Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 23
23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
Á Breiðamerkursandi Jökulsárlón er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. Jökullinn, hafið og ekki síst fjölbreytt sjónarspil ísjakanna heilla. Sumir fara upp á brúna í leit að góðu sjónarhorni.
RAX
Í 2. gr. stjórnarskrá
Íslands er kveðið á um
þrígreiningu ríkis-
valdsins. Þar segir að
Alþingi og forseti lýð-
veldisins fari með
löggjafarvaldið, stjórn-
völd með fram-
kvæmdavaldið og dóm-
endur með dómsvaldið.
Þessi þrígreining
ríkisvaldsins er einn af
hornsteinum lýðveld-
isins Íslands sem réttarríkis og á
m.a. að tryggja dómstólunum sjálf-
stæði.
Nú ber svo við að hér á landi eru í
gildi lög um framkvæmd refsinga. Í
80. gr. þeirra er fjallað um reynslu-
lausn. Með reynslulausn má fella
niður hluta refsingar og er það á
valdi Fangelsismálastofnunar rík-
isins. Stofnunin getur þannig, að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum,
fellt niður helming refsingar sem
dómstólar hafa dæmt í refsimálum.
Á það einkum við um mál sem ekki
teljast mjög alvarleg. Þó getur
stofnunin í málum sem teljast alvar-
leg, að ákveðnum skilyrðum upp-
fylltum, fellt niður helming refs-
ingar. Það sama á við ef fyrir liggur
að um erlenda ríkisborgara sé að
ræða sem munu sæta brottvikningu
af landi brott af afplánun lokinni.
Sá sem gerist sekur um alvarlega
líkamsárás eða manndráp og er
dæmdur í t.d. 16 ára fangelsi getur
þannig, að uppfylltum ákveðnum
skilyrðum, fengið niður felldan
helming refsingar þrátt fyrir að
dómstólar landsins hafi dæmt hann í
16 ára fangelsi.
Með þessu fyrirkomulagi er fram-
kvæmdavaldinu í raun veitt heimild
til þess að ógilda að hluta dóma í
refsimálum og lækka refsingar.
Þetta fyrirkomulag er
brot á þrígreiningu rík-
isvaldsins. Dómstólar,
sem ákveða eiga refs-
ingar með dómum sín-
um, eru í raun gerðir
marklausir. Dómar
þeirra hafa þannig í
raun takmarkað gildi.
Víða erlendis er
þessu þannig farið að í
dómsorði er kveðið á
um það hvort eða hve-
nær sá dæmdi getur í
fyrsta lagið fengið
reynslulausn. Þannig er það á valdi
dómstólsins að ákveða slíkt. Fram-
kvæmdavaldið sér síðan um fram-
kvæmd refsingar í samræmi við
dómsniðurstöðuna. Það er löngu
tímabært að breyta þessu fyrir-
komulagi hér á landi. Alþingi Íslend-
inga á að samþykkja þessa laga-
breytingu og fella hana inn í
hegningarlög og eins lög um fram-
kvæmd refsinga. Dómstólar þyrftu
þannig framvegis í dómsniðurstöðu í
refsimálum að taka til þess afstöðu
hvort hinn dæmdi eigi að fá reynslu-
lausn og ef svo er þá hvenær í fyrsta
lagi.
Að öðrum kosti eru dómar ís-
lenskra dómstóla í refsimálum að
hluta til marklausir. Fyrirkomulag
þetta er auk þess brot á stjórnar-
skrá.
Eftir Guðna Á.
Haraldsson
»Dómstólar, sem
ákveða eiga refs-
ingar með dómum sín-
um, eru í raun gerðir
marklausir. Dómar
þeirra hafa þannig í
raun takmarkað gildi.
Guðni Á.
Haraldsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Þrígreining
ríkisvaldsins
Íslenskur landbún-
aður getur gegnt lyk-
ilhlutverki í því mik-
ilvæga verkefni að við
sem þjóð náum
árangri í loftslags-
málum. Bændur ættu
að senda stjórnvöldum
tilboð strax í dag um
að gera kolefnis-
búskap að nýrri bú-
grein.
Þekking á bindingu og losun
gróðurhúsaloftegunda er oft yf-
irborðsleg í daglegri umræðu.
Margir þeirra staðla sem alþjóð-
legir ráðgjafar í loftslagsmálum
notast við hafa ekki verið sann-
reyndir hér landi. Of mikil óvissa
og ágiskun er þar á ferðinni.
Margt í loftslagsfræðum virðist
stangast á innbyrðis og árangri
verður aðeins náð með fagmennsku
og öflun þekkingar. Á Íslandi hefur
áunnist allnokkur þekking á þessu
sviði sem vert er að þróa, miðla og
nota.
