Fréttatíminn - 28.01.2017, Síða 2
2 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 28. janúar 2017
Í gærkvöldi hófst skráning stofnfélaga að Frjálsri fjölmiðl-un, sem ætlað er að styðja óháða blaðamennsku á Ís-landi, í fyrstu sem bakland
Fréttatímans. Þótt hugmyndin sé
óvanaleg, að fara þess á leit að fólk
styðji ritstjórn á fríblaði til góðra
verka, voru undirtektirnar sterkar.
Góður hópur fólks skráði sig strax
og síðan hefur stofnfélögum fjölgað
jafnt og þétt. Það er auðsjáanlega
bæði skilningur á málinu og vilji til
þess í samfélaginu að styrkja óháða
blaðamennsku. Blaðamennska er
mikilvæg í samfélaginu og fær ekki
staðist nema með stuðningi fólks.
Fjársterkir fjölmiðlar í einka-
eigu sem veittu almannaþjónustu
settu afgerandi mörk sín á samfélög
Vesturlanda á seinni hluta síðustu
aldar. Í gegnum þá voru dregin
mikilvæg álita- og ágreiningsmál.
Fjölmiðlar með mikla útbreiðslu
gættu almannahags gegn ásókn
sérhagsmuna og settu vit í Vestur-
lönd, bæði sem þátttakendur og
sem vettvangur. Veiking fjölmiðla á
síðari árum hefur ýtt undir sundr-
ungu. Það er orðið óljósara hvaða
mál eru á dagskrá, hvernig um þau
skuli fjallað og hvort byggja eigi á
staðreyndum eða staðleysu.
Hér á Íslandi er ástandið slæmt
af sérstökum ástæðum. Frá Hruni
hafa allir stóru einkamiðlarnir ver-
ið dregnir inn í fyrirtæki sem rekin
eru af sérhagsmunahópum og þeim
sem vilja sveigja umræðuna að sín-
um hagsmunum. Það er voveiflegt
ástand.
Og ein helsta ástæða þess að
Fréttatíminn leitar til almennings
um að halda úti frjálsri og óháðri
blaðamennsku í blaði með mikla
útbreiðslu.
Gunnar Smári
GÓÐ BYRJUN
Vorgleði í Portoroz
sp
ör
e
hf
.
Vor 6
Náttúran í kringum Bled vatn er hrífandi fögur og lætur
engan ósnortinn. Í ferðinni siglum við út í eyjuna Blejski
otok, höldum til Izola og Piran, heimsækjum hafnarborgina
Koper í Slóveníu, dropasteinshellana í Postojna og bæinn
Porec í Króatíu. Að endingu skoðum við okkur um í
München, einni aðal menningar- og listaborg Þýskalands.
27. apríl - 7. maí
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 209.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Heilbrigðismál Starfsmenn vel-
ferðarráðuneytis unnu hörðum
höndum að því að flytja í gær, en
eins og sést á meðfylgjandi mynd
voru flutningarnir óvanalegir þar
sem starfsfólk þurfti að gæta þess
að myglusveppur fylgdi þeim ekki
yfir í nýtt húsnæði.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
Myglusveppur er í húsnæðinu en
upp komst um sveppinn árið 2013.
Allnokkrir starfsmenn hafa meðal
annars ekki getað starfað í húsinu en
síðustu mánuði hafa þeir verið með
starfsstöð í Borgartúni í Reykjavík.
Mikið hreinsunarstarf fylgdi
flutningunum en að sögn Margrét-
ar Erlendsdóttur, upplýsingafull-
trúa ráðuneytisins, var fylgt eftir
aðgerðaáætlun verkfræðistofunnar
Eflu, undir leiðsögn Sylgju Daggar
Sigurjónsdóttur, líffræðings og
eins helsta sérfræðings í myglu í
húsum.
Einn starfsmaður ráðuneytis-
ins, Rósa Guðrún Erlingsdóttir, tók
meðfylgjandi mynd þar sem starfs-
maður sést úða frostefni á fartölv-
una hennar. Ástæðan mun vera sú
að sveppurinn getur lifað góðu lífi
í raftækjum. Eins eru skjöl og ann-
að sem til þarf hreinsað til þess að
fyrirbyggja að sveppurinn skjóti
rótum í nýju húsnæði.
Ljóst er að sveppurinn er um-
fangsmikill og hreinsunarstarf
mikið þar sem starfsmenn þurfa
meðal annars að klæðast hlífðar-
fatnaði en auk þess eru starfsmenn
sem sinna hreinsunarstörfum.
Stefnt er á að ráðuneytið flytji í
varanlegt húsnæði innan tíðar en
óljóst hvenær það verður. Þó er
ljóst að ráðuneytið verður flutt að
mestu fyrir mánaðamótin í hús-
næðið í Skógarhlíð þar sem sýslu-
maðurinn í Reykjavík var áður til
húsa.
Börðust við myglusvepp í miðjum flutningum
Starfsmaður sprautar frostefnum á
fartölvu Rósu Guðrúnar Erlingsdóttur.
Agnes M. Sigurðardóttir bisk-
up segir að kirkjur hafi oft verið
seldar og það sé engin nýlunda.
Viðskiptaráð vill að ríkissjóður
selji 22 kirkjur í eigu ríkisins. Þar
af eru sex í umsjá Þjóðminjasafns
Íslands.
Biskup bendir á að sóknarnefnd-
ir landsins sem telji um eitt
hundrað einstaklinga beri ábyrgð
á rekstri og viðhaldi þessara
bygginga. Það sé erfitt að sjá að
söfnuðir eigi að kaupa hús sem
þeir hafa viðhaldið og rekið um
árabil, kannski frá upphafi. Það
sé hins vegar full ástæða til að
skoða hvernig þessum menningar-
verðmætum verði komið fyrir í
framtíðinni í framhaldi af skýrslu
Viðskiptaráðs. | þká
Biskup segir að
kirkjur hafi oft
verið seldar.
