Morgunblaðið - 26.08.2017, Síða 28
28 UMRÆÐAN Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
Það líður á sumarið,
sem hefur verið á svo
margan veg gott og
gjöfult okkur sem
byggjum þetta bless-
aða land. Undarlegar
fregnir berast augum
og eyrum og allt of oft
eru þær skuggum
skyggðar.
Bæjar- og útihátíðir
eru um allt og allmikið
eftir enn að sögn. Mað-
ur er sannarlega
manns gaman, en fulloft er gamanið
grátt og þá kemur enn einu sinni
fram, hversu skelfilegur fylginautur
áfengið er á slíkum hátíðum sem þá er
ekki lengur hægt að nefna því nafni,
svo sem alltof mörg dæmi eru um.
Mikil umræða hefur orðið um störf
lögreglu á þessu sumri og margt af því
allt of einlitt. Ekki það að lögreglufólki
geti ekki orðið á í messunni eins og
okkur öllum og örugglega er þar ein-
hver sem sagt yrði um að misjafn
sauður geti verið í mörgu fé. Hins veg-
ar verður að viðhafa sanngirni gagn-
vart þessari stétt ekki síður en öðrum,
og enginn fullvita maður dregur úr
mikilvægi þessa starfs. Minnugur er
ég þess frá fyrri tíð þegar annars
ágæt kona hafði allt á hornum sér
gagnvart lögreglunni og ástæðan sú
að sonur hennar, reyndar hrotti mik-
ill, hafði ekki verið meðhöndlaður
nógu varlega af laganna þjónum, „eins
og þetta er nú góður drengur innst
inni“, fylgdi með klögumálunum. Ekki
síður er ég minnugur þess þegar sama
kona varð fyrir einhverju áreiti að hún
taldi og var spurð hvernig hún hefði
brugðist við: „Ég hringdi auðvitað á
lögregluna og þeir björguðu mér al-
veg.“ Sjálfur hefi ég séð lögreglumenn
reyna að hemja dýrvitlausan, naut-
sterkan mann, sem hafði fengið sér of
mikið neðan í því að þeirra sögn. Og
það voru ekki öfundsverðir laganna
verðir sem þar áttu hlut. Oft er mér í
huga gamla orðtakið Öl er innri mað-
ur. Því miður er það svo að allt of
mörg verstu einkenni mannskepn-
unnar koma einmitt fram þegar menn,
eins og er svo fallega sagt, hafa verið
gleðja sig! Og þá er ég kominn að
kjarna minnar greinar, kjarnanum um
afleiðingar áfengisins
sem mér verður gjarna
tíðrætt um, svo að ýmsir
spyrja mig hvers vegna í
ósköpunum ég sé enda-
laust við þetta heygarðs-
horn, vitandi að upp-
skeran sé rýr eða alls
engin.
Má örugglega vera
margt til í því. En svo
spyrja aðrir á móti:
Hvað ef enginn vekur
athygli á þessum oft
falda þætti og gerir honum skil sem
orsök á óteljandi sviðum? Og einn
mér ókunnur þakkaði mér fyrir
greinarskrifin og sagði, þegar ég var
eitthvað að afsaka mig: „Á bara að
láta „frelsisliðið“ vaða uppi án þess að
reynt sé að fá þar einhverja rönd við
reist, lið sem kærir sig kollótt um all-
ar afleiðingar, ef bara er hægt að láta
gróðapungana græða á því.“ Og um-
ræðan er víða og hefur auðvitað hin
ýmsu blæbrigði.
Skrifandi þetta á tölvuna heyrði ég
rétt áðan mann segja við annan: „Það
er nú allt í lagi með vínið, ég meina ef
það er drukkið í hófi, en það er verra
með þessi eiturlyf,“ og hélt svo langa
tölu þar um. Heilbrigðisstarfsmað-
urinn sem við var rætt á þennan hátt
sagði eitthvað á þá leið að áfengið,
jafnvel í svokölluðu hófi, dræpi marg-
falt fleiri en eiturlyfin og væri hann
þó ekki að mæla þeim bót. Þetta taldi
hinn algera fjarstæðu en fékk þá
þetta andsvar: „Það væri betur, en
tölurnar tala sínu máli og afleiðing-
arnar svo margþættar og „fjar-
stæðan“ væri orsök sem leiddi bæði
til örkumla og dauða“.
Undir þetta tek ég í lokin hafandi
gögn séð sem sanna allt þetta átak-
anlega. Og mál að linni, að sinni.
Hugleiðing
á síðsumri
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
»Hvað ef enginn vek-
ur athygli á þessum
oft falda þætti og gerir
honum skil sem orsök á
óteljandi sviðum?
Höfundur er formaður
fjölmiðlanefndar IOGT.
AKUREYRARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar.
Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng.
Organisti Krizstina K. Szklénár. Kaffi og sam-
félag á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður Jóns-
son sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Fé-
lagar úr Kammerkór Áskirkju syngja. Organisti
Magnús Ragnarsson. Kaffi á könnunni í Ási eft-
ir messu.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl.
13. Séra Sigurður Jónsson þjónar og Magnús
Ragnarsson leikur á orgelið við almennan söng
viðstaddra. Vandamenn heimilisfólks velkomn-
ir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11 í nýju
kirkjunni. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn
Stefáns Henrýssonar. Meðhjálpari er Sigurður
Þórisson og prestur Kjartan Jónsson. Hressing
og samfélag eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sameiginleg sum-
arguðsþjónusta Garða og Bessastaðasóknar
kl. 11 í Bessastaðakirkju. Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir sönginn og Helga Björk Jóns-
dóttir djákni þjónar fyrir altari.
BORGARPRESTAKALL | Messa í Borgarnes-
kirkju kl. 11. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl.
13.45. Messa í Akrakirkju kl. 16. Organisti
Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur
Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Þórhallur Heimisson. Kór Breiðholtskirkju syng-
ur, organisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Bústaðakirkju syngja undir stjórn
Jónasar Þóris kantors. Messuþjónar aðstoða
og prestur er Pálmi Matthíasson. Molasopi og
hressing eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Gunnar Sigurjónsson, organisti Sigríður Sólveig
Einarsdóttir.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Messa virka
daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 16 á
spænsku og kl. 18 er sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa í Dómkirkjunni kl. 11
og í Viðeyjarkirkju kl. 14. Sr. Sveinn Valgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Dóm-
kórnum leiða sönginn með Kára Þormari sem
leikur á orgelið. Sr. Þórir Stephensen, fv. dóm-
kirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, leiðir
staðarskoðun að messu í Viðeyjarkirkju lokinni.
Síðasta ferja fyrir messu heldur frá Skarfa-
bakka kl. 13.15. Ferjugjald er 1.500 kr.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20.
Upphaf fermingarstarfanna í Egilsstaða-
prestakalli. Prestarnir þjóna. Torvald Gjerde og
félagar úr kirkjukórnum leiða tónlistina.
FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Sr. Gísli
Jónasson, prófastur í Reykjarvíkurprófasts-
dæmi eystra, setur sr. Jón Ómar Gunnarsson
inn í embætti prests í Fella- og Hólakirkju. Sr.
Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Val-
garðsdóttur organista. Kristín Ragnhildur
Sigurðardóttir og Inga Backmann syngja ein-
söng. Reynir Þormar Þórisson spilar á saxófón.
Kaffiveitingar að messu lokinni.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tón-
listina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista.
GARÐAKIRKJA | Sameiginleg sumarguðs-
þjónusta Garða og Bessastaðasóknar kl. 11 í
Bessastaðakirkju. Jóhann Baldvinsson org-
anisti leiðir sönginn og Helga Björk Jónsdóttir
djákni þjónar fyrir altari.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar.
Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er
Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Samskot í líknarsjóð. Messuhópur
þjónar. Félagar úr kirkjukór Grensáskirkju
syngja. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur
Kristín Pálsdóttir. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrum þjón-
andi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar.
Séra Tómas Sveinsson þjónar. Grundarkórinn
leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organ-
ista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur Skírnir Garðarsson,
organisti Hrönn Helgadóttir og kvennakór Guð-
ríðarkirkju syngur. Kirkjuvörður Lovísa Guð-
mundsdóttir, kaffisopi og kleinur í boði eftir
messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl 11. Upphaf fermingarstarfsins, og verður
starfið næsta vetur kynnt í lok stundarinnar.
Prestar Jón Helgi Þórarinsson og Þórhildur
Ólafs. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Kaffi-
sopi eftir stundina.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Dr. Sig-
urður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt hópi messuþjóna. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er
Björn Steinar Sólbergsson. Ensk messa kl. 14
í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Fyrir-
bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdeg-
ismessa miðvikud. kl. 8. Tónleikar Schola can-
torum miðvikud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. María
Ágústsdóttir þjónar ásamt Kára Allanssyni org-
anista. Börnin geta litað og lesið við Maríualt-
arið meðan á messunni stendur. Kaffisopi í
Setrinu.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Kl. 20. Almenn
samkoma með lofgjörð og fyrirbænum. Ólafur
H. Knútsson prédikar og verður með brauðs-
brotningu. Kaffi að samverustund lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 20. Ung-
mennakórinn Vox Felix syngur við undirleik Arn-
órs Vilbergsonar organista. Prestur er Erla
Guðmundsdóttir. Reifuð verður ferming-
arfræðsla komandi vetrar að lokinni messu.
KIRKJUBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
14. Prestur er Þorgeir Arason. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleð-
brjótssókna. Ásmundur Þórhallsson segir frá
hinum merka predikunarstóli kirkjunnar. Minn-
um á kaffisölu Kvenfélagsins í Tungubúð eftir
messu.
KOLAPORTIÐ | Messa kl. 14. Séra María
Ágústsdóttir, Þorvaldur Halldórsson og Mar-
grét Scheving.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju
syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11, Guð-
björg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar,
organisti er Þorvaldur Örn Davíðsson og stýrir
Graduale Nobili-kórnum sem syngur við mess-
una. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og
messuþjónar aðstoða við messuna og bjóða
upp á molasopa að messu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 20. El-
ísabet Þórðardóttir organisti leiðir söng. Sr.
Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Honum til
aðstoðar er stud.theol. Hjalti Jón Sverrisson,
fermingarfræðari. Fermingarbörn vetrarins eru
sérstaklega boðuð til þessarar guðsþjónustu
ásamt forráðamönnum og síðan til samráðs-
og kynningarfundar í safnaðarheimilinu strax
að henni lokinni vegna fermingarfræðslunnar í
vetur.
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í Mos-
fellskirkju í Mosfellsdal kl. 11. Sr. Arndís Bern-
hardsdóttir Linn þjónar fyrir altari og prédikar.
Karl Tómasson, Jóhann Helgason og Guð-
mundur Jónsson annast tónlistarflutning,
ásamt Kjartani Ognibene organista og kirkju-
kór Lágafellskirkju.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 20. Óskar Einarsson stjórnar
kór Lindakirkju. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson
þjónar.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA | Messa kl. 20.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Organisti
Valmar Väljaots. Félagar úr Kór Glerárkirkju
syngja.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson.
Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Kvöldmessa/
fyrirbænaguðsþjónusta kl. 20. Séra Pétur Þor-
steinsson predikar og þjónar fyrir altari. Árni
Heiðar Karlsson leiðir almennan safn-
aðarsöng. Meðhjálpari Petra Jónsdóttir. Maul
eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður Haraldur Jóhannsson. Túlk-
að á ensku. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
Ninna Sif Svavarsdóttir, kór kirkjunnar syngur
og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Edit Molnár.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng.
Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar úr kór
Seljakirkju leiða safnaðarsöng.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 á bæjarhátíð Seltjarnarnesskaupstaðar.
Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leik-
ur á orgelið. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju syngja. Bæjarstjóri afhendir tvenn
verðlaun í lok messu í tilefni af bæjarhátíðinni,
verðlaun fyrir frumlegustu húsaskreytinguna
og glæsilegustu götuskreytinguna. Kaffiveit-
ingar og samfélag eftir athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
VIÐEYJARKIRKJA | Messa kl. 14 í umsjá
Dómkirkjusafnaðar. Sr. Sveinn Valgeirsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Dóm-
kórnum leiða sönginn. Kári Þormar leikur á org-
elið. Sr. Þórir Stephensen, fv. dómkirkjuprestur
og staðarhaldari í Viðey leiðir staðarskoðun að
messu lokinni. Síðasta ferja fyrir messu heldur
af stað frá Skarfabakka kl. 13.15. Ferjugjald er
1.500 kr.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sameiginleg sumarguðs-
þjónusta Garða og Bessastaðasóknar kl. 11 í
Bessastaðakirkju. Jóhann Baldvinsson org-
anisti leiðir sönginn og Helga Björk Jónsdóttir
djákni þjónar fyrir altari.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Kristján
Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari.
Organisti Guðmundur Vilhjálmsson.
(Lúk. 18)
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hof í Öræfum
Orð dagsins: Farísei og
tollheimtumaður.
BUDAPEST Í UNGVERJALANDI
GDANSK Í PÓLLANDI
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir
sínar glæsi byggingar sem margar eru á minjaskrá
Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir.
Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en
baðmenningu Ungverja má rekja hundurðir ára aftur
í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis
menningaráhrif sem gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg
Póllands og þó víða væri leitað. Saga hennar nær aftur
til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún
var helsta vígi Hansakaupmanna i Evrópu. Glæsilegur
arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir
hafa gert borgina við flóann að vinsælustu
ferðamannborg Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Miðaldaborg fra 12 öld. Gamli og nýi tíminn mætast
í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá
árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum
Evrópu.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GLÆSILEGAR BORGIR
Í AUSTUR-EVRÓPU
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir i A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt
3-4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði i mat og drykk.
Þá eru hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum.
Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki
svo og kvöldverði/veislur i höllum, köstulum eða húsum
frá miðöldum
Getum boðið mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo
og íslenskan fararstjóra ef þess er óskað.
Nokkur dæmium borgir semvið bjóðum
uppá