Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 27

Morgunblaðið - 26.08.2017, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 hitataekni.is Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is Einstaklega hljóðlát tæki fyrir t.d. kerfisloft eða á vegg Baðviftur Ein sú hljóðlátasta 17 – 25 dB(A) atnskæld kælitæki Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Anddyris- hitablásarar Bjóðum upp á mikið úrval loftræstikerfa fyrir heimili og fyrirtæki Kínverska þjóðar- skútan, stórskip með 1,3 milljarða manns um borð, dregur að sér at- hygli í síauknum mæli. Á þessu ári verður at- burður sem mun ákvarða hvert og hvernig fleyið siglir fram á við. Síðar á þessu ári heldur Kommúnista- flokkurinn, ríkjandi flokkur Kína, sitt 19. landsþing. Þingið verður haldið á þýðingarmiklum tíma fyrir þróun ríkisins. Þar verður fjallað um þróun og málstað flokks og þjóðar, örlög kínversks sósíalisma sem og grund- vallarhugðarefni meirihluta kín- versku þjóðarinnar. Í ljósi alþjóð- legrar stöðu og áhrifa Kína mun þetta einnig hafa áhrif á frið og framþróun á heimsvísu. Kommúnistaflokkurinn heldur landsþing fimmta hvert ár. Á síðustu fimm árum frá seinasta þingi hefur miðstjórn flokksins undir forystu Xi Jinping sett fram röð mikilvægra stefnumála, leyst úr fjölda langvar- andi vandamála og náð miklum árangri á mörgum sviðum og mætt þannig kröfum og væntingum þjóð- arinnar. Kommúnistaflokkurinn hef- ur verið óbilandi í uppbyggingu á sviði vistfræði, ýtt undir nútímavæð- ingu á vörnum landsins og her- málum, haldið á loft utanríkisstefnu stórveldis með áherslu á kínversk sérkenni og stuðlað að ströngu innra eftirliti í flokknum að öllu leyti og þannig barist gegn spill- ingu af miklu afli. Rétt eins og sá sem er í skóm veit best hvort skórnir passa veit hver þjóð fyrir sig hvaða ismi eða stefna getur leyst þau sögulegu vandamál sem blasa við. Kín- verska þjóðin hefur dregið þá bjargföstu ályktun, sem er byggð bæði á sögu og reynd, að aðeins sósíalisminn geti bjargað Kína og að að- eins sósíalismi með kínverskum sér- kennum geti stuðlað að þróun Kína. Kínverska þjóðin, sem hefur mátt reyna mótlæti og harðræði á síðustu öldum, hefur tekið sögulegt stökk frá því að rísa upp til hagsældar og aukins styrks. Sósíalismi með kínverskum sérkennum hefur gert leiðina greiðari til nútímavæðingar fyrir þróunarlönd og þannig gefið af sér kínverskt hug- vit og kínverskar lausnir á vanda- málum sem mannkynið glímir við. Á sama tíma er Kína enn á frum- stigum sósíalismans. Þrátt fyrir að Kína sé annað stærsta hagkerfi heims er verg landsframleiðsla rétt yfir átta þúsund bandarískra dollara. Ójafn- vægi á þróun milli svæða innanlands er augljós og yfir 43 milljónir manns búa enn við fátækt. Þrá kínversku þjóðarinnar eftir hamingjuríku lífi er sterkari en nokkru sinni fyrr; kröfur hennar og væntingar eru jafnframt fjölbreyttari en áður. Kínversk yf- irvöld verða að halda áfram að leitast við að auka velferð fólksins og efla samfélagsjöfnuð og réttlæti þannig að þjóðin geti deilt ávöxtum framþróunarinnar á sanngjarnan hátt og séð að hún hefur tilkall til þeirra. Kína stendur á nýjum sögulegum byrjunarreit. Hin svokölluðu „tvö aldarmarkmið“ eru annars vegar að ljúka uppbyggingu hóflega velmeg- andi samfélags á öllum sviðum við hundrað ára afmæli Kommúnista- flokksins árið 2021 og hins vegar að gera Kína að nútímalegu sósíalísku veldi sem er