Fréttatíminn - 24.02.2017, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017
frítt þrjár máltíðir á dag. Þannig
geta leikmenn verið á fullum laun-
um og einbeitt sér að fótbolta allan
ársins hring. Heimaleikir kvenna-
liðsins eru svo spilaðir á 22 þúsund
manna leikvelli. Karlarnir leika á
62 þúsund manna leikvangi og
að meðaltali koma um 30 þúsund
manns á leikina þeirra. Nú er klúbb-
urinn að byggja nýtt æfingasvæði
sem mun nýtast okkar liði í fram-
tíðinni. Þá verður ekkert til sparað
því þeir vilja gera hlutina eins vel
og hægt er.“
Er áhugi fyrir kvennaknattspyrnu í
Kína?
„Já, hann er að aukast en hann er
ekki jafn mikill og á karlaboltan-
um.“
Mikil breyting varð á Jiangsu
klúbbnum þegar kínverska fyrir-
tækið Suning gerðist aðal styrktar-
aðili hans. „Þeir keyptu líka ítölsku
risana Inter Milan í fyrra og ætla að
gera þá að einu besta liði í Evrópu.
Suning er risafyrirtæki og þar vinna
um 200 þúsund manns, eða álíka
margir og eru á íslenskum vinnu-
markaði. Stefnan hjá þeim er að
verða stærsta fyrirtækið í Kína árið
2020. Fyrirtækið byrjaði á því að
selja loftræstikerfi en er nú á Asíu-
markaði að gera svipaða hluti og
Amazon, Youtube og Walmart, auk
þess að vera umsvifamiklir á fast-
eignamarkaði, fjármálamarkaði og í
netsölu. Þeir eru sem sagt að vasast
í ansi mörgu.“
Sigurður Ragnar segir mikla upp-
sveiflu í kínverskri knattspyrnu.
„Fótbolti hefur verið talsvert mikið
stundaður í Kína en á undanförn-
um árum hafa stórfyrirtæki keypt
flest félögin í kvenna- og karlabolt-
anum og komið inn með gríðar-
legt fjármagn. Uppsveiflan byrj-
aði karlamegin og nú eru þekktir
leikmenn og þjálfarar komnir inn,
líka í næstefstu deildirnar. Það er
vilji hjá Kínverjum til að búa til
sterkar deildir hjá bæði körlum og
konum og koma landsliðum þeirra
í fremstu röð. Þeir hafa fjárfest
gríðarlega í uppbyggingu aðstöðu,
þjálfunar- og knattspyrnuskólum og
ég fullyrði að ekkert land vex jafn
hratt í knattspyrnu og Kína.“
-Var það pólitísk ákvörðun að efla
knattspyrnumenningu í landinu?
„Já, forseti Kína er mikill áhuga-
maður um knattspyrnu. Hann hef-
ur mikinn áhuga á að knattspyrna
fái aukið vægi í skólum og verði
hluti af námskrá bæði hjá strákum
og stelpum. Til stendur að opna
tugi þúsunda knattspyrnuskóla í
landinu á næstunni. Sumir þeirra
verða styrktir af félögum í Evrópu.
Erlend knattspyrnusambönd hafa
líka þjálfað kínverska þjálfara og
spænska knattspyrnusambandið er
með þjálfaranámskeið hér úti, svo
eitthvað sé nefnt. Svo hafa heims-
þekktir þjálfarar tekið til starfa í
kínversku ofurdeildinni.“
Með túlk í öllum samtölum
Sigurður Ragnar segir það hafa
gengið stóráfallalaust fyrir sig að
aðlagast nýjum menningarheimi en
hann hafi þurft að tileinka sér nýjar
starfsaðferðir í mörgu. „Það voru
til dæmis viðbrigði að fara að þjálfa
með túlki, hann endurtekur allt
sem ég segi á kínversku. Öll samtöl
sem ég á við leikmenn þurfa að fara
í gegnum túlk því langfæstar stelpn-
anna skilja ensku. Þetta gengur
ágætlega og samskiptin við klúbb-
inn og mína yfirmenn hafa verið til
fyrirmyndar. Þau vilja byggja upp
klúbb í fremstu röð og hafa reynt
að verða við öllum mínum óskum.
