Fréttatíminn - 28.01.2017, Page 16
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSTUND!
HÆGELDAÐ LAMBALÆRI
MEÐ RÓSMARÍN OG HVÍTLAUK
Sykurbrúnaðar kartöflur
„Crispy“ kartöfluteningar
með rósmarín og hvítlauk
Heimalagað rauðkál
Pönnusteiktir blandaðir sveppir
Ofnbakaðar gulrætur
Grænar baunir með myntu
Maís
Bjór- hollandaisesósa
Sveppasósa
Aðeins framreitt fyrir allt borðið.
ALLA SUNNUDAGA
FRÁ 12–14.30
SUNNUDAGS
LAMBALÆRI
með öllu tilheyrandi
2.900 kr. á mann
Leikhús
hversdagsins
Lautarferð Allaballa vorið 1986
Bókaverslun Ísafoldar um 1969
Þessa mynd tók Jóhanna í gegnum gluggann á bókabúð-
inni, á leið sinni heim seint um sumarkvöld.
Mannlíf í Austurstræti 1986
Á þessum tíma var heilmikið mannlíf í miðbænum, „og
ekki enn búið að útrýma þaðan gömlu fólki,“ bendir
Jóhanna á. „Allskonar fólk að hanga og gera ekkert, líkt og
þessar eldri konur á spjalli.“
Kona í Austurstræti 1970
Á þessum tíma notaði allskonar fólk strætó og nánast
allir vagnar fóru í gegnum miðbæinn svo þangað lá alltaf
straumur fólks.
Uppboð í tollinum 1985
Það var mikið um að vera í skúrnum við tollhúsið í Borgartúni þar
sem múgur og margmenni komu saman í leit að hverskyns óvænt-
um gersemum úr tollinum.
Jóhanna segist sjaldan hafa farið í jafn
leiðinlegt ferðalag og þessa lautarferð
á gráum vordegi. Um leið og hún fór
að mynda það sem fyrir augu bar varð
ferðin þó skemmtilegri og má segja
að útkoman sé skemmtilega undarleg,
ekki síður en hún er frábær heimild um
hina deyjandi athöfn að keyra út fyrir
bæinn með teppi, hitabrúsa og nesti í
gamalli Macintosh dollu.
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 28. janúar 2017