sterkt, blómstrandi, lýð- ræðislegt, menningarlega þróað og friðsamlegt fyrir aldarafmæli Al- þýðulýðveldisins Kína árið 2049. Þessi markmið setja ljóslega svip sinn á söguleg verkefni, hernaðar- legar ákvarðanir og raunhæfa stefnu sem er efst á baugi þegar kínverska draumnum um endurreisn þjóðar- innar verður hrint í framkvæmd. Ég óska 19. landsþingi Kommúnista- flokksins velgengni þannig að flokk- urinn geti stýrt kínversku þjóðar- skútunni örugglega fram á við og lagt enn frekar af mörkum í þágu friðar, þróunar og framfara fyrir allt mann- kyn. Hvert siglir kín- verska þjóðarskútan? Eftir Zhang Weidong »Rétt eins og sá sem er í skóm veit best hvort skórnir passa veit hver þjóð fyrir sig hvaða ismi eða stefna getur leyst þau sögulegu vandamál sem blasa við. Zhang Weidong Höfundur er sendiherra Alþýðu- lýðveldisins Kína á Íslandi. Mikið yrði nú gott fyrir okkur að gefa norsk-íslensku síldinni líf, síldinni sem kom okkur upp úr vesöldinni á sínum tíma með síldarævintýrinu. Þótt ég sé einn af mörgum sem eru á móti boðum og bönnum og hafi þegið þetta með þökkum á sínum tíma og þannig átt þátt í að drepa vor- gotssíldina finnst mér að við eig- um alfarið að banna síldveiðar núna nema til mann- eldis. Íslend- ingar urðu þeirrar gæfu að- njótandi að verða ein ríkasta þjóð veraldar og óhætt að segja að þar hafi síldin verið ein af aðaltekjulindum þjóðarinnar. Það er ekki víst að fólk almennt viti um þá geysilegu vá sem mundi fylgja ef uppsjávarfiskur yrði útdauður. Ég hefi lesið það að stór síldarstofn hafi ekki fund- ist síðustu 40-50 árin. Þetta er hræðilegt. Tímarnir hafa stórbreyst hjá okkur í fiskileit eins og öðru. Haf- rannsóknastofnun hefur unnið gíf- urlega gott starf í þessu sem öðru undanfarin ár. Útgerðarfyrirtæki eru löngu komin í allt aðra og arðbærari tekjustofna þannig að við ættum að láta hvölum mestallan uppsjáv- arfisk eftir, og þeim sjávardýrum sem lifa á honum. Fiskirækt er orðin stóratvinnugrein hjá mörg- um og hefur hún sannarlega ver- ið til mikilla bóta á landsbyggð- inni. Meðal annars þess vegna ber okkur að gæta hófs í veiðum, vorgotssíldin okkar er horfin, það er aðeins eftir í matinn. Karl Jóhann Ormsson. Merking húsa Þegar ég las fréttina um það, að eigi að fara að breyta gamla Sjónvarpshúsinu í hótel, þá datt mér í hug, að það mætti setja skjöld á húsið, þar sem gerð er grein fyrir, að þarna hafi Rík- issjónvarpið haft sínar höf- uðstöðvar lengi vel og það frá upphafi. Það mætti vel setja slíka skildi á fleiri hús. Hvernig væri t.d. að setja skjöld á Lands- símahúsið með upplýsingum um þá starfsemi, sem það hýsti á ár- um áður, og gefur til kynna, hvers vegna það heitir alltaf Landssímahúsið í munni manna hér í Reykjavík, og segja um leið, að þarna hafi Ríkisútvarpið lengi vel haft sínar höfuðstöðvar. Það er nauðsynlegt að merkja þannig gömul hús í Reykjavík og segja sögu þeirra, og hverjir hafi nýtt húsin gegnum tíðina, bæði fyrir erlenda ferða menn, en líka okkur íbúana, ekki síst yngri kynslóðir landsins, til að kynna þeim sögu Reykjavíkur, sem er bráðnauðsynlegt, að þær kunni vel skil á, þegar þeir eru farnir héðan úr heimi, sem kunna hana best. Þess vegna finnst mér sjálf- sagt að merkja söguleg hús með þessum hætti. Guðbjörg Snót Jónsdóttir Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Norsk-íslenska síldin Herramannsmatur Mörgum þykir síldin góð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.