Morgunblaðið - 26.08.2017, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017
✝ Friðbjörn Jón-atansson fædd-
ist 10. janúar 1919
á Nípá í Köldukinn.
Hann lést á Dvalar-
heimilinu Hvammi
á Húsavík 9. ágúst
2017.
Foreldrar hans
voru Guðfinna
Friðbjarnardóttir,
fædd 1891, og Jón-
atan Jónasson,
fæddur 1885. Systkini hans voru
Karl, Sigurbjörg Kristjana, Vil-
borg og hálfsystir Hansína. Þau
eru öll látin.
Friðbjörn ólst
upp í foreldrahús-
um heima á Nípá og
hélt heimili með
foreldrum sínum
þar til þau systk-
inin, hann og Krist-
jana, tóku við búinu
ásamt Karli bróður
sínum og Sólveigu
konu hans.
Haustið 2004
flutti Friðbjörn á
Hvamm.
Útför Friðbjarnar fer fram
frá Þóroddstaðarkirkju í dag,
26. ágúst 2017, klukkan 14.
Friðbjörn, eða Bubbi eins og
hann var oftast kallaður, var
sveitamaður í húð og hár. Hann
var mikill dýravinur en fjár-
mennskan höfðaði þó mest til
hans og var hann mjög fjár-
glöggur. Bubbi minn, oft var ég
með þér í fjárhúsunum, sérstak-
lega um sauðburðinn, það var
uppáhaldstími okkar í sveitinni.
Ég minnist þess þegar við vorum
að lembga, venja undir og stúss-
ast við lambærnar og alltaf áttir
þú brjóstsykur í fjárhúsunum.
Öll haust fór Friðbjörn í göngur
og eftirleitir í Náttfaravíkur
meðan heilsan leyfði og ekki var
hann ánægður ef vitað var að
kindur hefðu orðið eftir. Hann
var léttur á fæti og blés ekki úr
nös fyrr en á efri árum. Alla tíð
átti hann hund og afar náið sam-
band var þeirra á milli og fylgdu
þeir honum eins og skugginn.
Miklum tíma eyddi Bubbi við
að reykja hangikjöt, sperðla, sil-
ung og rauðmaga og mörg voru
sporin í reykingarkofann að
bæta á eldinn. Ættingjar og vinir
nutu góðs af og alltaf smakkaðist
jólahangikjötið vel. Bubbi var af-
skaplega gestrisinn og bauð oft
fólki í kaffi, þá buðu þau systk-
inin gjarnan upp á heimabakað
flatbrauð með reyktum silungi
eða hangikjöti.
Alltaf voru hestar á Nípá og
oft fórst þú með okkur frænd-
systkinin í útreiðartúr og stund-
um var þá tvímennt. Ánægðastur
varst þú ef við krakkarnir vorum
með þér í verkunum. Ferðirnar á
Landrovernum voru margar að
vitja um silung í fljótinu, hreinsa
netin og hreykja taðið og stafla
því í stæðu eða raka dreifar og
snúast við skepnurnar. Stundum
fannst okkur krökkunum nóg um
vinnugleðina. Börnin mín tóku
svo þátt í sumum þessara verka
með þér, Bubbi minn, þegar við
komum í Nípá og oft fengu þau
að fara á hestbak.
Friðbjörn og Kristjana systir
hans fluttu á Dvalarheimilið
Hvamm á Húsavík árið 2004.
Það voru mikil viðbrigði fyrir
gamlan bónda, honum fannst
dagarnir lengi að líða, enda hug-
urinn alla tíð heima á Nípá.
Hann fylgdist alltaf vel með bú-
skapnum og spurði frétta úr
sveitinni meðan heilsan leyfði.
Kristjana lést 5. júní 2016. Þau
Friðbjörn höfðu þá fylgst að alla
tíð og alltaf borið mikla um-
hyggju hvort fyrir öðru. Bubbi
talaði alltaf um að stúlkurnar á
Hvammi væru þeim góðar og
hugsuðu vel um þau systkinin.
Við aðstandendur þökkum
starfsfólkinu fyrir alla vinsemd
og góða umönnun.
