Fréttablaðið - 01.02.2018, Síða 49
KYNNINGARBLAÐ 15 F I M MT U DAG U R 1 . f e b r úa r 2 0 1 8 KoNUR í ATvINNULíFINU
Elín Greta Stefánsdóttir, mannauðsstjóri hjá verkís, segir fyrirtækið vinna eftir
markvissri jafnréttisstefnu með góðum árangri. MYNDIR/ANToN BRINK
Við hjá Verkís höfum við starfað eftir markvissri jafnréttis-stefnu í mörg ár og árið 2012
urðum við fyrst fyrirtækja til að fara í
gegnum launaúttekt PwC. Við fórum
í gegnum hana án athugasemda og
þann árangur þökkum við meðvit-
aðri stefnu okkar um þau viðmið sem
eru notuð til launaákvarðana. Nýlega
fórum við aftur í gegnum launaút-
tekt PwC og stóðumst hana með
góðum árangri, en niðurstaðan sýndi
innan við 1% óútskýrðan launamun,“
útskýrir Elín Greta Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri hjá Verkís.
Hún segir slíka viðurkenningu
sérstaklega þýðingarmikla fyrir
fyrirtæki í tæknigeiranum þar sem
almennt hallar á hlutfall kvenna.
Vottunin vakti athygli á sínum tíma
og fundu þau að þetta vakti áhuga
hjá ungum konum sem sóttu um hjá
Verkís.
„Í heild eru konur um 30% starfs-
manna hjá Verkís, sem er ágætis hlut-
fall miðað við fyrirtæki í tæknigeira
en við viljum fá fleiri konur til okkar.
Eitt af markmiðunum í jafnréttis-
stefnu okkar er að auka hlut kvenna
og það hefur tekist hægt og bítandi
undanfarin ár, meðal annars í hópi
tæknimenntaðra starfsmanna og
stjórnenda. Þá er einnig gætt að hlut-
falli karla og kvenna í stjórn Verkís og
við fylgjumst vel með kynjahlutfalli í
nýráðningum.
Ég vil þó benda á að umræðan
um að auka hlut kvenna þarf að fara
fram með faglegum hætti. Að kona
sé ráðin af því að hún er hæfust til
starfsins en ekki af því að hún er
kona. En við viljum fá fleiri umsóknir
frá tæknimenntuðum konum og
það hallar sérstaklega á hlut þeirra í
rafmagns- og vélaverkfræðinni. Við
sjáum að hlutfall umsókna endur-
speglar almennt ekki hlutfall kvenna
í verkfræðigreinum í háskólunum
og við höfum reynt að finna út hvers
vegna það er. Við teljum að með því
að sýna meðal annars fram á að við
erum með áhugaverð verkefni, gott
starfsumhverfi þar sem jafnréttis-
hugsun er ríkjandi og sveigjanlegan
vinnutíma, þá fáum við vonandi fleiri
umsóknir frá konum. Við gætum
þess einnig í atvinnuauglýsingum að
kröfur um hæfni og menntun höfði
jafnt til kvenna og karla. Við vonumst
til þess að þessar góðu niðurstöður úr
jafnlaunaúttektinni hvetji konur til
að sækja um og það tryggi að launa-
misrétti sé ekki eitthvað sem þær
þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur,“
útskýrir Elín Greta.
„Þá viljum við einnig tryggja að
konum og körlum hér innanhúss
bjóðist sömu tækifærin. Þegar ráðið
er í stjórnunarstörf byrjum við til
að mynda á því að leita í okkar eigin
röðum áður en leitað er út fyrir
fyrirtækið. Sjálf byrjaði ég hér sem
aðstoðarmaður yfirverkfræðings fyrir
16 árum. Ég fékk tækifæri til þess að
ná mér í stjórnunarmenntun og sækja
um starf mannauðsstjóra,“ segir Elín
Greta. Hún hafi aldrei fundið fyrir
ójöfnuði. „Þegar ég hóf störf hjá fyrir-
tækinu fann ég strax að ég var komin
inn í jafningjasamfélag þar sem kyn
og aldur var ekki inni í jöfnunni. Ég er
ekki að velta því fyrir mér hvort ég er
að vinna með karli eða konu. Menn-
ingin innan Verkís er einfaldlega
þannig að ég þarf þess ekki.“
Konur og karlar
fái sömu
tækifærin
Verkís er verkfræðistofa sem veitir alhliða ráðgjöf á öllum
sviðum verkfræði og tengdum greinum. Starfsmenn eru
um 340 manns. Verkís varð fyrst fyrirtækja til að hljóta
gullmerki PwC við jafnlaunaúttekt árið 2012. elín Greta
Stefánsdóttir mannauðsstjóri segir ríka áherslu á jafnrétti.
Arndís Magnúsdóttir rafmagnsverkfræðingur fagnar þegar konur sækja um.
Mitt aðalverkefni núna hefur verið að uppfæra stjórn-kerfi virkjana á Þjórsár-
svæðinu. Ég vissi ekki alveg við
hverju ég ætti að búast þegar ég,
stelpan, mætti á svæðið í virkjanir
úti um landið, sérstaklega frá eldri
kynslóðinni og hafði byggt mér
ákveðinn skjöld. Raunin varð hins
vegar sú að þeir voru ánægðir með
að ung kona væri í þessu starfi,
sérstaklega eldri mennirnir,“ segir
Arndís Magnúsdóttir, rafmagns-
verkfræðingur hjá Verkís. Meðan
hún var í námi í rafmagnsverkfræð-
inni vann hún við verkefnastjórnun
á sumrin en þegar námi lauk hóf
hún störf við sitt fag. Hún er yfirleitt
eina konan í starfshópnum.
„Ég er yfirleitt eina konan en ég
get ekki fundið að það sé komið
fram við mig á annan hátt en
samstarfsfélaga mína. Ég fæ sömu
tækifæri og er að sama skapi ýtt út í
djúpu laugina af mínum verkefna-
stjórum. Ég fæ enga sérmeðferð,“
segir hún. „Það er auðvitað alltaf
skemmtilegra að vinna í fjölbreytt-
um hópi og að saman vinni bæði
karlar og konur. Ég fagna því alltaf
þegar konur sækja um. Það eru ekki
margar konur í rafmagnsverkfræði.
Þeim er að fjölga en ég hef það á
tilfinningunni að þær konur sem
ljúka námi fari síður inn á ráðgjafa-
stofurnar. Ég vil hvetja tækni-
menntaðar konur til að stökkva á
tækifærin.“
Hvetur konur til að
stökkva á tækifærin
arndís Magnúsdóttir rafmagnsverkfræðingur
hóf störf hjá Verkís sumarið 2016. Hún segist
oftast eina konan í verkefnum en ekki sé komið
fram við hana á annan hátt vegna þess.
Skilaboðin sem fólk fær strax í æsku skipta miklu máli. Ég fékk til dæmis aldrei að heyra
að ég gæti ekki gert eitthvað af því
ég væri stelpa. Ég hef einnig verið
svo heppin að kynnast öflugum
fyrirmyndum gegnum tíðina í
starfi, konum en einnig körlum,
sem hvetja fólk til góðra verka. Öll
hvatning skiptir máli. Þegar ég fór
í nám í verkfræði í Frakklandi árið
1995, var árgangurinn minn sá
fyrsti þar sem jafn margar konur
og karlar sóttu þetta nám. Þá tald-
ist það frekar óvenjulegt, en það
skiptir máli að fólk sæki menntun
sem það hefur mestan áhuga á,
óháð kyni,“ segir Carine Chatenay,
byggingarverkfræðingur og við-
skiptastjóri hjá Verkís en Carine
situr einnig í stjórn Verkís.
Áhugi Carine á endurvinnan-
legri orku dró hana til Íslands árið
2000. Hún ílentist hér á landi og
hefur starfað innan orkugeirans
síðan. Hún segir Ísland framar-
lega í jafnréttismálum miðað við
hennar heimaland og hjá Verkís
sé jafnræði hluti af vinnumenn-
ingunni.
„Í vinnunni upplifi ég mig
meðal jafningja. Það má ekki
gleyma því að ég er ekki bara kona
í tæknigeira heldur líka útlend-
ingur en, ég legg áherslu á að ég fæ
tækifæri vegna þess að ég stend
mig í starfi. Svona menningu vil ég
hafa á vinnustað og mér líður vel
hjá Verkís út af því,“ segir Carine.
„Jafnréttismál eru í góðum farvegi
á Íslandi miðað við víða. Ég vinn
til dæmis mikið með útlendingum
sem verða mjög hissa ef karlkyns-
tengiliður þeirra er ekki við þar
sem hann er í fæðingarorlofi! Það
þykir afar óvenjulegt. Hjá Verkís
er einnig lögð áhersla á jafnvægi
milli einkalífs og vinnu. Ég og
karlkyns vinnufélagi minn sátum
eitt sinn fund með erlendum
viðskiptavini sem tók sérstak-
lega eftir því að við vorum bæði
jafn stressuð yfir því að klára
fundinn fyrir klukkan fimm, því
bæði þurftum við að sækja börn
í leikskóla. Mín upplifun er sú að
fólk horfir ekki bara til okkar út
af þekkingu okkar heldur einnig
vegna þess hversu framarlega við
stöndum í jafnréttismálum. Þetta
er jákvætt en við verðum auðvitað
að halda áfram á þessari braut,“
segir Carine.
„Fjölbreytni er lykilatriði, það
er hagur okkar allra að fá hæft
fólk úr ýmsum áttum til að starfa í
tæknigeiranum,“ segir Carine. „Ég
vil sjá fleiri konur sækja um störf í
tæknigeiranum og lykilstöður hjá
fyrirtækjum. Það er mikilvægt að
það séu fleiri fyrirmyndir til staðar
svo ungar konur sjái að þetta er
ekkert mál.“
Upplifir sig meðal
jafningja í vinnunni
Carine Chatenay, byggingarverkfræðingur og viðskiptastjóri
hjá Verkís, segir öflugar fyrirmyndir í tæknigreinum mikilvægar.
Carine Chatenay byggingarverkfræðingur segir að hjá verkís sé lögð áhersla á
gott jafnvægi milli einkalífs og vinnu.
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
0
-B
D
6
4
1
E
E
0
-B
C
2
8
1
E
E
0
-B
A
E
C
1
E
E
0
-B
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K