Víkurfréttir - 04.05.2017, Síða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 4. maí 2017 • 18. tölublað • 38. árgangur
Hafnargötu 20, 230 Reykjanesbær S: 420 4000
Guðlaugur H. Guðlaugsson lögg. fasteignasali
Halldór Magnússon lögg. fasteignasali
Brynjar Guðlaugsson aðstm. fasteignasala
Haraldur Freyr Guðmundsson aðstm. fasteignasala
studlaberg@studlaberg.is studlaberg.is
Íbúum í Reykjanesbæ fjölgaði um
7,4 prósent á síðasta ári og gangi
spár eftir mun þeim halda áfram að
fjölga. Samfara fjölguninni þarf að
byggja upp innviði, svo sem leik- og
grunnskóla. Í haust verður skólahús-
næði til bráðabirgða tekið í notkun í
Dalshverfi í Innri Njarðvík en skól-
inn sem fyrir er í hverfinu, Akur-
skóli, er yfirfullur.
Ekki verður látið staðar numið
í Dalshverfi því ljóst er að þegar
Hlíðahverfi, gamla Nikel-svæðið,
byggist upp verður örugglega þörf
á grunn- og leikskóla þar. Miðað
við nýjustu fregnir af uppbyggingu
á Ásbrú er þegar komin þörf á
að stækka Háaleitisskóla og er það
verkefni skyndilega komið í forgang.
„Það er óhætt að segja að helstu
vaxtarbroddarnir séu í Innri Njarðvík,
Hlíðahverfinu og á Ásbrú,“ segir Helgi
Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs
Reykjanesbæjar.
Nánar er fjallað um skólaupp-
byggingu í Reykjanesbæ í viðtali við
Helga á bls. 24.
n Skólamatur ehf. var með
lægsta tilboð í framleiðslu og
framreiðslu á skólamat fyrir
grunnskóla Reykjanesbæjar.
Ti l b o ð i n v or u o pn u ð h j á
Ríkiskaupum í vikunni, en aðeins
bárust tvö tilboð. Hitt tilboðið
kom frá ISS Ísland ehf. og var
talsvert hærra. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á 658.148.291
krónur miðað við 3 ára samning.
Ti lboðið frá Skólamat var
567.171.765 krónur. Það má
því búast við grunnskólabörn í
Reykjanesbæ fái áfram mat frá
Skólamat.
Þörf fyrir frekari skólaupp-
byggingu á Ásbrú og í Hlíðum
l Íbúum fjölgaði um 7,4 prósent á síðasta ári l Áframhaldandi uppbygging innviða Skólamatur með
lægsta tilboð
Atvinnuástandið á Suðurnesjum er
með besta móti um þessar mundir
og hafa mörg fyrirtæki ráðið til sín
sumarstarfsfólk undanfarið. Víkur-
fréttir tóku púlsinn hjá Isavia, Bláa
Lóninu og Airport Associates en hjá
fyrirtækjunum hefur gengið vel að
ráða.
Hjá Isavia var ráðist í sérstakt átak í
vetur þar sem sumarstörf voru kynnt
með myndböndum á samfélags-
miðlum. Þá voru hengdar upp aug-
lýsingar í öllum framhaldsskólum á
höfuðborgarsvæðinu og í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja. Hjá Bláa Lóninu
er sérstök atvinnu-Facebook síða þar
sem sagt er frá störfum sem í boði eru.
Þá hafa verið haldnar kynningar fyrir
vini og kunningja starfsfólks þar sem
Bláa Lónið er kynnt sem vinnustaður.
Vel hefur gengið hjá Airport Associ-
ates að ráða starfsfólk en í ár byrjuðu
ráðningar fyrr en áður og reyndist
það vel. Þar á bæ er fólk hætt að hugsa
í sumartímabilum þar sem álagið er
orðið jafnara yfir árið. Nánar má lesa
um málið á bls. 12.
Beita óhefð-
bundnum
aðferðum
Hestafjör á Akri
Í haust verður skólahúsnæði til bráðabirgða tekið í notkun í Dalshverfi í
Innri Njarðvík en skólinn sem fyrir er í hverfinu, Akurskóli, er yfirfullur.
Bæjarstjórn samþykkti ársreikning
samstæðu Reykjanesbæjar fyrir árið
2016 að lokinni síðari umræðu á
bæjarstjórnarfundi sl. þriðjudag.
Rekstrarniðurstaða bæði A-hluta
bæjarsjóðs er jákvæð í fyrsta skipti
síðan 2012 og samstæðu A og B hluta
síðan 2010. Munar þar mest um
aukna framlegð, fyrir fjármagnsliði
og afskriftir, en framlegð A-hluta
bæjarsjóðs var 1,7 milljarður og
framlegð samstæðu A og B hluta 4,1
milljarður.
Rekstarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs,
að teknu tilliti til fjármagnsliða og
afskrifta, er hins vegar jákvæð um 49
milljónir og samstæðu A og B-hluta
um 93 milljónir.
Lykillinn að þessum viðsnúningi í
rekstri er að á meðan tekjur hafa auk-
ist í kjölfar meiri atvinnu og hærri
launa hefur starfsmönnum Reykja-
nesbæjar tekist að koma í veg fyrir að
útgjöld hækki í takt við auknar tekjur,
segir á vef Reykjanesbæjar.
Alg jör viðsnúningur í
rekstri Reykjanesbæjar
Dreifing Víkurfrétta
tekur tvo daga
n Vegna breytinga á póstdreifingu
á Suðurnesjum mun taka tvo daga
að dreifa Víkurfréttum inn á heimili
á Suðurnesjum. Dreifing blaðsins
fer því fram á fimmtudögum og
föstudögum. Rafræna útgáfu
blaðsins má nálgast á vf.is á
fimmtudagsmorgnum.
Það var heldur betur fjör á
leikskólanum Akri í Innri
Njarðvík í gær þegar foreldrafélag
leikskólabarna fékk nokkra hesta í
heimsókn á leikskólann. Þau börn
sem vildu fara á hestbak fóru hring
á spökum hrossum á skólalóðinni.
Sólborg Guðbrandsdóttir tók
meðfylgjandi mynd við þetta
tækifæri. Fleiri myndir eru á vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA