Morgunblaðið - 26.08.2017, Síða 32

Morgunblaðið - 26.08.2017, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Kæru amma mín Erna og afi Pétur, sem ég ólst upp í húsinu við hliðina á í sveitinni, hafa með örstuttu millibili yfirgefið þetta tilvistarstig. Þau voru einstök hvor á sinn háttinn og í þessu nábýli voru þau einnig uppalendur mínir og félagar allt fram á síðasta dag. Margar skrítnar kenjar og fjálglegan orðaforða minn má að miklu leyti rekja til þeirra. Afi, sem lést í byrjun sum- ars, kenndi mér á píanó í mörg ár og með hans hvatningu (og flissi þegar ég hafði ekki nennt að æfa mig heima) fann ég tón- listina vaxa og dafna í huga mér og hjarta. Hann bar mikla virðingu fyr- ir náttúrunni og sýndi skepnum ávallt mikla umhyggju og alúð og veit ég fátt betra en að kom- ast í sauðburð á vorin og finna rætur mínar heima á Hellum. Afi var einstaklega stríðinn og stal alltaf kartöflunni af diskn- um manns þegar maður var bú- inn að skræla og einhvern veg- inn vissi maður að það væri ekki í boði að stela henni til baka. Amma sem lést núna í lok sumars var mikil fróðleiks- og sagnakona en skemmtilegustu sögurnar að mínu mati voru þær þegar hún hvarf aftur til þess tíma þegar hún var ung í Mývatnssveit. Þær sögur urðu síðar kveikjan að BA-ritgerð- Erna Sigfúsdóttir ✝ Sólveig ErnaSigfúsdóttir fæddist 15. febrúar 1927. Hún lést 12. ágúst 2017. Útför Ernu fór fram í kyrrþey. inni minni í sagn- fræði, en hún fjallaði um lífs- hlaup móður hennar, Sólveigar langömmu í Vog- um. Ég á margar dýrmætar minn- ingar inni í garð- stofu þar sem við drukkum kaffi, jafnvel fengum okkur viskítár, og hurfum saman aftur til fortíð- ar. Amma, sem ég er skírð í höf- uðið á, var mikið náttúrubarn og þekkti flestar plöntur og fugla. Ég var bara pínulítið pons þegar við fórum saman í gönguferðir og hún kenndi mér hitt og þetta en ég hafði bara áhuga á plöntum svo að fugla- kennslan fór eitthvað ofan garðs og neðan og þekki ég varla hrossagauk frá spóa. Hvað þá að ég hafi eitthvað verið að spá í hvernig halti karrinn hefði það. Þekkinguna á ætum íslensk- um jurtum hef ég að mestu varðveitt og ekki er ólíklegt að sjá mig tína hitt og þetta upp í mig úti í náttúrunni, eða safna í te þegar á við. Amma og afi hugsuðu um fólkið sitt og lögðu grunn að samrýndri fjölskyldu. Afleggj- arar þeirra telja yfir 50 manns sem hittast oft á ári og eru bundin böndum vináttu og virð- ingar, gleði og hláturs. Amma og afi kvöddu þennan heim eldgömul og södd lífdaga. Þau voru hvors annars í blíðu og stríðu, stóðu saman eins og tveir hlutar af einni heild og kvöddu þennan heim saman. Hjördís Erna Sigurð- ardóttir frá Hellum. „Með hverju kærleiksverki sem þú vinnur í dag, vefur þú nýjan gullþráð í ábreiðuna sem skýlir þér á morgun.“ Á stutt- um tíma hafa amma mín og afi á Hellum dáið. Þau voru södd ævidaga og kvöddu með þakk- læti. Það er skrítið að hugsa til þess að heil kynslóð sé horfin fjölskyldunni á Hellum. Ysti hringurinn, öryggið sem um- lukti okkur krakkana og frænd- systkinin á Hellum, vakti yfir okkur og verndaði, í leik og starfi, er horfinn eins og hendi væri veifað. Og lífið heldur bara áfram að líða. Eins og lækur, ósvífinn og leikglaður, tær eða gruggugur, rennur áfram og skilur ekki að það á að sýna því virðingu að lífið verður aldrei samt án ömmu og afa á Hellum. En það er ekki hægt að stöðva rennslið, aðeins hægt að njóta hvers augnabliks. Og hringirnir halda áfram að verða til, ég sjálf færist bara of- ar og utan um aðra minni. Og um tíma voru þeir