Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.08.2017, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign 7.4.2017 - 31.12.2019 HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER Taugafold VII / Nervescape VII 26.5. - 22.10. 2017 PABLO PICASSO - Jacqueline með gulan borða (1962) / Jacqueline au ruban jaune (1962) Langtímasýning COMPARATIVE VANDALISM 26.8. - 21.1.2018 - Heimildaljósmyndir úr verkefni Asgers Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism Sýningarstjóraspjall í Listasafni Íslands sunnudaginn 27. ágúst kl. 14. Jón Proppé ræðir við sýningarstjórann Henrik Andersson. SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017 Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017 Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Fuglarnir, fjörðurinn og landið í Myndasal Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Hugsað heim á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld Spegill samfélagsins 1770 Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi. Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið alla daga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið alla daga frá 10-17. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Sýning byggð á verkefni danska abstraktmálarans Asgers Jorn (1914-1973), Jorn Scandinavian Institute of Comparative Vandalism eða „Skandinavískri samanburðar- stofnun Jorn um skemmdar- verknað“ verður opnuð í í Listasafni Íslands í dag kl. 16. Stofnunin var rannsóknarverkefni sem Jorn vann á 6. og 7. áratugnum og snerist um að finna nýja nálgun á listasögu í fyrirhuguðu 35 binda alfræðiriti að nafni 10.000 ár norrænnar alþýðu- listar. Verkefnið rann út í sandinn þegar ríkisstyrkurinn sem Jorn hafði verið lofað var dreginn til baka þar sem verkefnið var ekki metið svo að það gæti talist fræðiverkefni. Þá hafði Jorn þegar tekið tugþúsundir ljós- mynda sem varðveittust á viðamiklu skjalasafni hans. Úr þessum ljós- myndum samanstendur sýningin á Listasafninu, en sérstök áhersla er á myndir sem Jorn tók þegar hann varði sumrinu 1964 í Gotlandi í Sví- þjóð. Sýnd eru um hundrað kontakt- prent af ljósmyndum Jorn frá Got- landi sem flestar nota ummerki um skemmdarverk sem upphafspunkt. Ögrun og háð „Þessi sýning snýst um að sýna tækni og aðferðafræði Jorn mun frekar en sjálf verk hans,“ segir Henrik Andersson sýningarstjóri. „Við sýnum ljósmyndirnar til þess að gefa fólki tækifæri til að líta á listasöguna frá hans sjónarhorni. Þegar Jorn talar um vandalisma eða skemmdarverknað í þessu samhengi er hann að reyna að ögra fólki og kannski með svolitla hæðni. Ég held að honum hafi fundist spellvirki og skemmdarverk skapandi á sinn hátt; eitthvað sem endurnýtir og ritar yfir upprunalega merkingu listaverks. Jorn reyndi að víkka út skilgrein- inguna á því sem teldist til listar og einnig því sem teldist til listasögu. Þegar hann gekk t.d. inn í miðalda- kirkju kom hann ekki aðeins auga á listaverk eins og ufsagrýlur, högg- myndir og slíkt heldur virti hann líka fyrir sér veggjakrotið sem hann sá. Þá skipti það ekki máli hvort það hefði verið gert í gær eða fyrir 200 árum, listsöguvægið væri hið sama.“ „Jorn var mjög virkur í róttæk- ustu listhreyfingum sinnar tíðar, líkt og situationistum 6. og 7. áratug- arins,“ heldur Andersson áfram. „Þetta voru byltingarsinnaðir, póli- tískt þenkjandi avant-garde-hreyf- ingar sem reyndu í sífellu að breyta gamalli hugtakafræði. Verkefnið hans var bæði ætlað sem alvarleg fornleifa- og listsögurannsókn en meiningin var líka að gera gys að stofnunum og hugtökum í kringum þær. Jorn var sífellt að verja og færa rök fyrir eigin stöðu í listheim- inum.“ Upphafning alþýðulistar Andersson segir að fáein prent- verk eftir Jorn sé að finna á Lista- safni Íslands og að hann hafi tengst landinu á ýmsa aðra vegu; hann hafi til að mynda verið góður vinur Hall- dórs Laxness og hafi einnig verið í sambandi við Selmu Jónsdóttur, fyrsta forstöðumann Listasafns Ís- lands. „Hugtakið alþýðulist skipti Jorn mestu máli,“ segir Andersson. „Al- þýðulist er listgrein sem fyrirfinnst án sérstakra stofnana og er því í beinu sambandi við fólkið sem iðkar hana. Jorn upphóf slíka list og hafði þess vegna líka svo mikinn áhuga á miðaldalist. Í þá daga samsamaði fólk sig myndmáli á allt annan hátt en það gerir nú. Það er áhugavert að líta slíka listsögu með augum list- senunnar frá sjötta og sjöunda ára- tugnum.