Bubbi minn, nú er langri ævi
lokið og gott að fá hvíldina.
Við fjölskyldan þökkum þér
fyrir liðna tíð.
Minningin lifir.
Þín frænka
Bryndís.
Friðbjörn frændi … mig lang-
ar til að minnast þín hér – ég var
svo lánsamur að vera hjá þér og
Stjönu frænku í sveit öll sumur
frá 1974 til 1983. Mjög fljótlega
varð mér ljóst hversu mikill
dýravinur þú varst og sérstak-
lega var íslenska sauðkindin þér
kær. T.d. man ég eftir nokkrum
tilfellum þar sem þú hentir þér
niður fyrir ofan tún og spurðir
mig og hina krakkana, sem
fylgdu þér, hvort við teldum að
kindur mundu ekki hafa gott
skjól undir þessu rofabarði. Á
vorin, oftast í byrjun júní, var féð
rekið út í víkur og það voru í
senn erfiðar og skemmtilegar
ferðir. Farið var á fjöru út í
Naustavík. Í þessum ferðum sá
ég fljótt hversu mikið úthald til
hlaupa þú hafðir, þá kominn á
sjötugsaldur. Þú hafðir mjög
gaman af að bjóða fólki í kaffi og
spurðir þá gjarnan um hversu
langt bændur í öðrum sveitum
væru komnir með heyskap. Líf
þitt og hugur var í sveitinni og
má segja að þú hafir verið barn
náttúrunnar. Þú varst mjög
áhugasamur um veiðiskap og
lagðir gjarnan net í Skjálfanda-
fljótið. Ævinlega var hópur
barna með þér þegar þú fórst að
vitja um en þú hafðir gott lag á
börnum og þau hændust gjarnan
að þér.
Eftir áttrætt fór sjóninni mik-
ið að hraka hjá þér og þú orðinn
mæðinn. En þú dóst nú ekki
ráðalaus og fórst og sóttir kýrn-
ar á hesti, en svo léttur varstu á
þér að þú gast stokkið á bak allt-
af í fyrstu atrennu. Ég á víd-
eóskot þar sem þú hoppar létti-
lega á bak, þá 86 ára gamall. Það
sama sumar skelltir þú þér í
vöðlurnar og vitjaðir um – reykt-
ir silung fyrir mig og kenndir
konunni minni að flaka silung.
Það var í raun ótrúlegt að sjá
hversu duglegur þú varst að
bjarga þér svo sjónskertur sem
þú varst þá orðinn. Síðustu 12
árin dvaldir þú á dvalarheimilinu
Hvammi. Þar sá ég að hugsað
var mjög vel um þig og vil ég
þakka starfsfólkinu þar mikið vel
fyrir að gera dvöl þína eins bæri-
lega og kostur var en óhætt er að
segja að hugur þinn hafi ávallt
verið í sveitinni þótt þú værir
fluttur á Hvamm.
Ég er þess fullviss að þú verð-
ur á þínu nýja tilverustigi, ef
nokkur kostur er, fljótur að finna
þér net til að veiða í og nokkrar
kindur til að annast og jafnvel
reykkofa svo þú getir haldið
áfram að taðreykja silung og
kjöt fyrir ættingja, vini og sveit-
unga. Að endingu vil ég þakka
þér fyrir allar okkar samveru-
stundir. Hvíl í friði.
Kristján U. Nikulásson.
Fallinn er nú frá Fribbinn
okkar og varð hann hvíldinni feg-
inn. Leiðir okkar Fribba lágu
fyrst saman fyrir 38 árum síðan
þegar ég ung að árum kom heim
í Nípá með Kára Karlssyni,
bróðursyni Friðbjörns.
Við fyrstu kynni kom Fribbi
mér undarlega fyrir sjónir.
Hlaupandi um tún og haga eftir
skepnum á gúmmískónum, gelt-
andi og hóandi. Síðar átti ég sjálf
eftir að gera slíkt hið sama á
gúmmískóm. Ég var mikið í fjár-
húsunum með Fribba, sérstak-
lega á sauðburði og líka á haustin
þegar tekið var til sláturfé. Hann
hafði mikinn áhuga á sauðfjár-
rækt og vandaði valdið bæði á
lífgimbrum og hrútum sem settir
voru á.