Sem dæmi má nefna að mæl-
ingar hérlendis hafa sýnt að losun
vegna tiltekinnar landnotkunar,
t.d. framræslu á mýrartúni, er um
80% minni en þau viðmið sem al-
þjóðlegar leiðbeiningar styðjast
við. Þetta er þó ekki aðalatriði
heldur hitt að fram eru að koma
nýjar erlendar rannsóknir og vitn-
eskja um losun og bindingu í land-
búnaði. Þar er um að ræða vís-
bendingar sem Landbúnaðar-
háskóli Íslands og Ráðgjafar-
miðstöð landbúnaðarins verða að
sameinast um að sannreyna betur
og miðla.
Sauðfjárrækt kolefnisjöfnuð
Sauðfjárbændur hafa ályktað að
búgrein þeirra verði kolefnisjöfnuð.
Innan tíðar á að liggja fyrir fyrsta
tilraun til útreiknings á bindingu
og losun sauðfjárbúa. Grunnur að
árangri er að bóndinn
þekki vel bú sitt og
jörð. Bóndinn verður
að hafa þekkingu á
hve mikið bú hans los-
ar af gróðurhúsa-
lofttegundum. Ekki
síst hvernig bústjórn
hans getur haft áhrif
á þá losun og hve mik-
ið jörðin hans, býlið
allt, getur bundið um-
fram losun vegna
rekstrar. Þannig getur
bóndinn bætt við sinn
rekstur nýrri búgrein – kolefnis-
búskap. Hann ætti að geta öðlast
vottun á staðbundinni sjálfbærni
bús síns, en í því efni hefur MAT-
ÍS unnið brautryðjandastarf. Í
þessu liggja mikil verðmæti fyrir
alla landsmenn og okkur sem
ábyrga þjóð sem ætlar að ná mark-
miðum sínum í loftslagsmálum.
Margt smátt gerir eitt stórt. Vel
framræst ræktarland losar minna
af „hláturgasi“ en blautt. Gott við-
hald á framræslu er þar lykilatriði.
Gæti bóndi að sýrustigi jarðvegs
og beiti reglulegri kölkun má þar á
ofan nánast koma í veg fyrir slíka
losun. Nýjar rannsóknir sýna að
gras til fóðurgerðar og framleiðslu
á búvöru losar mun minna en korn
og framleiðsla kjöts og mjólkur á
einærum jurtum. Ákveðnar vís-
bendingar eru um að lítilsháttar
íblöndun þaramjöls í fóður naut-
gripa minnki losun frá meltingu
þeirra.
Bætt bústjórn og orkunýtni
Jarðir bænda hafa yfirleitt til að
bera fjölbreyttan gróður og land-
gerð. Þekking á bindingu kolefnis
á einstökum gerðum lands og gróð-
urs skiptir þar sköpum. Í mörgum
tilfellum má stýra landnotkun
þannig að endurheimt á votlendi
geti verið framlag til bindingar.
Bætt bústjórn, svo sem breytt
og bætt meðhöndlun búfjár-
áburðar, innkaup aðfanga, fóðr-
unarstefna búsins og aðferðir við
fóðurgjöf, er áhrifaríkur þáttur.
Við notum endurnýjanlega orku til
að loftræsa kartöflugeymslur,
mjólka og lýsa gróðurhús. Er það
ekki ákveðið forskot? Val á orku-
gjöfum skiptir máli.
Fjölbreytni jarða býður einnig
upp á aðra möguleika eins og land-
græðslu sem bindur. Þar við bætist
framleiðsla á rafmagni með bygg-
ingu og rekstri smávirkjana sem
aftur geta orðið forsenda fyrir
orkuskiptum í samgöngum. Nú í
sumar hefur verkefninu „Hleðsla í
hlaði“ verið ýtt af stokkunum og
sýnir það meðal annars að bændur
geta líka tekið þátt í uppbyggingu
nauðsynlegra innviða við rafbíla-
væðingu.
Tímamótaárið 2017
Gerum árið 2017 að tímamótaári,
þar sem við leggjum grunn að
nýrri og öflugri búgrein, kolefn-
isbúskap, sem getur fært okkur
sem þjóð mikil tækifæri til að tak-
ast á við skuldbindingar okkar og
ekki síst að skapa með því grunn
að styrkari byggð í sveitum. Það er
óþarfi að gefast upp fyrir þessu
verkefni með því að senda mikla
fjármuni til annarra landa í því
skyni að kaupa losunarheimildir
þegar vel má kaupa slíka þjónustu
af landbúnaði og íslenskum bænd-
um.
Eftir Harald
Benediktsson » Gerum árið 2017 að
tímamótaári, þar
sem við leggjum grunn
að nýrri og öflugri bú-
grein, kolefnisbúskap,
sem getur fært okkur
sem þjóð mikil tækifæri
til að takast á við skuld-
bindingar okkar.
Haraldur Benediktsson
Höfundur er alþingismaður.
Tækifærið er núna