í markaðsmálum, meðal annars við gerð birtingaáætlana, segir að Birtingahúsið hafi nýtt sér krafta áhrifavalda í nokkrum mark- aðsaðgerðum. „Við, eins og aðrir, höfum verið að fikra okkur áfram í þeim málum. Það er mikil lærdóms- kúrfa í gangi bæði hjá seljendum og kaupendum,“ segir Hugi. Hann segir að enn skorti nokkuð á rannsóknir um árangur af notkun áhrifavalda í markaðssetningu. „Við höfum hins vegar ákveðna mæli- kvarða til hliðsjónar til að meta ár- angur herferða. Þetta er eins og svo margt annað í örri þróun og gerjun. Enn sem komið er þá eru þessi markaðstól ekki mjög stór hluti af heildarauglýsingaveltunni hérlendis en eru líkleg til að sækja í sig veðr- ið.“ Notkun áhrifavalda orðin viðurkennd aðferð Morgunblaðið/Ófeigur Tíska Verslun H&M í Smáralind er sú fyrsta af þremur. Hinar verða í Kringlunni og í miðbæ Reykjavíkur.  H&M notar áhrifavalda og samfélagsmiðla meðan fólk kann að meta það Markaðssetning » Fyrirtæki eins og Eylendan og Áttan bjóða upp á auglýs- ingar hjá áhrifavöldum. » Áhrifavaldar eru ein- staklingar sem njóta vinsælda á samfélagsmiðlum og hafa marga fylgjendur sem fylgjast með færslum á miðlum eins og Snapchat, Instagram og Face- book. » Einn frægasti áhrifavaldur í heimi er bandaríska raunveru- leikastjarnan Kim Kardashian. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Notkun áhrifavalda á samfélags- miðlum er orðin viðurkennd aðferð við markaðssetningu, að sögn Valdi- mars Sigurðssonar prófessors í markaðsfræði og neytendasálfræði við Háskólann í Reykjavík. Þessi markaðsaðferð fer mjög vaxandi, að hans sögn, en í fjölmiðl- um hefur mikið verið rætt um áherslu tískuvöruverslunarinnar H&M á slíka markaðssetningu vegna opnunar aðalverslunar fyrir- tækisins hér á landi í Smáralind í dag, laugardag. Fyrirtækið sendi ýmsum þekktum einstaklingum veglegt boðsbréf á foropnun síðasta fimmtudag þar sem fólk gat verslað með 20% afslætti, látið taka af sér ljósmyndir og miðlað síðan reynslu sinni á samfélagsmiðl- um. Joanna Morell samskiptastjóri H&M á Íslandi og í Noregi segir í samtali við Morgunblaðið, spurð að því hvort þessi nálgun sé orðin ráð- andi hjá félaginu þegar nýjum búð- um sé hleypt af stokkunum, að fyr- irtækið noti ávallt blöndu af markaðsaðgerðum til að ná athygli viðskiptavina. „Þar sem margir við- skiptavina okkar eru á netinu og á samfélagsmiðlum í leit að innblæstri, þá er eðlilegt að bæta þeirri mark- aðsleið við. Við munum halda áfram að nota samfélagsmiðla og áhrifa- valda svo lengi sem við teljum að við- skiptavinirnir kunni að meta slíkt,“ sagði Morell. Hún segir að Íslendingar hafi tek- ið frábærlega á móti H&M. „Við er- um gríðarlega spennt að vera nú að opna fyrstu verslun okkar á Íslandi og bjóða viðskiptavinum upp á frá- bæra verslunarupplifun.“ Er að aukast mikið Valdimar segir að notkun áhrifa- valda við markaðssetningu sé ekki ný af nálinni. „Vægi áhrifavalda- markaðasetningar er hins vegar að aukast mjög mikið. Nú getur hver einasti Jón og Gunna orðið stjarna milliliðalaust og þarf ekki að reiða sig á einhverja aðra miðla til þess. Á sama tíma geta lítil vörumerki sem 22%, og í flutn- ingsmiðlun um liðlega 25 millj- ónir evra, eða 84%, þar af 22 milljónir evra vegna nýrra fé- laga. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 16,7 milljónum króna á síðasta árs- fjórðungi og jókst um 0,5 milljónir evra frá sama fjórðungi í fyrra. Gylfi Sigfússon forstjóri segir árangur fjórðungsins hafa litast af gengissveiflum. „Rekstrarreikn- ingur félagsins er tiltölulega vel varinn fyrir gengissveiflum en efnahagsreikningurinn er opnari gagnvart þeim. Um 6,5% veiking Bandaríkjadollara gagnvart evru og um 3,7% styrking íslensku krónunnar gagnvart evru á öðrum ársfjórðungi leiddu til 2,0 milljóna evra gengistaps. Samanborið við 1,2 milljóna evra gengishagnað á öðrum ársfjórðungi 2016 nemur neikvæður viðsnúningur á milli ára 3,2 milljónum evra.“ Í kjölfar tilkynningar um afkom- una lækkaði gengi hlutabréfa í Eimskip um 6,2% í 321 milljónar króna viðskiptum í Kauphöllinni í gær. Hagnaður Eimskips á öðrum árs- fjórðungi nam 4,9 milljónum evra, jafngildi liðlega 620 milljóna króna á núverandi gengi. Til saman- burðar var hagnaður félagsins 8,8 milljónir evra á öðrum fjórðungi í fyrra. Meginskýring minni hagn- aðar er 3,2 milljóna evra breyting á gengismun á milli tímabila, að því er fram kemur í afkomu- tilkynningu Eimskips til Kaup- hallar. Tekjur félagsins námu 173 millj- ónum evra, jafngildi um 22 millj- arða króna, og jukust um 37% frá öðrum ársfjórðungi í fyrra. Tekjur í áætlunarsiglingum jukust um tæplega 22 milljónir evra, eða Afkoma Eimskips litaðist af neikvæðum gengismun Gylfi Sigfússon  Tekjur jukust um 37% milli ára m.a. vegna nýrra félaga 26. ágúst 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.08 107.6 107.34 Sterlingspund 137.31 137.97 137.64 Kanadadalur 85.43 85.93 85.68 Dönsk króna 16.962 17.062 17.012 Norsk króna 13.626 13.706 13.666 Sænsk króna 13.256 13.334 13.295 Svissn. franki 110.96 111.58 111.27 Japanskt jen 0.9792 0.985 0.9821 SDR 150.92 151.82 151.37 Evra 126.18 126.88 126.53 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9024 Hrávöruverð Gull 1287.05 ($/únsa) Ál 2104.0 ($/tonn) LME Hráolía 52.55 ($/fatið) Brent SMARTLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.