“ Sýningin verður opnuð klukkan 16 í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrásetning Henrik Andersson sýningarstjóri innan um kontaktprent af ljósmyndum Asgers Jorn. Listasagan frá sjónarhorni Jorn  Sýning byggð á verkefni Asgers Jorn um skemmdarverk á listaverkum verður opnuð í Listasafni Íslands í dag kl. 16 Asger Oluf Jorn var danskur abstraktlist- málari og einn stofnenda avant-garde- listhreyfing- arinnar COBRA sem beitti sér fyrir tjáningarfrelsi með áherslu á liti og pens- ilstrokur. Jorn fékkst einnig við úrklippiverk, myndskreytingar fyrir bækur (m.a. Söguna af brauðinu dýra eftir Halldór Laxness), skúlptúrgerð og veggteppi. Jorn var einn helsti meðlimur alþjóðahreyfingar si- túasjónista, róttækrar fé- lagsbyltingarhreyfingar lista- manna í anda marxisma. Einn stofn- enda COBRA ASGER JORN (1914-1973) Jorn árið 1963. Fyrsti þáttur í þriggja þátta röð Sverris Guðjónssonar, Innrásin í Grjótaþorpið, verður fluttur á Rás 1 í dag kl. 10.10 og ber hann yfir- skriftina Frakkar á faraldsfæti. „Í kjölfar stúdentauppreisnarinnar í París árið 1968 fengu nokkrir Frakkar þá flugu í höfuðið að fljúga með farfuglunum til Íslands. Grjótaþorpið var í niðurníðslu og Reykjavík með það á prjónunum að valta yfir þorpið, leggja hrað- braut í gegn og byggja fleiri Moggahallir. „Silli og Valdi“, matarkeðja þess tíma, áttu mörg hús í þorpinu og treystu ekki Íslendingum til þess að greiða leiguna, sem varð til þess að ungir Fransmenn og aðrir útlendingar voru teknir fram fyrir röðina,“ segir Sverrir í tilkynningu um þættina. „Tvö hús í þorpinu urðu nokkurs konar samkomu- staðir, þ.e.a.s. rauða húsið að Garðastræti 9, sem sl. tuttugu ár hefur verið heimili undirritaðs að Grjótagötu 6, og einnig hið sögu- fræga Vinaminni að Mjóstræti 3. Þessir ungu „farfuglar“ tóku þátt í þeirri húsverndarstefnu sem spratt upp á þessum árum, sem varð til þess að gömlum húsum var bjarg- að og breytti Grjótaþorpi smám saman í nokkurs konar vin í mið- borg Reykjavíkur. Í þessari þáttaröð heyrum við raddir sem spretta fram úr veggj- um húsanna, sumar hafa sest hér að, aðrar eru horfnar á braut, en lifa enn í okkar hjörtum.“ Morgunblaðið/Golli Grjótaþorpssaga Sverrir Guðjónsson fjallar um Grjótaþorpið í í þremur þáttum. Innrásin í Grjótaþorpið hefst í dag Samsýning þriggja listamanna, Söru Oskarsson, Mikaels Colville- Andersens og Jóns Gústafssonar, verður opnuð í dag kl. 15 í List- húsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5. Oskarsson er stjórnmálamaður, Mikael sérfræðingur í borg- arskipulagi og Jón kvikmynda- gerðarmaður, leikstjóri og ljós- myndari og er sýningin því þverfagleg nálgun, yfirskrift henn- ar er Metro-Natura og leitast við að skoða tengsl mannsins við nær- umhverfi sitt, hvort sem um er að ræða náttúruna eða borgina sem hann býr í, eins og segir í til- kynningu. „Listamennirnir skoða þessi svæði frá mis- munandi sjónar- hornum og út frá ólíkum for- sendum, miðlum og fræði- grunnum. Í Metro-Natura skoða listamenn- irnir þessi lífrænu hegðunarmynst- ur sem jafnvel verkfræðin virðist ekki halda í skefjum, heldur brýst oft fram eitthvert grundvallarlög- mál náttúrunnar í hegðun manns- ins og atferli og í samskiptum hans við umhverfi sitt,“ segir þar. Metro-Natura í Listhúsi Ófeigs Jón Gústafsson SWIM! – The story af a river nefnist sýning svissnesku mynd- listarkonunnar Maju Thommen sem opnuð verður í Stykkis- hólmskirkju á morgun kl. 17. Thommen sýnir sjö lágmyndir í kirkjunni en hún hefur starfað að list sinni víða um heim, m.a. hér á landi og kannast eflaust margir við verkið „Rjúkanda“ við Hótel Rjúkanda á Vegamótum á Snæ- fellsnesi. Thommen verður viðstödd opn- unina og mun veita leiðsögn um sýninguna. Saga af á í Stykk- ishólmskirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.