Ég finn mikinn stuðning frá þeim.“
-Hverjar voru þínar kröfur þegar þú
réðst þig inn í þessar heimsklassa að-
stæður?
„Ég vildi kaupa tvo erlenda leik-
menn, framherja og miðjumann.
Þeir samþykktu það. Báðar eru nýir
og frábærir leikmenn. Brasilíska
landsliðskonan Gabriela Zanotti og
norska landsliðskonan Isabell Her-
lovsen sem var samningsbundin við
Lillestrøm. Við þurfum að kaupa
hana þaðan fyrir meiri pening en
nokkur hefur borgað fyrir norskan
leikmann áður. Félagið okkar var
tilbúið að setja peninga í það. Hin
liðin í deildinni hafa einnig keypt til
sín erlendar landsliðskonur og því
stefnir allt í að margir heimsklassa
leikmenn spili í deildinni í ár. Við
megum kaupa einn útlending í við-
bót, en samkvæmt reglunum mega
aðeins tveir útlendingar spila inn á
í einu. Félagaskiptaglugginn er lok-
aður þar til í júlí, þá getum við bætt
við einum í viðbót.“
Undrandi á landsliðsþjálfaranum
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
fyrir nokkrum dögum, reyndi Sig-
urður Ragnar að fá til liðs við sig ís-
lensku landsliðskonurnar Hallberu
Guðnýju Gísladóttur og Dagnýju
Brynjarsdóttur. Freyr Alexanders-
son landsliðsþjálfari greindi svo frá
því á vefnum 433.is að hann hefði
gert leikmönnum landsliðsins grein
fyrir því að samningar við kínversk
félög myndu hafa áhrif á stöðu
þeirra gagnvart landsliðinu. Hall-
bera Guðný og Dagný höfnuðu því
tilboðum frá Sigurði Ragnari, þrátt
fyrir að boðin hafi verið þau hæstu
sem þær hafa fengið á ferlinum.
„Mér finnst fordómar ríkja
á Íslandi gagnvart kínverskri
knattspyrnu. Þeir skína í gegn í
viðtölum til dæmis við Frey Alex-
andersson landsliðsþjálfara, þar
sem hann talar niður styrkleika
kínversku deildarinnar og segir
hana ekkert sérstaka. Allar kín-
versku A-landsliðskonurnar spila í
deildinni og landsliðið hér er 7 sæt-
um ofar en Ísland á heimslistanum.
Einn besti og launahæsti leikmað-
ur í heimi, brasilíska landsliðskon-
an Christiane, mun spila með einu
liði í deildinni í ár. Fleiri sterkar
erlendar landsliðskonur spila í
deildinni. Mér finnst fólk almennt
dæma kínverska knattspyrnu af
einsleitum fréttaflutningi. Eins og
fólk líti þannig á að kínverskir pen-
ingar séu verri en enskir peningar
eða peningar frá öðrum löndum.
Kínverjum er hinsvegar full alvara
með sinni uppbyggingu. Þeir hafa
sett takmarkanir á útlendinga-
fjölda hvers liðs til þess að kín-
verskir leikmenn fái tækifæri til að
þroskast í sinni deild og verða betri.
Mér finnst aðdáunarvert að mörg
af stærstu fyrirtækjum í Kína taka
virkan þátt í að byggja upp karla- og
kvennaknattspyrnu til jafns og ekki
síst barna- og unglingaknattspyrnu.
Ég held að nú standi yfir bylting í
kínverskri knattspyrnu og þeir hafa
langtímamarkmið í huga.
Mér finnst það orka tvímælis
að landsliðsþjálfarinn tali niður
deildina með því að segja að hún
sé ekki fyrir íslenskar knattspyrn-
ukonur og ekki fyrir leikmenn
sem ætli sér að spila í lokakeppni
Evrópumótsins sem er framundan.
