Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.05.2017, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 04.05.2017, Blaðsíða 16
16 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR ■ Atvinnuástandið á Suðurnesjum er með besta móti um þessar mundir. Mörg fyrirtæki hafa ráðið til sín sumarstarfsfólk undanfarið. Hjá Isavia, Bláa Lóninu og Airport Associates hefur gengið vel að ráða. Vel hefur gengið að ráða í störf hjá Bláa Lóninu fyrir komandi sumar en ráðið verður í 60 til 70 sumarstörf. Um 1.100 umsóknir um störfin bárust. Aðsókn að Bláa Lóninu er nokkuð jöfn yfir árið og ekki mikill munur á sumri og vetri. Að sögn Más Más- sonar, yfirmanns mannauðsmála Bláa Lónsins, er starfsfólk fyrir- tækisins ýmist búsett á Suðurnesjum eða höfuðborgarsvæðinu og er boðið upp á rútuferðir til og frá vinnu fyrir vaktavinnufólk, bæði frá Reykjanesbæ og höfuðborgarsvæðinu. Halda kynningar fyrir vini og kunn- ingja starfsfólks Sökum þess hversu gott atvinnu- ástandið er um þessar mundir hafa fyrirtæki þurft að beita óhefð- bundnum leiðum til að laða til sín starfsfólk. Að sögn Más hefur Bláa Lónið leitast við að skapa vinnuum- hverfi sem er hvetjandi, faglegt og skemmtilegt. „Við höfum kynnt Bláa Lónið sem vinnustað í gegnum sér- staka atvinnusíðu þar sem við segjum frá lífinu í Lóninu. Eins erum við með sérstaka atvinnu-Facebook síðu þar sem við segjum frá störfum í boði og hvað er í gangi hjá okkur,“ segir hann. Þá hafa verið haldnar sérstakar kynn- ingar fyrir vini og kunningja starfs- fólks undir heitinu „Veldu þér vinnu- félaga“ þar sem Bláa Lónið er kynnt sem vinnustaður. Um 1.900 umsóknir bárust Isavia og Fríhöfninni Hjá Isavia/Fríhöfninni var ráðið í 400 sumarstörf á Keflavíkurflugvelli í ár. Að sögn Sóleyjar Rögnu Ragnars- dóttur, mannauðsstjóra Isavia á Kefla- víkurflugvelli, gengu ráðningar mjög vel en um 1.900 umsóknir bárust. Ekki þurfti að grípa til þess ráðs að leita starfsmanna utan landsstein- anna. „Ráðist var í sérstakt átak í vetur þar sem sumarstörfin voru kynnt með myndböndum á samfélagsmiðlum. Þá voru auglýsingar hengdar upp í öllum framhaldsskólum á höfuðborgar- svæðinu og í Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Lágmarksaldur starfsfólks var lækkaður úr 20 árum í 18 ár í vor,“ segir hún. Starfsmenn Isavia búa ým- ist á Suðurnesjum eða á höfuðborgar- svæðinu en boðið er upp á fríar rútu- ferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu. „Það ríkir mikil samkeppni um gott starfsfólk hérna á flugvellinum. Við höfum lagt okkur fram um að taka vel á móti öllu okkar fólki og greiðum laun fyrir undirbúningsnámskeið að uppfylltum ákveðnum lágmarks- kröfum.“ Þá segir hún starfsmanna- félagið öflugt og að það standi fyrir fjölda viðburða yfir sumarið og að það skipti miklu við að gera vinnustaðinn aðlaðandi fyrir ungt fólk. Nánast hætt að hugsa um sumar- tímabil Hjá Airport Associates hefur gengið vel að ráða starfsfólk. Þar var byrjað að ráða aðeins fyrr en áður og hefur það reynst vel. Hjá fyrirtækinu er stefnt að því að hafa lokið við ráðn- ingar í lok maí. Að sögn Sigþórs Kristins Skúlasonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, hafa starfsmenn verið ráðnir jafnt og þétt síðan um áramót en flestir hófu störf í apríl og maí. „Við erum nánast hætt að hugsa í sumartímabilum og flestir starfsmenn sem hjá okkur starfa eru ekki bara ráðnir tímabundið. Einhverjir starfs- menn eru með tímabundna ráðninga- samninga þar til í lok október en fá að öllum líkindum áframhaldandi vinnu ef óskað er eftir,“ segir Sigþór. Starfsmenn Airport Associates eru bæði búsettir á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hafa verið ráðnir starfsmenn frá útlöndum, flestir frá Póllandi. Fyrirtækið býður starfsmönnum sínum upp á fríar rútuferðir á Suðurnesjum og niður- greiddar rútuferðir frá höfuðborgar- svæðinu. Þá er einnig boðið upp á leiguhúsnæði. dagnyhulda@vf.is Vel gekk að ráða í sumarstörf Þar sem atvinnuástandið er óvenju gott beita fyrirtæki óhefðbundnum aðferðum við að laða til sín starfsfólk Már Másson, yfirmaður mann- auðsmála hjá Bláa Lóninu. Aðsókn að Bláa Lóninu hefur jafnast yfir árið og ekki er lengur mikill munur á aðsókn eftir árstíðum. Ráðið var í 400 sumarstörf hjá Isavia og Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli í sumar. Um 1.900 umsóknir bárust um störfin. Mynd/Isavia Airport Associates hefur leitað eftir starfsfólki frá útlöndum. Flestir erlendu starfsmannanna koma frá Póllandi. Sóley Ragna Ragnarsdóttir, mann- auðsstjóri hjá Isavia á Keflavíkurflug- velli. Sigþór Kristinn Skúlason, fram- kvæmdastjóri Airport Associates.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.