Fréttatíminn - 24.02.2017, Síða 6

Fréttatíminn - 24.02.2017, Síða 6
Lögreglumál Rannsókn ákæru- valdsins í Svíþjóð á aðgerðum Paolos Macchiarinis er flókin og teygir sig til Íslands, Bandaríkj- anna og Tyrklands Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Rannsókn sænsku lögreglunnar á plastbarkamálinu hefur dregist á langinn vegna þess hversu flók­ ið og umfangsmikið málið er. Lög­ reglan hefur þurft að yfirheyra vitni og lækna frá mörgum lönd­ um, meðal annars Íslandi, sem flækir rannsóknina á plastbarkaað­ gerðum ítalska skurðlæknisins Pao­ los Macchiarinis. Hann er grunað­ ur um tvö manndráp af gáleysi og grófa líkamsárás. Frá þessu er sagt í sænska blað­ inu Dagens Nyheter en í máli sak­ sóknarans sem fer með rannsókn málinu, Jennie Nordin, kemur fram að ákæruvaldið í Svíþjóð hafi meðal annars þurft að setja sig inn í flókn­ ar læknisfræðilegar spurningar til að ná utan um málið. „Við höfum yfirheyrt vitni og lækna frá útlönd­ um – frá Íslandi, Bandaríkjunum, Englandi, Tyrklandi og Belgíu, og eigum enn eftir að halda nokkrar yfirheyrslur.“ Einn af sjúklingum hans, Andem­ ariam Beyene, var búsettur á Ís­ landi og fékk græddan í sig plast­ barka vegna krabbameins í hálsi árið 2011 eftir að hafa verið sendur til Karolinska­sjúkrahússins í Sví­ þjóð frá Landspítalanum. Andem­ ariam lést árið 2014 en nú liggur fyrir að engar vísindalegar sannan­ ir lágu fyrir um að ígræðsla plast­ barkans í hann gæti virkað. Frétta­ tíminn hefur sagt frá því að læknir hans á Íslandi, Tómas Guðbjarts­ son, hafi verið yfirheyrður vegna málsins en afar ólíklegt verður að teljast að hann liggi undir nokkrum grun í málinu. Í máli Nordins kemur fram að ef Macchiarini verður ákærður fyrir plastbarkaaðgerðirnar þá verði það í fyrsta lagi með vorinu. Rannsóknin á plastbarkamálinu dregst á langinn Macchiarini er grunaður um tvö manndráp af gáleysi, meðal annars á Andemariam Beyene sem búsettur var á Íslandi. Lögreglurannsóknin á máli hans hefur dregist á langinn í Svíþjóð. 6 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017 Útdregið 90 x200 cm. AUKARÚM HÓTEL OG GISTIHEIMILI! Reynsla – þekking – fagmennska Hafðu samband við söluráðgjafa okkar. VÖNDUÐ HANDKLÆÐASETT Hótelhvítt 450 gsm. BAÐSLOPPAR 100% bómull. HÓTELDÝNUR OG HÓTELRÚM LÖK OG DÝNUHLÍFAR SÆNGUR OG KODDAR MIKIÐ ÚRVAL www.ger.is GER heildverslun Bíldhöfði 20 110 Reykjavik Sími: 558 1111 Netfang: ger@ger.is Facebook felldi meðdómarann Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is Sveitastjórnarmál „Það var gerð út­ tekt hér á fjármáladeild sveitarfé­ lagsins og eftir hana ákvað bæjar­ stjórn að leggja niður starfslýsingu fjármálastjóra og búa til nýja þar sem meðal annars var krafist há­ skólamenntunar. Mér var svo falið að ganga frá starfslokum við hann,“ segir Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð, aðspurður um starfs­ lok fjármálastjóra sveitarfélagsins, Ólafs Þórs Ólafssonar, sem gegnt hafði starfinu í 11 ár og unnið hjá sveitarfélaginu í yfir 20. Aðspurð­ ur um hvort fyrrverandi fjármála­ stjóri hafi ekki verið með háskóla­ menntun segir Gunnar að það hafi verið „langt frá því“. Aðspurður um hvort Gunnar telji að starfsmaðurinn hafi ekki verið hæfur til að gegna starfinu segir hann: „Í úttektinni, sem er trún­ aðarmál, segir að margt þurfi að gera og laga og ákvað bæjarstjórn þetta í kjölfarið.“ Aðspurður um hvort hann hafi lagt línurnar um starfslok fjármálastjórans segir Gunnar: „Ég er náttúrulega fram­ kvæmdastjóri en ég kem ekki með tillöguna á bæjarstjórnarfundi,“ en að bæjarstjórn hafi samþykkt skipulagsbreytingarnar sem fólu í sér starfslok hans. Aðspurður um hvort deilur hafi komið upp á milli Gunnars og Ólafs um starfsemi sveitarfélagsins segir hann að svo hafi ekki verið. Talsverð leynd hefur hvílir yfir starfslokum Ólafs Þórs Ólafssonar í Fjallabyggð og hefur málið vakið umtal á Siglufirði. Trúnaður er yfir tillögu um skipulagsbreytingar sem fólu í sér starfslok hans sem rædd var á bæjarstjórnarfundi í Fjalla­ byggð þann 9. febrúar síðastliðinn, eins og segir í fundargerðinni: „Niðurstaða umfjöllunar og af­ greiðsla bæjarstjórnar er skráð sem trúnaðarmál.“ Þá var bæjarstjórn­ armönnum gert að skrifa undir trúnaðaryfirlýsingu um starfslok Ólafs Þórs. Heimildir Fréttatímans herma að óeining hafi komið upp á milli Ólafs og Gunnars bæjarstjóra, sem áður starfaði sem bæjarstjóri í Kópavogi. Málið hefur valdið deilum inn­ an bæjarstjórnar Fjallabyggðar og eru ekki allir sáttir við með hvaða hætti gengið var starfslokum Ólafs. Starf hans hefur nú þegar verið auglýst með breyttri starfslýsingu á vef Fjallabyggðar og er umsóknar­ frestur til 27. febrúar. Ólafur vill í samtali við Fréttatí­ mann ekki ræða um starfslokin og segir málið vera á viðkvæmu stigi. „Það er mjög viðkvæm staða núna og ég get því miður ekki tjáð mig um þetta. Það getur bara skemmt fyrir mér og ég er bundinn trún­ aði.“ Gunnar segir að hann sé að ganga frá starfslokum Ólafs þessa dagana. Fjármálastjóra Fjallabyggðar sagt upp með umdeildum hætti Fjallabyggð hefur auglýst starf fjármálastjóra laust til umsóknar eftir að fyrr- verandi fjármálastjóra var sagt upp störfum. Gunnar Birgisson bæjarstjóri var hvatamaður að skipulagsbreytingum sem fólu í sér starfslok hans. Gunnar Birgisson var hvatamaður að því að segja upp fjármálastjóra Fjallabyggðar. Uppsögnin var umdeild í bæjarstjórn þó skipulags- breytingar hafi verið samþykktar. Málið hefur vakið mikla athygli í Fjallabyggð en fjármálastjórinn fyrrverandi hafði unnið hjá sveitarfé- laginu í meira en 20 ár. Sakamál Hæstiréttur Íslands ómerkti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í Marple-málinu svo- kallaða og gerir héraðsdómi að endurtaka málsmeðferðina vegna fréttadeilinga meðdómarans, Ásgeirs Brynars Torfasonar, lekt- ors í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, á Facebook. Þeir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr­ verandi forstjóri Kaupþings, Magn­ ús Guðmundsson, fyrrverandi for­ stjóri Kaupþings í Lúxemborg og Skúli Þorvaldsson, eigandi félagsins Marple Holding, voru allir dæmdir til refsingar í málinu. Magnús fékk þyngsta dóminn, eða átján mánuði, en hinir tveir fengu hálft ár hvor. Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrver­ andi fjármálastjóri bankans, var sýknuð. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að Ásgeir hafi ítrekað deilt fréttum af dómsmálum gegn stjórnendum Kaupþings og birti meðal annars mynd af Magnúsi og Hreiðari Má við frásögn um sakfellingu þeirra í dómsmáli. Svo segir Hæstiréttur orðrétt: „Þær tilgreiningar verða ekki skild­ ar á annan veg en þann, að með­ dómsmaðurinn lýsi yfir stuðningi við það, sem fram kom í því efni sem hann tekur upp. Þá lýsir tal hans um „bankabófa“ sem hann viðhafði á árinu 2011 afstöðu hans til stjórnenda bankanna, þar með talið ákærðu.“ Málið er því ómerkt, og fyrirséð að rétta þurfi í málinu á ný. | vg Meðdómarinn deildi meðal annars mynd af Hreiðari Má.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.