Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 16
16 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
■ Atvinnuástandið á Suðurnesjum
er með besta móti um þessar
mundir. Mörg fyrirtæki hafa ráðið
til sín sumarstarfsfólk undanfarið.
Hjá Isavia, Bláa Lóninu og Airport
Associates hefur gengið vel að ráða.
Vel hefur gengið að ráða í störf hjá
Bláa Lóninu fyrir komandi sumar en
ráðið verður í 60 til 70 sumarstörf. Um
1.100 umsóknir um störfin bárust.
Aðsókn að Bláa Lóninu er nokkuð
jöfn yfir árið og ekki mikill munur
á sumri og vetri. Að sögn Más Más-
sonar, yfirmanns mannauðsmála
Bláa Lónsins, er starfsfólk fyrir-
tækisins ýmist búsett á Suðurnesjum
eða höfuðborgarsvæðinu og er boðið
upp á rútuferðir til og frá vinnu fyrir
vaktavinnufólk, bæði frá Reykjanesbæ
og höfuðborgarsvæðinu.
Halda kynningar fyrir vini og kunn-
ingja starfsfólks
Sökum þess hversu gott atvinnu-
ástandið er um þessar mundir
hafa fyrirtæki þurft að beita óhefð-
bundnum leiðum til að laða til sín
starfsfólk. Að sögn Más hefur Bláa
Lónið leitast við að skapa vinnuum-
hverfi sem er hvetjandi, faglegt og
skemmtilegt. „Við höfum kynnt Bláa
Lónið sem vinnustað í gegnum sér-
staka atvinnusíðu þar sem við segjum
frá lífinu í Lóninu. Eins erum við með
sérstaka atvinnu-Facebook síðu þar
sem við segjum frá störfum í boði og
hvað er í gangi hjá okkur,“ segir hann.
Þá hafa verið haldnar sérstakar kynn-
ingar fyrir vini og kunningja starfs-
fólks undir heitinu „Veldu þér vinnu-
félaga“ þar sem Bláa Lónið er kynnt
sem vinnustaður.
Um 1.900 umsóknir bárust Isavia
og Fríhöfninni
Hjá Isavia/Fríhöfninni var ráðið í 400
sumarstörf á Keflavíkurflugvelli í ár.
Að sögn Sóleyjar Rögnu Ragnars-
dóttur, mannauðsstjóra Isavia á Kefla-
víkurflugvelli, gengu ráðningar mjög
vel en um 1.900 umsóknir bárust.
Ekki þurfti að grípa til þess ráðs að
leita starfsmanna utan landsstein-
anna. „Ráðist var í sérstakt átak í vetur
þar sem sumarstörfin voru kynnt með
myndböndum á samfélagsmiðlum. Þá
voru auglýsingar hengdar upp í öllum
framhaldsskólum á höfuðborgar-
svæðinu og í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Lágmarksaldur starfsfólks var
lækkaður úr 20 árum í 18 ár í vor,“
segir hún. Starfsmenn Isavia búa ým-
ist á Suðurnesjum eða á höfuðborgar-
svæðinu en boðið er upp á fríar rútu-
ferðir til og frá höfuðborgarsvæðinu.
„Það ríkir mikil samkeppni um gott
starfsfólk hérna á flugvellinum. Við
höfum lagt okkur fram um að taka
vel á móti öllu okkar fólki og greiðum
laun fyrir undirbúningsnámskeið
að uppfylltum ákveðnum lágmarks-
kröfum.“ Þá segir hún starfsmanna-
félagið öflugt og að það standi fyrir
fjölda viðburða yfir sumarið og að það
skipti miklu við að gera vinnustaðinn
aðlaðandi fyrir ungt fólk.
Nánast hætt að hugsa um sumar-
tímabil
Hjá Airport Associates hefur gengið
vel að ráða starfsfólk. Þar var byrjað
að ráða aðeins fyrr en áður og hefur
það reynst vel. Hjá fyrirtækinu er
stefnt að því að hafa lokið við ráðn-
ingar í lok maí. Að sögn Sigþórs
Kristins Skúlasonar, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins, hafa starfsmenn
verið ráðnir jafnt og þétt síðan um
áramót en flestir hófu störf í apríl og
maí. „Við erum nánast hætt að hugsa í
sumartímabilum og flestir starfsmenn
sem hjá okkur starfa eru ekki bara
ráðnir tímabundið. Einhverjir starfs-
menn eru með tímabundna ráðninga-
samninga þar til í lok október en fá að
öllum líkindum áframhaldandi vinnu
ef óskað er eftir,“ segir Sigþór.
Starfsmenn Airport Associates eru
bæði búsettir á Suðurnesjum og á
höfuðborgarsvæðinu. Einnig hafa
verið ráðnir starfsmenn frá útlöndum,
flestir frá Póllandi. Fyrirtækið býður
starfsmönnum sínum upp á fríar
rútuferðir á Suðurnesjum og niður-
greiddar rútuferðir frá höfuðborgar-
svæðinu. Þá er einnig boðið upp á
leiguhúsnæði.
dagnyhulda@vf.is
Vel gekk að ráða í sumarstörf
Þar sem atvinnuástandið er óvenju gott beita fyrirtæki
óhefðbundnum aðferðum við að laða til sín starfsfólk
Már Másson, yfirmaður mann-
auðsmála hjá Bláa Lóninu.
Aðsókn að Bláa Lóninu hefur jafnast yfir árið og
ekki er lengur mikill munur á aðsókn eftir árstíðum.
Ráðið var í 400 sumarstörf hjá Isavia
og Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli
í sumar. Um 1.900 umsóknir bárust
um störfin. Mynd/Isavia
Airport Associates hefur leitað
eftir starfsfólki frá útlöndum.
Flestir erlendu starfsmannanna
koma frá Póllandi.
Sóley Ragna Ragnarsdóttir, mann-
auðsstjóri hjá Isavia á Keflavíkurflug-
velli.
Sigþór Kristinn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Airport Associates.