fjórir hring- irnir á Hellum, fjórar kynslóðir sem lifðu saman og tóku þátt í amstri hver annarrar. Það hlýt- ur að vera eins og það gerist best á mannsævi, missa í réttri röð, fæðast og deyja til að lifa til fulls, þar til tími er komin til að kveðja. Kveðja þá þakklátur í friði við sig og sína, líta yfir dagsverkið og láta gott heita. Amma Erna hafði kærleiks- ríka nærveru og lét sig varða um hagi manns og líðan. Við börnin höfðum mikla matarást á ömmu. Hún bakaði gjarnan það sem hverjum fannst best og var gjörn á að halda upp á bæði afmælisdaga og hátíðir. Þá skipti ekki öllu máli hvort fólkið var viðstatt eða ekki. Ég man eftir því þegar ég var með Sig- urrós mína litla á Hellum að amma bauð okkur í volga epla- köku í tilefni af því að mamma og pabbi hefðu átt 25 ára brúð- kaupsafmæli. Þau höfðu þá ver- ið fráskilin um nokkurt skeið. Amma sagði að þetta hefði ver- ið gleðidagur á sínum tíma og svo þyrftu þau ekkert um það að vita. Amma átti svör við flestu og var sjaldan orðlaus en snéri hlutunum eins og best hagaði. Ef ég var viðkvæm þá var það vegna þess að ég var músíkölsk, enda væru þeir oft vitalaglausir sem ekkert fyndu til. Amma sagði oft sögur og hafði lag á að segja hlutina þannig að þeir lifðu innra með manni lengi á eftir. Við hlógum oft saman en sögurnar hennar voru líka þannig að við gátum báðar tárast. Hún notaði dæmi- sögur til að leiðbeina okkur í uppeldinu sem ég skildi ekki fyrr en ég varð fullorðin og fór þá að nota sjálf. Það er nefni- lega svo leiðinlegt að hlusta á beina innrætingu í siðferðismál- um, betra að fá að velja sjálfur. Hjá ömmu og afa á Hellum átti ég minn friðar- og griðastað. Þar var allt best núna. Það er áliðið sumars og skaflinn er horfinn úr hádeg- isgili. Ég anda að mér gróðr- inum. Valmúinn bærist í veg- kantinum, vaggar eins og hann sé búinn að fá sér aðeins neðan í því, og það er hægt að tína sér pínulítil villijarðarber. Blágres- ið og hvönnin minna mig á ömmu. Ég stend úti á palli og geng vestur fyrir hús. Ég horfi á reynitréð sem amma fékk í lít- illi skyrdollu og hlúði að og gnæfir nú yfir allt, svo traust og glæsilegt. Stend svo á tá og teygi mig, til að sjá yfir skjól- beltið, spegilslétt Blundsvatnið. Það er bláhvítalogn. Þegar kvöldar og við bjóðum góða nótt í garðstofunni í hinsta sinn, þá er ég viss um að amma sefur værum svefni, undir ábreiðu sem öll er ofin þráðum úr skíragulli. Þóra Björg Sigurðardóttir. Elsku Erna – fallega, góða móðursystir mín. Nú er hún komin í Sumarlandið, í blóma- brekkuna í faðm Péturs síns, sem er nýfarinn, og Jóns og allra hinna sem taka fagnandi á móti henni. Erna frænka var yndisleg kona, stórbrotin, hlý og traust. Hún notaði enga tæpitungu. Hlutirnir voru kallaðir sínum réttu nöfnum. Allt lék í höndum hennar, innan húss og utan. Það var saumað og prjónað, eldað og bakað af mikilli snilld. Dýrð- legri veislur og gómsætari rétti var varla að finna og aðals- merkið var auðvitað kaniltert- an. Ævintýri líkast var að koma heim að Hellum að sumarlagi, þar sem litla húsið var umlukið gróðri. Eldhúsgluggarnir kíktu út á milli klifurjurta, litadýrð blómstrandi blóma hvert sem litið var. Erna úti á hlaði með opinn faðminn, allir guðvel- komnir. Oft dvöldu hjá henni frændbörn í góðu yfirlæti um lengri eða skemmri tíma. Hún breiddi sig yfir allt og alla. Ótal lömb litu dagsins ljós fyrir hennar lipru hjálpandi hendur og það var kallað í hana af öðrum bæjum þegar ær gátu ekki borið hjálparlaust. Ég var einu sinni þeirrar gleði aðnjót- andi að fá að