Fréttatíminn - 24.02.2017, Blaðsíða 30
Á fyrstu vikum barnsins er móðir-
in oft bundin við brjóstagjöf, auk
þess sem hún er að jafna sig eftir
barnsburðinn. Í stað þess að gefa
föt á nýfædda barnið í sængur-
gjöf eru hér nokkrar hugmyndir
að gjöfum sem léttir undir með
mjólkandi móður.
MATARKARFA – Veldu í körfu
hollan mat sem fljótlegt er að
elda. Til dæmis heilhveitipasta og
pestósósu eða tilbúna hollusturétti
sem þarf bara að hita upp. Líka
granólastykki, gulrætur, banana,
hnetur, samlokur, og annan mat
sem hægt er að borða með annari
hendi þegar móðirin situr og gefur
barni á brjóst.
EINANGRAÐ MÁL MEÐ LOKI
OG STÚT – Svo móðirin
geti drukkið heitt kaffi
eða te á meðan hún
gefur á brjóst án þess
að eiga það á hættu að
hella niður á barnið
sjóðandi heitum drykk.
NÁTTSLOPPUR OG INNI-
SKÓR – Kemur að góðum
notum þegar það þarf að
fara fram úr um miðja nótt
til að sinna barninu.
HLJÓÐBÆKUR – Það getur verið
gott að hlusta á hljóðbók á meðan
verið er að sinna barninu, hvort
sem verið er að gefa því
á brjóst, baða eða kúra
með það.
FALLEGT NÆTURLJÓS
– Mild birtan kemur í
veg fyrir að barnið og
foreldrarnir glaðvakni
þegar verið er að sinna
næturgjöfinni.
EYRNATAPPAR OG SVEFN-
GRÍMA – Sumar mæður
eru ofurnæmar fyrir öllum
Matur, eyrnatappar og inniskór
hljóðum sem barnið gefur frá
sér. En móðirin þarf á svefni að
halda og þegar pabbinn stend-
ur vaktina getur verið gott að
hafa eyrnatappa og svefngrímu
við höndina til að heyra síður í
barninu.
Við ætlum að bæta við um 100 síðum og þar mun kenna ýmissa grasa. Ég á ótrúlegt magn af efni sem mig
langar að deila, aðallega frá öðr-
um foreldrum. Síðan bætast nýir
pistlahöfundar og sérfræðingar í
hópinn auk þess sem við munum
leggja meiri áherslu á pabbana og
parasambandið,“ segir Þóra Sig-
urðardóttir um nýja útgáfu For-
eldrahandbókarinnar sem gefin
verður út á næstunni.
Foreldrahandbókin hefur verið
ófáanleg síðustu þrjú árin og hafa
eintök gengið kaupum og sölum
í mömmuhópum og á sölusíðum.
Lengi hefur verið unnið að uppfær-
slu og viðbótum við bókina og hefur
Þóra ákveðið að safna fyrir prentun
og útgáfu á Karólínafund.
„Hópfjármögnun er ótrúlega
sniðugt fyrirbæri, ekki síst þegar
verið er að forselja hlutina eins og
er í þessu tilfelli. Þarna eru vænt-
anlegir lesendur að hjálpa mér að
kljúfa þann mikla kostnað sem
fylgir prentun bókar með því að
kaupa hana í forsölu. Svo erum við
með alls konar sniðugar útfærsl-
ur í boði. Bók og veggmynd, bók
og barnapössun eða bók og heim-
keyrsla. Sú hugmynd kviknaði hjá
mér og vinkonu minni sem vill svo
heppilega til að er móðir tvíbur-
anna sem prýða forsíðu bókarinn-
ar. Okkur fannst þetta mjög sniðug
hugmynd. Að skella sér í húsmæðra-
orlof og rúnta í kringum landið og
keyra keypt eintök upp að dyrum.
Ég sé ekkert nema kostina. Þarna
fæ ég tækifæri til að hitta lesendur
og fara í smá orlof... á húsbíl, með
bestu vinkonu minni. Þetta er pínu
galið en það er aldrei að vita hvað
gerist. Fyndnast væri auðvitað ef
bókin myndi mokast út og ég yrði
marga daga að keyra hringinn. Það
yrði samt góð saga og mögulega
fullkomið sumarævintýri tveggja
húsmæðra á húsbíl,“ segir Þóra.
Hefur margt breyst síðan bókin var
fyrst gefin út?
„Það hefur ótrúlega lítið breyst í
þessum hefðbundnu „foreldrafræð-
um“ frá því að bókin kom fyrst út
enda var hún mjög vel og rækilega
unnin og mjög svo í takt við tíðar-
andann. Mestu breytingarnar sem
ég merki er aðkoma feðranna sem
er sífellt að verða sýnilegri og eðli-
legri. Þeir fá því stærra pláss í nýju
útgáfunni enda þeirra sjónarhorn
og reynsluheimur ótrúlega dýrmæt-
ur. Það má alls ekki gera lítið úr því.
Það er alveg jafn mikið stórmál fyr-
ir karlmann að verða foreldri eins
og það er fyrir konur. Gamlar hug-
myndir um kynjahlutverk hefta
okkur fremur en hitt og koma í veg
fyrir að við blómstrum í hlutverk-
inu en þetta er mikið að breytast
og það er svo ótrúlega góð þróun.“
Þóra hefur haldið úti samnefndri
vefsíðu undanfarin ár og segir hún
af nægum umfjöllunarefnum að
taka.
„Vefsíðan varð til í kjölfar bókar-
innar enda átti ég svo mikið efni og
til mín leituðu svo margir sem vildu
deila sinni reynslu. Ég opnaði því
vefsíðuna og hún hefur alla tíð verð
ótrúlegt fyrirbæri. Þar inni þrífst
ótrúlega fallegt samfélag sem byggir
á hugmyndafræðinni að foreldrar
séu foreldrum bestir. Það er enginn
dæmdur, bara verið að deila góð-
um ráðum og sjálf tek ég þessu öllu
saman temmilega alvarlega. Og það
er svo þakklátt þegar ólíkar radd-
ir heyrast því við erum svo ólík og
upplifum foreldra er svo misjöfn.
Við getum hæglega speglað okkur
í hvert öðru en það getur líka ver-
ið svo hættulegt. Hvað ef hlutirnir
ganga ekki jafn vel hjá okkur og ein-
hverjum öðrum? Erum við þá verri
að einhverju leyti? Það er þetta sem
ég hef leitast við að uppræta. Þessi
samanburður sem á sjaldnast er-
indi. Sjálf hef ég verið dugleg við að
fyrirgefa mér bresti mína en ver-
ið mjög virk í að vera betri. Suma
daga er ég frábær mamma og aðra
öllu síðri. En ef maður er með hug-
ann við efnið, er með sjálfan sig í
stöðugri naflaskoðun og leitast í ein-
lægni við að vera gott foreldri þá er
ekki spurning um að það tekst. Við
þurfum ekki að vera fullkomin –
bara góð.“
Sækir fólk í fróðleik um þessi mál?
„Já. Það er mikill áhugi á þessum
málaflokki – ekki spurning. Börnin
okkar skipa ótrúlega stóran sess í lífi
okkar og við viljum lesa og fræðast.
Þetta vekur forvitni og við tengjum
við reynslu annarra. Þetta er mjög
skemmtilegur hópur í alla staði og
ég er gríðarlega þakklát fyrir hvað
Foreldrahandbókinni hefur verið
vel tekið. Við erum núna með um
20 þúsund notendur í hverri viku
sem er bara frábært held ég... fyr-
ir lítinn fjölmiðill sem rekinn er af
hugsjóninni nánast einni saman.“
Meiri áhersla á
pabbana en áður
Þóra Sigurðar-
dóttir hefur að
undanförnu
unnið að endur-
bættri útgáfu
Foreldrahand-
bókarinnar og
ætlar að safna
fyrir útgáfunni
á Karólínafund.
Mynd | Hari
Þóra Sigurðardóttir undirbýr nýja útgáfu af Foreldrahandbókinni. Bókin
kom fyrst út árið 2010 og hefur verið uppseld í yfir þrjú ár. Hundrað
blaðsíður bætast við nýju útgáfuna og pabbarnir fá stærra hlutverk
enda er reynsluheimur þeirra afar dýrmætur.
2 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017HEILSA MÓÐUR&BARNS
Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300
Difrax vörurnar fást í
völdum apótekum og verslunum,
sjá nánar á /Difrax Ísland
Pelinn sem börnin
og foreldrarnir elska
S-PELINN
VARA ÁRSINS 2017
Í FRAKKLANDI
Tvö Líf Álfheimar 74 Glæsibæ
S:5178500 | www.tvolif.is | /barnshafandi