Fréttatíminn - 24.02.2017, Síða 32

Fréttatíminn - 24.02.2017, Síða 32
Hér eru nokkrar ein-faldar æfingar sem barnshafandi konur geta gert heima án þess að þurfa að fara í æfingagallann eða taka frá sérstak- an tíma fyrir líkamsrækt. Þetta eru styrkjandi æfingar sem geta haft mikið að segja þegar líður á með- gönguna og undirbúa líkamann fyrir þá áreynslu sem fæðingunni fylgir. Æfingarnar bera mestan ár- angur ef þær eru gerðar daglega. Magaæfingar í sófanum Sittu með krosslagða fætur og stuðning við bakið. Leggðu hend- urnar á magann. Haltu bakinu og öxlunum kyrrum á meðan þú andar inn í gegnum nefið um leið og þú þenur út magann. Andaðu út um munninn um leið og þú dregur magann inn, ýttu naflanum inn í átt að bakinu. Styrkir maga- og grindarbotnsvöðva. Hnébeygjur á meðan tennurnar eru burstaðar Stattu bein, með axlabreidd á milli fóta. Haltu í borðbrún eða í vaskinn til að missa ekki jafnvæg- ið. Beygðu þig í hnjánum eins og þú ætlir að setjast og gættu þess að lyfta ekki hælunum upp af gólfinu. Gerðu að minnsta kosti fimm hné- beygjur á hverjum degi. Axlir styrktar á meðan þú horfir á sjónvarpið Sittu bein í baki með fæturnar á gólfinu. Hafðu axlirnar slakar. Dragðu axlirnar aftur um leið og þú klemmir saman herðablöðin. Ímyndaðu þér að þú sért að halda á litum bolta á milli herðablað- anna. Haltu spennunni í nokkrar sekúndur. Endurtaktu 10 sinn- um. Þetta bætir líkamsstöðuna og styrkir vöðva sem reynir á þegar þú ert með barn á brjósti. Styrkir bakvöðva. Líkaminn undirbúinn Æfingar sem falla að hversdagsleikanum Guðrún Jónasdóttir er verslunarstjóri í Móðurást og hafsjór af fróðleik og allt sem snertir móður og barn. Allar nánari upplýsingar m á finna á www. modurast.is. 4 FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2017HEILSA MÓÐUR&BARNS Unnið í samstarfi við MS. Næring ungbarna er einstaklega mikilvæg og skiptir miklu máli til að þau dafni vel. Fyrstu mánuðirnir eru tiltölulega einfald- ir að þessu leyti, en fylgi barnið sinni vaxtarkúrfu og sé vært dugir móðurmjólk og/eða rétt blönduð þurrmjólk því vel. Í kringum sex mánaða aldur- inn fer barnið að kynnast nýjum fæðutegundum og smám saman byrjar það að borða fjölbreyttan mat með öðru heimilisfólki. Sam- fara þessu tímabili kynna margir foreldrar stútkönnu fyrir börnun- um og þá er gott að gefa börnun- um vatn og Stoðmjólk við þorsta og með mat. Stoðmjólk er unnin úr íslenskri kúamjólk og mælt er með notk- un hennar í stað nýmjólkur fyrir börn frá sex mánaða til tveggja ára aldurs. Stoðmjólkin var þróuð af MS að beiðni og í samvinnu við samstarfshóp um næringu ung- barna á vegum Manneldisráðs, Landlæknisembættisins, barna- lækna við Landspítalann, félags barnahjúkrunarfræðinga og félags heilsugæsluhjúkrunarfræðinga. „Við framleiðslu hennar er tekið sérstakt tillit til næringarþarfa ungra barna og hún er líkari móð- urmjólk að samsetningu en venju- leg kúamjólk. Stoðmjólk hefur lægra próteininni- hald en kúamjólk en það, ásamt járnbætingu Stoðmjólkur, hefur já- kvæð áhrif á járnbú- skap barna sem er viðkvæm- ur á þessu aldurs- skeiði,“ segir Björn S. Gunnars- son, vöru- þróunar- stjóri MS. „Enn frem- ur er bætt í Stoðmjólk C-vítamíni sem örvar járnupptöku og sérstaða Stoðmjólkurinnar umfram erlendar þurrmjólkurblöndur er að hún er tilbúin til drykkjar og próteinsamsetningin í henni er æskilegri en í þurrmjólkurafurð- um,“ bætir Björn við. Nýjustu rannsóknir hafa sýnt að íslenska Stoðmjólkin hefur haft jákvæð áhrif á járnbú- skap í aldurshópnum 6 mánaða til tveggja ára og mælist hann nú mun betri en áður. Hún er seld í 500 ml fernu sem talin er hæfilegur dagskammtur af mjólk og mjólkur- mat þegar barnið er farið að borða úr öllum fæðuflokkum. Stoðmjólk hentar vel samhliða brjósta- gjöf en mælt er með áframhaldandi brjóstagjöf svo lengi sem hugur stendur til hjá móður og barni. Hentugur og hollur valkostur fyrir barnið þitt Stoðmjólk er líkari móðurmjólk að samsetningu en venjuleg kúamjólk. Aukin áhersla á netverslun Móðurást er verslun sem sérhæfir sig í öllu sem viðkemur móður og barni. Unnið í samstarfi við Móðurást Við leggjum mikla áherslu á þarfir ungra mæðra og að þær séu ánægðar með þá þjónustu sem Móðurást býður upp á. Því höfum lagt aukna áherslu á netverslunina,“ segir Guðrún Jónasdóttir, verslunar- stjóri í Móðurást. Móðurást er sérverslun sem leggur áherslu á allt sem viðkemur móður og barni. Þar er einstaklega gott úrval af vörum sem eru ætlaðar mæðrum og börnum þeirra. Móðurást rekur einnig glæsi- lega vefverslun sem er eina elsta vefverslun landsins og hefur verið á vefnum síðan 2002 og fagnar því 15 ára afmæli í ár. Vefversluninni er mjög aðgengi- leg og úrvalið glæsilegt og þar er opið allan sólarhringinn. Einnig er verið að taka upp þá nýjung að í vefversl- uninni verður enn meira úrval og bæði verður hægt að sækja þær vörur sem eru sérmerkt- ar „aðeins í vef- verslun“ í búðina þegar tölvupóstur er kominn um að pöntun sé tilbúin til afhendingar eða fá sent heim með Íslandspósti. Að sögn Guðrúnar er lögð aukin áhersla á vefverslunina þar sem Guðrún skynjar aukna eftirspurn eftir þeirri þjónustu þar sem mæð- ur eru oft bundnar heima við með börn sín. Úrvalið í Móðurást hverfist ekki bara um brjóstagjöf og mjaltavélar þó að þjónustan í kringum hvort tveggja sé afar fjölþætt. Þar er að finna mikið úr- val gjafavöru, burðarpoka fyrir krílið, Silvercross vagna og aðrar Silvercross vörur. Einnig eru mjög vinsælir gamaldags ullarnærbol- ir á börn frá fæðingu til sjö ára, framleiddir á Íslandi úr einstaklega mjúkri ull. En þær vörur sem eru einna vin- sælastar er fatnaður fyrir mjólk- andi mæður. Þegar konur eru með barn á brjósti skiptir miklu máli að vera í þægilegum fatnaði sem auðveldar aðgengi að brjóstunum. Guðrún leggur áherslu á að úrval gjafahaldara og gjafafatnaðar sé eins og best verður á kosið. Einnig hefur búðin verið vinsæl meðal kvenna sem nota sérlega stórar stærðir og gjafahaldara, allt upp í skálastærð K. Allar nánari upplýsingar má finna á www.modurast.is.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.