Fribbi var afskaplega geðgóð-
ur maður og hafði mikla þolin-
mæði gagnvart sonum okkar
Kára. Hann var afi sem hafði
tíma til að lesa bækur, þjóðsögur
og ævintýri. Þau systkinin
Fribbi og Stjana kenndu börn-
unum að spila Gömlu-vist,
Svarta-Pétur og Veiðimann.
Fribbi var mikið náttúrubarn og
tók vel eftir öllum í umhverfi
sínu. Einnig var hann fljótur að
koma auga á ef einhver dýr voru
veik. Hann hafði mikla samúð
með veikum dýrum og sérstak-
lega þeim sem hann kallaði
„aumingja“, en það eru veik-
burða og móðurlaus lömb. Það
var gott að vera heimalningur á
Nípa. Hann fékk sig sjaldan til
að aflífa dýr en stundum var ekki
hjá því komist og varð hann feg-
inn ef Kári tók það verk að sér.
Fribbi var léttur á fæti og
ekki sporlatur. Hann var mjög
heysár og óttaðist mest af öllu að
verða heylaus. Það þótti honum
ekki búmannlegt.
Fribbi hafði mikla ánægju af
reiðtúrum upp í fjall til að hyggja
að kindum. Honum fannst
skemmtilegra að hafa með sér
ferðafélaga og var ómissandi að
hafa nesti í hnakktöskunni sem
Stjana hafði útbúið.
Fribbi hafði mjög gaman af
silungsveiði og var duglegur að
leggja net í Fljótið og fór stund-
um út á sjávarsand til veiða.
Stangveiði átti ekki við hann
enda var oft lítið upp úr þeim
veiðiskap að hafa. Hann reykti
mikið af silungi, kjöti og öðru
matarkyns fyrir heimilið. Voru
þau mjög gestrisin systkinin og
höfðu mikla ánægju af því þegar
fólk kom með eitthvað í reyk. Þá
gaf hann sér örlítinn tíma til að
sitja á skrafi yfir kaffibolla.
Síðustu ár ævi sinnar bjó hann
á Dvalarheiminlinu Hvammi á
Húsavík. Viljum við aðstandend-
ur hans koma á framfæri inni-
legu þakklæti til allra starfs-
manna Hvamms fyrir einstaka
aðhlynningu, hlýhug, og góðs
samskipti þau 13 á sem hann
dvaldi þar. Á engan er orðinu
hallað þó að við þökkum sérstak-
lega Hafliða Jósteinssyni fyrir að
vera vinur Fribba með sínu já-
kvæða og hvetjandi hugarfari,
þinn vinskapur var honum mikils
virði. Friðbjörn og Kristjana
fylgdust að alla sína tíð og voru
það honum nokkuð þung spor að
flytjast á Hvamm þegar hana
þraut heilsu til að halda heimili.
Þó að honum liði þar vel var hug-
urinn alltaf heima á Nípá.
Nú er þinn tími kominn, kæri
vinur, og ég sé þig fyrir mér í
Sumarlandinu, léttan á fæti,
hlaupandi um á gúmmískónum,
geltandi og hóandi við kindur.
Með sjónaukann í annarri hendi
og hund við hælinn. Þar bíða þín
„vinir í varpa“, bæði menn og
málleysingar. Far þú í friði, frið-
ur guðs þig blessi, hafðu þökk
fyrir allt og allt, sem þú hefur
gert fyrir mig, Kára, syni okkar,
tengdadætur og barnabörn.
Kær kveðja,
Hjördís (Dísa) á Nípá.
Friðbjörn
Jónatansson
Elsku Kiddi vin-
ur.
Nú ert þú farinn
hægt og hljótt. Ekki
var alltaf hljótt í kringum þig og
gleðin og sprellið var þér tamt
svo að á mannafundum vissu allir
hver þar fór. Margt var brallað á
unglingsárum okkar, svo sem
veiðiferðir, ekki alltaf með leyfi,
síðar mótorhjólin, þá boxið og
fleira og fleira.
Þú varst foringi í þér, vinsæll
og illt umtal vildir þú ekki heyra.
Það var ánægjulegt og lærdóms-
ríkt að vera samferða þér á lífs-
leiðinni.
Um tvítugt lentir þú í slysi og
þá fór allt á hvolf. Lífið tók aðra
stefnu og þú þurftir að hægja á
þér í bili en með dugnaði og óbil-
Kristján Björn
Hjaltested
✝ Kristján BjörnHjaltested
fæddist 8. sept-
ember 1945. Hann
lést 12. ágúst 2017.
Útför Kristjáns fór
fram 21. ágúst
2017.
andi kjarki tókst
þér að komast á fæt-
ur og taka þátt í líf-
inu eins og þér var
einum lagið. Hes-
taáhugi var mikill
og eignaðist þú
Kröflu, Orku og
fleiri hesta. Það var
með ólíkindum
hvernig þetta gekk
upp hjá þér og fór
ekki á milli mála
hver stjórnaði þar. Það var
ánægjulegt að sjá hvað sonur
þinn Georg stóð þétt við hlið þér í
þessu eins og öðru, nærgætinn og
hugulsamur og þín gæfa að eiga
hann. Þú eignaðist góða og kæra
vinkonu, hana Hlíf, og var sökn-
uður þinn mikill þegar hún féll
frá og fannst okkur þú ekki sam-
ur eftir.
Elsku Kiddi vinur okkar, nú er
komið að leiðarlokum hérna meg-
in og við búumst við þér í mót-
tökunni þegar að okkur kemur.
Innilegar samúðarkveðjur til
Georgs og allra aðstandanda.
Sigurfinnur og Sigríður.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Magnús Sævar Magnússon,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA JÓNSDÓTTIR
frá Hólmavík,
andaðist á líknardeild Landspítalans
laugardaginn 19. ágúst.
Minningarathöfn verður í Háteigskirkju
þriðjudaginn 29. ágúst klukkan 13.
Útförin fer fram frá Hólmavíkurkirkju fimmtudaginn 31. ágúst
klukkan 14.
Jón G. Kristjánsson Steinunn Bjarnadóttir
Steinunn Kristjánsdóttir
Anna Kristín Kristjánsdóttir Hjálmtýr Heiðdal
Svanhildur Kristjánsdóttir
Helga Ólöf Kristjánsdóttir Finn Arve Guttormsen
Valborg Huld Kristjánsdóttir
Reynir Kristjánsson Anna Ósk Lúðvíksdóttir
börn og barnabörn
Elsku sonur minn, stjúpsonur, bróðir og
frændi,
BRYNJÓLFUR EINAR SÆRÚNARSON,
sem lést 16. ágúst, verður jarðsunginn
frá Fríkirkjunni í Reykjavik þriðjudaginn 29.
ágúst klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað,
en þeim sem vildu minnast hans er bent á MS-félagið.
Særún Lisa Birgisdóttir
Ólafur Jóhann Högnason
Sveindís Gunnur Björnsdóttir
Ólafur Kári Ólafsson
Ísold Anja Ólafsdóttir
Ólafur Fenrir Ólafsson
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐJÓN SIGURJÓNSSON
frá Núpakoti, A-Eyjafjöllum,
lést föstudaginn 18. ágúst á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni. Útförin fer fram í kyrrþey
að ósk hins látna, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Umhyggju – félag langveikra barna.
Ástvinir þakka starfsfólki Sóltúns fyrir frábæra umönnun og
alúð.
Ásta Díana Stefánsdóttir
Guðlaug Birna Guðjónsdóttir
Stefán Karl Guðjónsson
Ásta Jóna Guðjónsdóttir Júlíus Þór Sigurþórsson
Sigurjón Þór Guðjónsson Jóhanna Hjálmarsdóttir
Sigurður Þorsteinn
Guðjónsson
Ragnhildur Þórarinsdóttir
Karólína Rósa Guðjónsdóttir Helgi Bjarni Birgisson
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morg-
unblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda
inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar