Fréttablaðið - 01.02.2018, Qupperneq 80
Hvað er svona
hættulegt við
kannabis?
Kannabis er a l g e n g -asta ólög-
lega fíkniefnið og
flestir sem reykja
kannabis er ungt
fólk. Sumir telja það
saklaust því í litlum
skömmtum koma sjaldan fram
alvarlegar aukaverkanir. En það
er með kannabis eins og önnur
fíkniefni, að ekki er hægt að sjá
fyrir um hverjir hljóta skaða af
neyslunni en almennt gildir að
við mikla og langvarandi neyslu
eykst hættan.
Fólk undir áhrifum kannabis
getur upplifað breytta skynjun
(t.d. sjá bjartari liti), aukna mat-
arlyst, kvíða, minnisskerðingu,
ofskynjanir og geðrof. Mikil
ógleði og uppköst geta einnig
komið fram.
Við langvarandi neyslu getur
kannabis skert greind ung-
menna. Þegar heilinn er að
taka út þroska myndar hann
sífellt ný taugamót og sam-
kvæmt dýrarannsóknum truflar
kannabis myndun nýrra tauga-
móta. Afleiðingarnar geta verið
erfiðleikar með einbeitingu og
að festa minningar í sessi. Sýnt
hefur verið fram á að vitsmuna-
getan sem tapast kemur ekki
aftur þegar kannabisneyslu er
hætt. Þessi áhrif virðast ekki eiga
við um fullorðið fólk.
Kannabis getur valdið önd-
unarfæravandamálum líkt og
tóbaksreykingar og einnig hröð-
um hjartslætti, sem getur aukið
hættu á hjartaáfalli. Kannabis
getur líka valdið ofsóknaræði og
geðsjúkdómum eins og geðklofa,
kvíða og þunglyndi og aukinni
hættu á sjálfsvígum. Jafnframt
eru þeir sem nota kannabis lík-
legri til að fá geðrofssjúkdóma
eins og geðklofa. Ef kannabis er
neytt á meðgöngu eða á tíma
brjóstagjafa getur það valdið
þroskavandamálum hjá barninu.
Varhugavert er að styrkleiki
vímugjafans THC í kannabis
hefur verið að aukast jafnt og
þétt síðustu áratugi, sem þýðir að
sá sem byrjar að reykja kannabis
í dag innbyrðir mun meira af THC
en tíðkaðist t.d. á hippaárunum.
Ljóst er að kannabis er skaðlegt
efni sem getur haft óafturkræf og
alvarleg áhrif á heilsuna. Hægt er
að fá frekari upplýsingar á vefn-
um kannabis.is
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Ég byrjaði á fyrstu lyfj-unum fyrir viku,“ segir Ninna Karla Katrínar-dóttir sem er í miðju eggjagjafarferli því hana langar til að hjálpa fólki
í frjósemisvanda. Meðferðin getur
tekið tvær til þrjár vikur og Ninna
vonast til að hún skili því að tvær
konur fái egg frá henni. Þess má geta
að núna eru 78 konur á biðlista eftir
eggi hjá LIVIO Reykjavík, sem áður
hét IVF-klíníkin.
„Mér finnst þetta eitthvað svo
sjálfsagt. Ég á tvö börn og ætla
mjög líklega ekki að eignast fleiri.
Ég átti börnin mín mjög auðveld-
lega og mér þykir mjög leiðinlegt
að allir geti ekki eignast börn sem
vilja það,“ segir Ninna spurð út í af
hverju hún vilji gefa egg. „Ég á sjálf
fullt af eggjum sem ég hef ekkert
með að gera. Og það eru konur sem
þurfa á þeim að halda.“
Þetta verður í annað sinn sem
Ninna gefur egg. „Ég var búin að
ætla að gera þetta í mörg ár en ein-
hvern veginn frestaði þessu alltaf.
En það var svo í fyrra sem vinkona
mín hafði samband við mig og bað
mig hreinlega um að gefa sér egg,
vegna þess að hún og maðurinn
hennar voru að reyna að eignast
barn. Þá loksins dreif ég í þessu og
gaf þeim egg, sem reyndar varð ekki
að barni, því miður.“
Í þetta sinn er hún ekki að gefa
vinkonu egg. „Núna er ég bara að
gefa egg almennt og þá fá mögulega
tvær konur egg frá mér,“ útskýrir
Ninna. Hún mun ekki fá upplýs-
ingar um hvert eggin hennar fara
en hún ætlar þó að vera svokall-
aður „þekktur gjafi“. „Maður getur
valið hvort maður er þekktur gjafi
eða óþekktur. Að vera þekktur gjafi
þýðir að barnið sjálft getur fengið
upplýsingar um mig og leitað að
mér þegar það er orðið 18 ára. Mér
finnst það mjög mikilvægt að hafa
þetta þannig vegna þess að við erum
á Íslandi, þetta er svo lítið land. Og
bara vegna þess ef barnið myndi t.d.
kynnast mínum börnum,“ segir hún
og hlær.
Ninna segist ekki vera búin að
hugsa mikið út í hvernig það yrði
ef barnið eða börnin sem yrðu til úr
eggjum hennar kæmu svo bankandi
upp á eftir tvo áratugi. „Ég veit ekki.
Ég myndi örugglega bara taka því
með opnum örmum. Maður þarf
náttúrulega að gera ráð fyrir að það
geti gerst. Maður tekur bara á því
þegar þar að kemur. En ég held að
það yrði bara skemmtilegt,“ segir
Ninna glöð í bragði.
Þess má geta að þótt konur sem
gefa egg fái ekki að vita hvert eggin
þeirra fara þá fá þær samt upp-
lýsingar um hvort aðgerðin hafi
heppnast „Það er ágætt að fá þær
upplýsingar, því þá fær maður smá
svona „closure“.“
Passað vel upp á eggjagjafann
Ninna segir sjálft eggjagjafarferlið í
fyrra hafa gengið vel og að það hafi
ekki valdið henni miklum líkam-
legum óþægindum. „Ég fann auð-
vitað aðeins fyrir þessu því maður
er að sprauta sig með miklu af
hormónum. En svo er auðvitað
misjafnt hvernig þetta fer í konur.
Ég var aðeins þrútin í kringum
magasvæðið og varð alveg rosalega
meyr, ég grét yfir öllu eins og ég væri
ólétt,“ segir hún og skellir upp úr.
„Svo á eggheimtudeginum þá varð
ég smá slöpp og líka í tvo, þrjá daga
eftir á. Annars fylgdu þessu ekki
mikil óþægindi myndi ég segja. Það
er passað vel upp á mann.“
Vill vekja fólk til umhugsunar
Ninna hefur talað opinskátt um
eggjagjöfina á Snapchat og vonar
að það veki aðrar konur til umhugs-
unar. Áhugasamir geta fylgst með
Ninnu á Snapchat en notandanafn
hennar er ninnakarla. „Ég vona að
aðrar konur sem geta gefið egg sjái
að þetta er minna mál en maður
heldur,“ segir Ninna sem er þeirrar
skoðunar að það vanti upp á upp-
lýsingar um eggjagjöf.
„Ég held að fáir séu að pæla í
þessum möguleika og maður heyrir
lítið um að það vanti eggjagjafa. En
það er mikil þörf á eggjum og það
er tveggja ára biðlisti eftir eggi hjá
Klíníkinni. Það er hrikalega langur
tími.“
Ninna bætir að lokum við: „Mér
finnst dásamlegt að hugsa til þess
að ég geti gefið fólki tækifæri til að
eignast barn, fólki sem er kannski
búið að láta sig dreyma um að eign-
ast barn í mörg ár.“
gudnyhronn@frettabladid.is
Heilsan
okkar
Lára G.
Sigurðardóttir,
læknir og doktor
í lýðheilsu-
vísindum
NiðurStaða: Kanna-
bis getur verið skaðlegt á
nokkra vegu, meðal annars
með því að auka líkur á
geðsjúkdómum og valda
óafturkræfri greindarskerð-
ingu meðal ungmenna.
eggjagjöfina
Ninna Karla Katrínardóttir er í miðju eggjagjafarferli vegna þess að hana langar að aðstoða
fólk í frjósemisvanda við að láta draum sinn um að eignast barn rætast. Ninna Karla hefur
talað opinskátt um eggjagjöf á samfélagsmiðlum og vonast til að vekja fólk til umhugsunar.
Talar opinskátt um
Ég á sjálf fullT af
eggjum sem Ég Hef
eKKerT með að gera. Og það
eru KONur sem þurfa á þeim
að Halda.
Ninna mun brátt gefa egg í von um að geta aðstoðað fólk í frjósemisvanda. FrÉttaBLaðið/ViLHELM
1 . f e b r ú a r 2 0 1 8 f I M M T U D a G U r48 l í f I ð ∙ f r É T T a b l a ð I ð
Lífið
0
1
-0
2
-2
0
1
8
0
5
:0
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
0
-9
F
C
4
1
E
E
0
-9
E
8
8
1
E
E
0
-9
D
4
C
1
E
E
0
-9
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
8
s
_
3
1
_
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K