Engin nýlunda að selja kirkjur
Þjóðkirkjan
Landbúnaður
Þorgerður Katrín
vísar Ögmundi
úr nefnd um
búvörusamninga
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
nýr sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra hefur látið Ögmund
Jónasson, fyrrverandi alþingis-
mann víkja úr nefnd sem átti að
endurskoða nýgerða búvörusamn-
inga með hliðsjón af framtíð land-
búnaðar á Íslandi. Ögmundur segist
líta á brottreksturinn úr nefndinni
sem viðurkenningu en ný ríkis-
stjórn sé fyrst og fremst ríkisstjórn
verslunarinnar og þá sérstaklega
stóru verslunarkeðjanna; þeirra
sem dregið hafa til sín gríðar-
lega fjármuni í arð á sama tíma og
landbúnaðurinn,
sérstaklega sá
hluti hans sem
byggir á sam-
vinnurekstri,
hafi skilað raun-
lækkun til neyt-
enda.
| þká
Ögmundur segist
líta á brott-
reksturinn sem
viðurkenningu.
Heilbrigðismál Óttarr Proppé
segist ekki hafa haft ráðrúm til að
mynda sér skoðun á sjúkrahúss-
rekstri einkafyrirtækisins
Klíníkurinnar. Óljóst er út frá
svörum hvaða skoðun hann hefur
á einkarekstri í heilbrigðiskerf-
inu. Birgir Jakobsson landlæknir
segir að ákvörðunin um einka-
rekstur sjúkrahúsa sé pólitísk og
að hann tjái sig ekki um hana að
svo stöddu.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
hefur ekki myndað sér skoðun á því
hvort hann sé fylgjandi eða mótfall-
inn því að einkarekna heilbrigðis-
fyrirtækið Klíníkin opni sjúkrahús
í húsnæði sínu í Ármúlanum. Í svari
frá Óttarri kemur fram að honum
hafi ekki gefist tími til þess að setja
sig inn í málið enn sem komið er.
Heilbrigðisráðherra veit því ekki
hvernig hann mun bregðast við
þeirri tilraun Klíníkurinnar að opna
sjúkrahúsið. „Það hefur ekki verið
tekin nein afstaða til málsins,“ segir
í svari Óttarrs.
Eins og komið hefur fram hef-
ur embætti landlæknis staðfest að
umsókn Klíníkurinnar um að opna
fimm daga legudeilld og fram-
kvæma meðal annars bæklunar-
skurðaðgerðir eins og mjaðmaskipti
sem fela í sér nokkurra daga inn-
lögn. Um er að ræða sjúkrahúss-
þjónustu og sjúkrahússrekstur og
yrði opnun deildarinnar söguleg
að því leytinu til að slíkur rekstur
hefur ekki verið utan ríkisrekinna
sjúkrahúsa á Íslandi. Því er um
ákveðna eðlisbreytingu í heilbrigð-
isþjónustu á Íslandi að ræða.
Í svari Óttarrs kemur fram að fyr-
ir kosningarnar í haust hafi hann
sagt að hann styðji fjölbreytt rekstr-
arform í heilbrigðisþjónustu: „Ég
sagði í kosnintgabaráttunni að þótt
við styddum fjölbreytt rekstrarform
þá væri engin sérstök áhersla á að
auka hlut einkaaðila. En við höf-
um ekki skipulega staðið á móti
fjölbreyttu rekstrarformi, eins og
verið hefur í gegnum árin og ára-
tugina. Við vinnum að því að efla
heilbrigðiskerfið yfir höfuð en það
stendur ekki til að þar verið nein
formbreyting eða sérstakt átak í
einkarekstri.“
Út frá þessu svari Óttarrs er
ómögulegt að átta sig á skoðun
hans í málinu þar sem hann telur
sig þurfa meiri tíma til að mynda
sér hana. Óttarr svarar heldur ekki
almennari spurningu Fréttatímans
um hvað honum finnist um einka-
rekstur í heilbrigðiskerfinu almennt
séð.
Birgir Jakobsson landlæknir segir
að hann vilji ekki tjá sig um hvaða
skoðun hann hafi á opnun legu-
deildarinnar; hans embætti hafi
staðfest að hugmynd Klíníkurinn-
ar uppfylli faglegar kröfur. „Ég segi
ekki mína skoðun eins og sakir
standa, þetta er pólitísk ákvörðun
alfarið. Ég er ráðgjafi ráðherra og ef
hann vill heyra hvað mér finnst þá
mun ég bara segja það við hann. Ég
hef enn ekki hitt ráðherra. Það er
ekkert óeðlilegt að hann vilji heyra
hvað fólki finnst um þetta áður en
hann tjáir sig. Mér finnst það vera
styrkleikamerki,“ segir Birgir.
Eins og kom fram í Fréttatíman-
um á föstudaginn er Páll Matth-
íasson, forstjóri Landspítalans,
mótfallinn opnun einkarekna
sjúkrahúss Klíníkurinnar þar sem
opnun þess geti grafið undan starf-
semi Landspítalans.
Óttarr Proppé
heilbrigð-
isráðherra
stendur frammi
fyrir erfiðri
ákvörðun á
fyrstu vikum
sínum í starfi.
Hann þarf
að ákveða
hvort hann
sé fylgjandi
einkarekstri
sjúkrahúsa eða
ekki. Óttarr hef-
ur ekki myndað
sér skoðun á
málinu að svo
stöddu.
Ráðherra hefur ekki
myndað sér skoðun á
einkarekstri sjúkrahúsa