Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 2
2 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Vortónleikar Karlakórs Keflavíkur
í Ytri-Njarðvíkurkirkju
Þriðjudaginn 2. maí og fimmtudaginn 4. maí kl. 20.30.
Miðasala fer fram hjá kórfélögum og við innganginn.
SOÐ
BEINT FRÁ
BRUSSEL
á Hringbraut fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00
Hringbraut 99 - 577 1150
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks-
verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
APÓTEK SUÐURNESJA
KYNNIR NÝJAR HÚÐVÖRUR
FRÁ BIO MIRACLE
30% KYNNINGARAFSLÁTTUR
■ Bláa Lónið hlaut verðlaun Félags
viðskiptafræðinga og hagfræðinga
sem þekkingarfyrirtæki ársins, en
verðlaunin voru við hátíðlega athöfn
þann 25. apríl. Verðlaunin eru veitt
árlega en forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson afhenti verðlaunin að
þessu sinni. Þema þekkingarverð-
launanna í ár var „fagmennska og
færni í ferðaþjónustu“. Þrjú fyrirtæki
voru tilnefnd af sérstakri dómnefnd
sem FVH skipaði og var Anna Dóra
Sæþórsdóttir, prófessor í ferðamála-
fræði við Háskóla Íslands, formaður
hennar. Þau þrjú fyrirtæki sem hlutu
tilnefningu til verðlaunanna voru
Bláa Lónið, Norðursigling og Ís-
lenskir fjallaleiðsögumenn, en Bláa
Lónið hlaut að þessu sinni þekk-
ingarverðlaunin fyrir afar metnaðar-
fullt starf. Guðni Th. Jóhannesson
veitti verðlaunin fyrir hönd FVH og
ræddi hann aðeins ferðaþjónustuna
á Íslandi sem hann sagði standa á
tímamótum. Hann vildi þó meina að
útlitið væri kannski ekki alveg eins
svart og það sýndist oft í fréttum og
fyrirsögnum og sagði „þetta er alltaf
sama gamla sagan, við þurfum vissu-
lega að vera á varðbergi en passa
okkur þó að taka ekki einhverjar rót-
tækar ákvarðanir sem eru byggðar á
svörtustu sýninni.“
Efla verkfallssjóð og auka
réttindi félaga í sjúkrasjóði
Afkoma Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis,
VSFK, var með besta móti árið 2016.
Ástæðan er mikil fjölgun félags-
manna VSFK, sem skýrist af bættu
atvinnuástandi á svæðinu. Þetta kom
fram á aðalfundi félagsins sem hald-
inn var 25. apríl sl. Á fundinum var
stjórn VSFK endurkjörin.
Vegna þessarar góðu afkomu félags-
ins var ákveðið að setja 10 milljónir
í verkfallsjóð VSFK. Þá var jafn-
framt ákveðið að auka réttindi fé-
laga í sjúkrasjóði með því að taka upp
svokallaðan tækjakaupastyrk. Hann
er ætlaður til kaupa á gleraugum og
heyrnartækjum.
●● Starfshópur●um●húsnæðismál●Tónlistarskólans●í●Garði:
Vilja flytja félagsmiðstöð
og stækka tónlistarskóla
Starfshópur um húsnæðismál Tónlistar-
skólans í Garði hefur skilað hugmyndum
til bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs til
lausnar á húsnæðismálum skólans.
Í hugmyndum starfshópsins kemur fram
að leitað verði samninga við eiganda
húsnæðis að Heiðartúni 2d um kaup á
húsnæðinu. Gangi það eftir fær Félags-
miðstöðin Eldingin húsnæðið til afnota.
Leitast verður við að aðstaða Auðarstofu,
tómstundastarfs aldraðra í Heiðartúni 2 b
og c verði að einhverju leyti samnýtt með
félagsmiðstöð og aðstaða félagsmiðstöðvar
að einhverju leyti samnýtt með félagsstarfi
aldraðra.
Gengið verði í að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á húsnæði í Sæborgu, þar sem tón-
listarskólinn er til húsa, þannig að tónlist-
arskóli fái allt það húsnæði til afnota fyrir
starfsemi tónlistarskólans. Unnin hefur
verið frumhönnun um breytingar á hús-
næðinu, lagt er til að hönnun verði lokið
hið fyrsta. Unnið verði að því markmiði
að félagsmiðstöðin verði flutt í Heiðartún
hið fyrsta og að kennsla í tónlistarskóla geti
hafist í breyttu húsnæði í Sæborgu við upp-
haf skólastarfs í haust.