Leikmenn sem við vorum í við-
ræðum við, vissu að þær mættu
taka þátt í öllum landsliðsverk-
efnum fyrir Evrópumótið, þó þær
réðu sig til Kína. Mér finnst Freyr
vera á hálum ís með því að segja
að ef leikmenn spili í Kína, þá hafi
það áhrif á val hans í landsliðið. Ég
spyr á móti hvert vandamálið sé
við að spila í kínversku deildinni?
Meirihluti landsliðskvenna spilar í
áhugamannadeild á Íslandi þar sem
keppnistímabilið er styttra, liðin
eru ekki með jafn góða erlenda leik-
menn og leikmenn geta ekki ein-
beitt sér að því eingöngu að spila
knattspyrnu. Er vandamálið hvað
Kína er langt í burtu? Ég ræddi það
við Frey og landsliðskonur sem ég
hafði áhuga á að fá hingað, að þær
myndu ekki missa af undirbúningi
né leikjum á EM. Hvers vegna vill
hann þá ekki að þær spili í Kína?
Eru það fordómar gagnvart kín-
verskri knattspyrnu? Mega konur
ekki þéna vel á sinni knattspyrnu-
iðkun, eins og karlar? Ég minnist
þess að hafa lesið umfjöllun fyrir
stuttu um að íslensk landsliðskona
hefði ekki einu sinni efni á mat.
Það voru þrír íslenskir leikmenn
valdið í karlalandsliðið á meðan
þeir spiluðu í Kína, þeir Eiður Smári
Guðjohnsen, Viðar Örn Kjartansson
og Sölvi Geir Ottesen. Þetta hefur
þótt nógu gott fyrir karlalandsliðið,
hvers vegna er þetta ekki nógu gott
fyrir kvennalandsliðið? Mér finnst
þetta réttlætismál fyrir íslenskar
landsliðskonur.“
Kaupir ekki góðan liðsanda
Að sögn Sigurðar Ragnars vinna
um hundrað manns með félögun-
um þremur, Inter Milan, karla- og
kvennaliði Jiangsu Suning. „Hjá
þeim höfum við aðgang að sérþekk-
ingu í hvíld og endurhæfingu leik-
manna og tæknilegum atriðum sem
varða þjálfun. Þetta er ofboðslega
stórt batterí og við finnum að þeir
styðja hundrað prósent við bakið á
okkur. Ekki eins og hjá sumum fé-
lögum sem þykja kvennaliðin skipta
minna máli og styðja þau bara að
nafninu til. Nú er talað um að fara
með kvennalið okkar í æfingaferð
til Evrópu og það sést á allri um-
gjörð að félaginu er alvara með að
byggja upp topplið.“
-Er hægt að kaupa allt fyrir peninga
til að skapa framúrskarandi lið?
„Ég veit það ekki. Það er hægt að
kaupa góða leikmenn og góða að-
stöðu. En þeir efla ekki sjálfkrafa
hugarfar leikmanna þinna. Þú getur
ekki keypt sigurvilja, liðsmenningu
eða góðan liðsanda. Peningar búa
ekki til leikskipulag og vinnufram-
lag í leikjum. Þannig að það er
margt sem þjálfari þarf að koma inn
hjá liðinu sínu og svo er þetta undir
leikmönnunum komið.“
Sigurður Ragnar gagnrýnir að íslenskir landsliðsmenn megi spila í Kína en ekki
landsliðskonur. Hann reyndi meðal annars að fá landsliðskonuna Hallberu Guð-
nýju Gísladóttur til Kína.
Sigurður Ragnar er vongóður um að vinna kínversku ofurdeildina
með liði sínu í ár.
„Mega konur ekki þéna vel á sinni knattspyrnuiðkun,
eins og karlar? Ég minnist þess að hafa lesið umfjöllun
fyrir stuttu um að íslensk landsliðskona hefði ekki einu
sinni efni á mat.“