Fréttatíminn - 24.02.2017, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017
Grand Indókína
Víetnam, Laos og Kambódía | 14.- 31. okt.
Verð frá: 655.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar.
Á mann m.v. 2 í herbergi.
Verð án Vildarpunkta: 665.900 kr.
Fararstjóri er Héðinn Svarfdal Björnsson.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
„Þarna höfum við Tardis, sem er
tímavélin úr Dr. Who þáttunum,
sem ferðast um tíma og rúm. Og
Abbey Road, Bítlarnir eru að labba
inn í Tardis því mér finnst þeir svo
tímalausir. Ég er bæði mikill Bítla- og
Dr. Who aðdáandi og er ekki hrifin
af því að vera með tattú eins og all-
ir aðrir. Mér fannst þetta ágætisleið
til að koma þessu tvennu til skila,“
segir Helga Dís Björgúlfsdóttir um
húðflúrið sem hún skartar á öðrum
framhandleggnum. Í síðustu viku lét
hún svo bæta við tattúið til að lífga
það aðeins.
„Ég er alltaf hrifnari af því að
hafa tattú í lit en að hafa það svart-
-hvítt. Ég er bara þannig týpa. Svo
þóttu mér Bítlarnir alltaf í hálf lausu
lofti af því það var engin gangbraut
undir þeim. Þannig ég lét bæta við
eldingunni sem var framan í Dav-
id Bowie á Aladdin Sane albúminu.
Ég ákvað að láta setja líka Satúrun-
us, geimflaug, geimskip, vetrarbraut
og einhverjar stjörnur. Þetta á að
vera úti í geimi. Mér fannst vanta þá
tengingu við tímavélina,“ útskýrir
Helga. En áður hafði hún látið bæta
orðinu „Imagine“ við sem hún teikn-
aði upp sjálf.
Tattúið er ekki bara litríkt og
frumlegt, með djúpa merkingu,
heldur er það líka gert í þremur
borgum. Reykjavík, Lissabon og
San Franscisco. Svokallað heims-
borgaratattú, eins og Helga orðar
það.
Hún segir marga hafa hrósað
tattúinu, en þeir sem eru ekki að fíla
það hafa haft sig minna í frammi.
„Þeir sem hafa ekki skoðun sem
er mér í hag hafa þagað. Nokkrir í
vinnunni hafa til dæmis spurt um
tattúið og þegar ég hef sýnt þeim
það þá sé ég á þeim að þau eru ekk-
ert rosa hrifin,“ segir Helga og hlær.
Hún gerir sér grein fyrir því að það
hafa ekki allir sama smekk og þetta
er hennar. „Ég var með „tribal“ tattú
á öxlinni sem ég fékk mér með því
að labba inn á tattústofu og benda á
mynd. Það var alveg agalegt, en ég
er búin að láta hylja það.“ | slr
Helga vill ekki vera
með eins tattú og
einhverjir aðrir.
„Þetta er fyrir alla sem geta haldið
athygli lengur en í eina mínútu.
Þurfa ekki dúndrandi bassa og
vilja heyra einhverja sögu eða til-
finningu í laginu,“ segir tónlist-
armaðurinn Markús Bjarnason
um tónlistina sem verður spiluð á
Reykjavík Folk Festival sem stend-
ur yfir dagana 2. til 4. mars. Mark-
ús er einn þeirra sem koma fram
á opnunartónleikunum en hann
segir mjög fjölbreytta flóru tónlist-
armanna troða upp á hátíðinni.
Allt frá 15 ára stelpum í hljóm-
sveitinni Rugl upp í djasstónlistar-
manninn Tómas R. Einarsson.
„Það er allskonar tónlist sem
passar inn í þennan geira í dag.
Íslensk þjóðlagatónlist er í raun
mjög óljóst hugtak og opið. Við
erum ekki eins og Írar og Skot-
ar sem fóru á fullt í þetta fyrir
nokkrum áratugum. Við erum
ekki með mandólín, fiðlu eða
banjó, sem er eitthvað sér-
íslenskt,“ útskýrir Markús.
Það er einmitt ástæðan fyrir
því að aðstandendur hátíðarinn-
ar nota frekar frekar enska heitið.
„Maður tengir eiginlega „folk
music“ við eitthvað meira en þjóð-
lagatónlist. Maður hugsar strax
bara Krummi svaf í klettagjá þegar
einhver talar um þjóðlagatónlist.
Það er mjög skrýtið hvernig eitt
orð getur haft mismunandi merk-
ingu. Ef þetta myndi heita Hin
íslenska þjóðlagahátíð, þá væri
kannski bara eldra fólk að fara að
mæta, en með því að hafa þetta á
ensku þá verður þetta meira „festi-
val“,“ segir Markús
Fyrir alla sem geta
haldið athygli
Markús segir
hugtakið íslensk
þjóðlagatónlist mjög
óljóst og opið.
Með Bítlana, David
Bowie og Tardis á
handleggnum
Helga Dís kemur ákveðnum
pælingum til skila með litríku
tattúi á framhandleggnum. Hún
veit að það er ekki allra, en hún
er mjög ánægð með útkomuna.
hollur kostur á 5 mín.
Gríms fiskibollur