Frumáætlun um kostnað við framangreint
gerir ráð fyrir að heildarkostnaður gæti
orðið allt að 50 milljónir á árinu 2017. Í
fjárhagsáætlun ársins er fjárheimild kr. 25
milljónir.
Bæjarráð Garðs samþykkti samhljóða á
síðasta fundi sínum að leggja til við bæjar-
stjórn að tillaga starfshópsins verði sam-
þykkt. Bæjarstjóra var falið að láta vinna
nánari kostnaðaráætlun um verkefnið
og leggja fyrir bæjarráð tillögu um fjár-
mögnun þess.
■ Bæjarráð Sandgerðisbæjar lýsti
yfir áhyggjum af takmörkuðum fjár-
heimildum ríkisins til heilsugæslu-
sviðs HSS á fundi sínum í síðustu
viku. Í afgreiðslu ráðsins segir að
Sandgerðisbær hafi lagt í töluverða
fjárfestingu vegna nýs húsnæðis
fyrir heilsugæslu í bæjarfélaginu á
árunum 2008 til 2009 í samráði við
heilbrigðisyfirvöld.
„Vegna niðurskurðar í ríkisútgjöldum
á árum eftir hrun varð ekki af því að
nýja heilsugæsluhúsnæðið yrði tekið
í notkun og sú þjónusta sem fyrir
var lögð niður. Staðan er því sú að
engin heilsugæsla er í Sandgerði sem
er 1730 manna sveitarfélag,“ segir í
fundargerð ráðsins. Bæjaryfirvöld í
Sandgerði telja eðlilegt að endurskoða
þjónustuskerðinguna.
Í afgreiðslu bæjarráðs er jafnframt
bent á gríðarlega fjölgun ferðamanna
á svæðinu sem auki álag á heilsugæsl-
una. Þá segir í afgreiðslunni að sé litið
til íbúafjölda landshluta og fjárfram-
laga til heilsugæslu sé hlutfallslegt
framlag til heilsugæslu á Suðurnesjum
mun lægra en til annarra landshluta.
Bláa Lónið er þekkingarfyrirtæki ársins
Grímur Sæmundsen, forstjóri
Bláa Lónsins og Dagný Péturs-
dóttir, framkvæmdastjóri Bláa
Lónsins ásamt forseta Íslands
Guðna Th. Jóhannessyni.
Nýtt húsnæði heilsugæslu
aldrei tekið í notkun
●● Bæjarráð●Sandgerðis●vill●láta●endurskoða●skerðingu●
á●heilbrigðisþjónustu●í●bæjarfélaginu
Flöskuþjófar á
ferðinni
■ Flöskuþjófar sem voru á ferðinni
í Garði í síðustu viku virðast hafa
haft eitthvað upp úr krafsinu. Lög-
reglunni á Suðurnesjum var tilkynnt
um þjófnað á átta eða níu svörtum
ruslapokum sem höfðu að geyma
tómar gosflöskur.
Þá kom annar íbúi úr sömu götu á lög-
reglustöð og tilkynnti þjófnað á tutt-
ugu pokum, fullum af flöskum, sem
hann hafði safnað saman aftan við
hús sitt. Ekki er vitað hver eða hverjir
þarna voru að verki.
Ökumaður með
allt í ólagi
■ Ökumaður sem lögreglan á
Suðurnesjum stöðvaði nýverið var
vægast sagt með allt sem hugsast
gat í ólagi. Bifreiðin var ótryggð og
óskoðuð frá því árið 2015. Þá ók
hann sviptur ökuréttindum. Loks
vaknaði grunur um að hann æki
undir áhrifum fíkniefna og var hann
því handtekinn og færður á lög-
reglustöð þar sem skýrsla var tekin
af honum og sýnatökur fóru fram.
Tveir ökumenn til viðbótar voru
einnig grunaðir um fíkniefnaakstur.
Tölvum og
sjónvarpi stolið
■ Lögreglunni á Suðurnesjum var
í liðinni viku tilkynnt um innbrot
í íbúðarhúsnæði í umdæminu.
Stormjárn í baðherbergisglugga
hafði verið brotið og hinir óprúttnu
komist inn með þeim hætti. Þeir
höfðu haft á brott með sér tvær far-
tölvur, sjónvarp og sjónvarpsflakk-
ara. Lögregla rannsakar málið.