Fréttablaðið - 01.02.2018, Side 26
körfubolti Ívar Ásgrímsson, þjálf-
ari íslenska kvennalandsliðsins í
körfubolta, hefur valið hópinn fyrir
næstu tvo leiki í undankeppni EM.
Ísland mætir Bosníu í Sarajevo 10.
febrúar og Svartfjallalandi í Podgo-
rica fjórum dögum síðar. Ísland er
án stiga eftir tvo fyrstu leiki sína í
B-riðli undankeppninnar.
Einn nýliði er í íslenska hópnum;
Rósa Björk Pétursdóttir, leikmaður
Hauka, sem eiga alls fjóra fulltrúa í
hópnum að þessu sinni.
Fimm leikmenn gáfu ekki kost á
sér: Ragna Margrét Brynjarsdóttir,
Thelma Dís Ágústsdóttir, Hallveig
Jónsdóttir, Embla Kristínardóttir
og Birna Valgerður Benónýsdóttir.
Íslenski hópurinn er þannig skip-
aður: Helena Sverrisdóttir, Dýrfinna
Arnardóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir
og Rósa Björk Pétursdóttir (Hauk-
um), Sóllilja Bjarnadóttir og Isabella
Ósk Sigurðardóttir (Breiðabliki),
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir og Guð-
björg Sverrisdóttir (Val), Berg lind
Gunnarsdóttir (Snæfelli), Sigrún
Sjöfn Ámundadóttir (Skallagrími),
Sandra Lind Þrastardóttir (Hors-
holm, Danmörku) og Hildur Björg
Kjartansdóttir (Legonés, Spáni). – iþs
Rósa Björk Pétursdóttir, nýliði í
landsliðinu. FRéttaBlaðið/ERniR
Fimm gáfu
ekki kost á sér
fótbolti Í gær bárust fréttir af því
að Böðvar Böðvarsson væri genginn
í raðir pólska úrvalsdeildarliðsins
Jagiellonia Białystok frá FH. Nokkuð
óvænt félagaskipti en Pólland hefur
ekki verið algengur viðkomustaður
íslenskra fótboltamanna.
„Þetta varð að alvöru dæmi í
vikunni. FH spurði mig hvort þetta
væri eitthvað sem ég hefði áhuga
á. Eftir að ég kannaði liðið var ég
meira en tilbúinn að skoða þetta,“
segir Böðvar í samtali við Frétta-
blaðið.
Hann fer utan á sunnudaginn,
í læknisskoðun daginn eftir og ef
allt gengur að óskum skrifar hann
undir þriggja og hálfs árs samning
við Jagiellonia Białystok.
Liðið situr í 4. sæti pólsku úrvals-
deildarinnar með 36 stig eftir 21
umferð, tveimur stigum á eftir Legia
Varsjá. Í pólsku deildinni eru 16 lið
sem spila við hvert annað, heima
og að heiman. Eftir 30 umferðir
fara átta efstu liðin í úrslitakeppni
um pólska meistaratitilinn og átta
neðstu liðin keppa sín á milli um
að forðast fall í næstefstu deild.
Liðin mætast einu sinni í úrslita-
keppninni og því leikur hvert lið 37
deildarleiki á hverju tímabili.
Jagiellonia Białystok var í efsta
sæti pólsku deildarinnar eftir fyrstu
30 umferðirnar á síðasta tímabili
og endaði að lokum í 2. sæti á eftir
Legia Varsjá. Liðið er því sterkt.
„Ég held að þetta sé mjög stórt og
gott skref fyrir mig,“ segir Böðvar
sem fékk nasaþef af atvinnu-
mennskunni þegar hann var á láni
hjá Midtjylland í Danmörku í þrjá
mánuði veturinn 2015-16. Hafn-
firðingurinn náði þó ekki að spila
leik með danska liðinu.
„Ég er kannski að fara í allt annað
dæmi þarna úti í Póllandi en Dan-
mörku. Það verður bara að koma
í ljós,“ segir Böðvar. Að hans sögn
hefur draumurinn alltaf verið að
spila sem atvinnumaður. „Þetta
hefur verið draumur síðan maður
byrjaði að æfa. Það er ótrúlega
jákvætt að vera kominn með fyrsta
alvöru atvinnumannasamninginn.“
Böðvar er uppalinn FH-ingur og
hefur verið í stóru hlutverki hjá
Fimleikafélaginu undanfarin ár.