vera með henni við að hjálpa litlu lambi í heim- inn. Það var ekki mikið lífs- mark með því, en fyrir hlýjar og læknandi hendur Ernu, og smá aðstoð frá mér, tókst að blása lífi í litla skinnið. Dásam- leg lífsreynsla fyrir mig. Þau hjónin voru samhent við búskapinn og ekki síst garð- yrkjuna. Við krakkarnir feng- um að stýfa úr hnefa heilu gúrkurnar, bráðhollar sagði Erna, og glóðvolga tómata beint úr gróðurhúsinu. Við mamma vorum á Hellum meira og minna alveg frá því haustið 1949 þegar hún fór með mig átta mánaða til að vera hjá Ernu systur sinni, sem átti von á fyrsta barni sínu. Síðan höf- um við alltaf verið velkomnar að Hellum. Mamma svaf í litla herbergi inni af stofu, Erna færði systur sinni kaffi og jóla- kökusneið í rúmið og þær áttu notalega morgunstund. Ég man jól á Hellum og jólaskemmtun í Brún. Þegar tímar liðu bættist Pét- ur minn í hópinn og öll börnin, alltaf nóg pláss, fullt hús matar og nóg hjartarúm – gisting á leið suður eða norður, nestuð með tómötum og gúrkum. Töðugjöldin á Hellum voru há- punkturinn. Þetta voru stór- kostlegar veislur þar sem dásamlegir réttir fylltu öll borð. Pétur bóndi settist við píanóið og börnin röðuðu sér í kringum hann og sungu. Þetta voru ógleymanlegir tímar. Við eigum Ernu og Pétri mikið að þakka, fyrir höfðings- skap þeirra, vináttu og hlýju. Erna var mjög bænheit og gott að leita til hennar þegar veikindi eða erfiðleikar steðj- uðu að, hún kveikti á kerti og bað fyrir þeim sem í hlut áttu. Ég kveð þig, elsku Erna mín, með hjartans þökk fyrir alla umhyggju þína í okkar garð og fyrir allar góðu bænirnar þínar. Guð geymi þig. Sólveig Ólöf Jónsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Frændi okkar og mágur, PÉTUR ELÍAS LÁRUSSON, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 2. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fjölskyldan þakkar nágrönnum, ættingjum, vinum og þeim sem önnuðust hann á gjörgæslu og deild 12 E fyrir umhyggju og veitta aðstoð. Aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langmamma, ANNA KJARAN, lést sunnudaginn 6. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Margaríta R. Raymondsd. Magnús J. Sigurðsson Rannveig Raymondsdóttir Magnús Þór Haraldsson Agnes Raymondsdóttir Birgir Þór Karlsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS NIKULÁSSON, húsasmíðameistari og framhaldsskólakennari, Sólvangsvegi 3, lést á Sólvangi í Hafnarfirði 15. ágúst. Jarðarförin hefur þegar farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hulda Alexandersdóttir Hörður Magnússon Margrét Auður Þórólfsdóttir Sigrún Magnúsdóttir Ólafur Haukur Magnússon Elísabet Magnúsdóttir Einar Pétur Heiðarsson Alexander Magnússon Melkorka Otradóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ELÍASAR ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR, fyrrverandi eiganda Nylonhúðunar. Sérstakar þakkir til starfsfólks B-2, taugalækningadeildar Landspítalans, fyrir góða umönnun. Bryndís Guðmundsdóttir Sesselja Svansdóttir Kristín Svansdóttir Tryggvi Svansson og frændfólk Bróðir okkar og mágur, GUNNAR JENS ÞORSTEINSSON, sambýlinu Siglufirði, áður til heimilis að Norðurgötu 9, er látinn. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. september klukkan 15. Páll Þorsteinsson Ragna Pálsdóttir Kristín Björg Þorsteinsdóttir Gunnlaugur Þór Pálsson Hannes Þorsteinsson Sigrún Harðardóttir KJARTAN INGIBERGSSON, elliheimilinu Grund, lést þriðjudaginn 25. júlí. Útför hans fór fram í kyrrþey. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.