Hann hefur leikið 73 leiki með FH
í Pepsi-deildinni og varð Íslands-
meistari með liðinu 2015 og 2016.
Sem kunnugt er tók Ólafur Krist-
jánsson við þjálfun FH í vetur af
Heimi Guðjónssyni sem hafði þjálf-
að liðið í áratug. Böðvar viðurkennir
að það hafi verið erfitt að yfirgefa
FH á þessum tímapunkti.
„Ég er mjög spenntur fyrir því sem
er að gerast hjá FH. En ég tel að besta
leiðin til að bæta sig sé að spila í sem
bestri deild og þess vegna vonaðist
ég til að komast út. Auðvitað verður
erfitt að horfa á strákana spila í
sumar,“ segir Böðvar sem verður 23
ára í apríl.
Hafnfirðingurinn var lykilmaður
í U-21 árs landsliði Íslands á sínum
tíma og á að baki fjóra leiki fyrir
A-landsliðið. Sá síðasti þeirra var í
Indónesíuferðinni í síðasta mánuði.
Böðvar vonast til að landsleikjunum
fjölgi eftir vistaskiptin til Jagiellonia
Białystok.
„Ég get alveg sagt að ég væri ekki
að fara út ef landsliðið væri ekki
markmiðið hjá mér. Annars væri ég
bara heima. Ég tel mig geta spilað
með landsliðinu í framtíðinni og
taldi þetta mjög gott skref til að
komast í það,“ segir Böðvar að
lokum. ingvithor@frettabladid.is
Ekki að fara út ef landsliðið
væri ekki markmiðið hjá mér
FH-ingurinn Böðvar Böðvarsson er á förum til Jagiellonia Białystok, eins sterkasta liðs pólsku úrvalsdeildar-
innar. Hafnfirðingurinn er spenntur fyrir vistaskiptunum og vonast til að þau hjálpi sér að festa sig í sessi í
íslenska landsliðinu. Böðvar viðurkennir að það hafi verið erfitt að yfirgefa FH sem stendur á tímamótum.
Böðvar fagnar í leik með FH í Pepsi-deildinni í fyrra. FRéttaBlaðið/ERniR
Eftir að ég kannaði
liðið var ég meira en
tilbúinn að skoða þetta.
Böðvar Böðvarsson
Aftur mættur í Valstreyju
Snorri Steinn Guðjónsson lék í gærkvöld sinn fyrsta leik í treyju Vals síðan 2003. Snorri sneri aftur á Hlíðarenda fyrir tímabilið og einbeitti sér
að þjálfun Valsliðsins fyrir áramót en er nú mættur aftur á gólfið. Endurkoma Snorra var líklega ekki eins og hann hafði vonast eftir en læri-
sveinar hans lutu í gras á heimavelli gegn Selfossi, 29-34, eftir að hafa verið yfir framan af. Snorri skoraði eitt mark. FRéttaBlaðið/antOn BRinK
Pierre-Emerick aubameyang í
búningi arsenal. nORdicPHOtOs/gEtty
Kapallinn sem
gekk upp
fótbolti Arsenal gerði gabonska
framherjann Pierre-Emerick Auba-
meyang að dýrasta leikmanni í sögu
félagsins þegar það keypti hann frá
Borussia Dortmund á 56 milljónir
punda á lokadegi félagaskiptaglugg-
ans í gær. Það voru ekki einu góðu
fréttirnar sem stuðningsmenn Arse-
nal fengu því Mesut Özil skrifaði
einnig undir nýjan þriggja og hálfs
árs samning við félagið.
Arsenal seldi hins vegar Olivier
Giroud til Chelsea í gær. Hann gekk
í raðir Arsenal 2012 og skoraði 105
mörk fyrir félagið. Í kjölfarið á kaup-
unum á Giroud lánaði Chelsea belg-
íska framherjann Michy Batshuayi
til Dortmund.
Manchester City, topplið ensku
úrvalsdeildarinnar, hætti við að
kaupa Riyad Mahrez frá Leicester
City. Manchester-liðið var ekki til-
búið að borga meira en 60 milljónir
punda fyrir Alsíringinn. – iþs
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f i M M t u D a G u r26 S p o r t ∙ f r É t t a b l a ð i ð
sport
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
0
-A
4
B
4
1
E
E
0
-A
3
7
8
1
E
E
0
-A
2
3
C
1
E
E
0
-A
1
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K