Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 6
6 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Deiliskipulagsbreytingar
í Reykjanesbæ
1. Deiliskipulagsbreyting Hafnargötu 12
Reykjanesbæ, 20. apríl 2017.
Skipulagsfulltrúi
Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með
auglýstar eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar:
Skipulagið gerir ráð fyrir að byggðar verði 30 - 35 íbúðir á lóð-
inni. Húsin verða tvær hæðir með nýtanlegu risi. Nýtingarhlutfall
verður að hámarki 0,7.
2. Deiliskipulagsbreyting Leirdal 2 - 16
Breytingin gerir ráð fyrir að í stað tvílyftra parhúsa verði heimilað
að byggja parhús á einni hæð. Byggingarreitir stækka um 1,5 m til
suðurs en að öðru leyti eru skilmálar óbreyttir.
Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnar-
götu 12 frá og með 20. apríl til 1. júní 2017. Tillögurnar eru einnig
aðgengilegar á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn
athugasemd er til 1. júní 2017. Skila skal inn skriflegum athugasemd-
um á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ.
Héðinn Máni Sigurðsson er 18 ára
strákur úr Vogunum sem berst við
krabbamein. Hann hefur síðustu
vikur leyft almenningi að fylgjast
með meðferðinni á samfélagsmiðl-
inum Snapchat þar sem hann svarar
spurningum um krabbameinið og
sýnir frá ýmsu úr lífi sínu. Hann segist
ákveðinn að sigrast á krabbameininu
eins og stríðsmaður.
Héðinn greindist með meinið fyrir
um það bil tveimur mánuðum en
hann glímir við þriðja stigs slím-
himnukrabbamein í höfði. Til að byrja
með var talið að Héðinn væri með
eyrnabólgu, vegna svipaðra einkenna,
en annað kom á daginn. Hann segir
krabbameinið nokkuð alvarlegt en
hann fer á þriggja vikna fresti á Barna-
spítala Hringsins í lyfjagjöf. „Það er
mjög þægilegt á Barnaspítalanum.
Maturinn er samt ekkert sá besti en
eftir að ég setti matinn inn á Snapchat
voru kokkar sem höfðu samband og
ætla að elda fyrir mig,“ segir Héð-
inn, en hann hefur ákveðið að taka
mataræðið í gegn eftir að hafa fengið
ábendingar um það. „Krabbameinið
nærist á kolvetnum og sykri þannig ég
held ég þurfi bara að gera það.“
Hann segist ennþá vera að læra á
Snapchat en nokkur þúsund manns
fylgjast með honum þar þessa dagana.
Þá hafa Suðurnesjamennirnir Gæi og
Kíló, sem einnig eru stórstjörnur á
Snapchat, mælt með Héðni við sína
fylgjendur og í kjölfarið hefur fylgj-
endahópur Héðins stækkað töluvert.
„Þessir stóru snapparar eru búnir að
gera mig að risa snappara. Þetta er
búið að gerast mjög hratt en þetta er
hugsað til að útskýra krabbameinið
fyrir fólki og leyfa því að spyrja mig.
Ég hefði viljað geta spurt einhvern
nánar út í hlutina sjálfur, eins og vin.
Ég spjalla stundum við fólk þó að ég
þekki það ekkert, en það spyr aðallega
um meðferðina og hvernig krabba-
mein þetta sé. Ég hef líka fengið rosa-
lega mikið af ráðum frá fólki sjálfur.“
Héðinn er uppalinn í Vogunum og
hefur búið þar nánast alla ævi, á sama
sveitabænum. Hann hefur gaman að
kvikmyndagerð, rafmagni og tölvum
og langar að starfa sem rafvirki í fram-
tíðinni. Hann hóf nám í rafvirkjun við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja en þurfti
að hætta námi sökum greininga sem
hann er með, meðal annars ADHD,
●● Leyfir●landsmönnum●að●fylgjast●með●krabbameinsmeðferðinni●á●Snapchat
Stríðsmaður
úr Vogunum
sem orsökuðu einbeitingarleysi hjá
honum.
Hann segist ekki hafa orðið hræddur
þegar hann greindist með krabba-
meinið og segir lækna hafa hrósað
honum fyrir viðbrögðin og jákvæðn-
ina. „Ég ákvað bara að lifa í núinu og
taka einn dag í einu. Það er í raun það
eina sem virkar fyrir mig, að reyna
að vera jákvæður,“ segir Héðinn, en
áhugasamir geta fylgst með honum á
snapchat undir notendanafninu hed-
dimani.
solborg@vf.is
„Ég spjalla
stundum
við fólk þó
að ég þekki
það ekkert“
■ Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fékk á dögunum góða gjöf þegar
Krabbameinsfélag Suðurnesja færði
stofnuninni meðferðarstól ásamt
aukahlutum. Stóllinn er á dagdeild
sjúkrahússins og verður notaður til
lyfjagjafa fyrir krabbameinssjúkl-
inga. Á vef HSS segir að forsvars-
fólk stofnunarinnar kunni Krabba-
meinsfélagi Suðurnesja miklar
þakkir fyrir höfðinglega gjöf sem
muni koma að góðum notum í þjón-
ustu við íbúa á Suðurnesjum.
Krabbameinsfélag Suðurnesja færði HSS góða gjöf
Guðmundur Björnsson, formaður Krabbameinsfélags Suðurnesja, afhenti
stólinn á dögunum. Með honum á myndinni eru Halldór Jónsson, forstjóri HSS,
Þórunn Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Bryndís Sævarsdóttir,
deildarstjóri D-deildar. Mynd af vef HSS.
Holt á miðbæjarsvæði í Vogum
■ Fjórar nýjar götur á svokölluðu
Miðbæjarsvæði í Vogum hafa fengið
nöfn. Göturnar munu bera nöfnin
Skyggnisholt, Breiðuholt, Lyngholt
og Keilisholt. Umhverfis- og skipu-
lagsnefnd Voga hefur samþykkt
tillögu Oktavíu Ragnarsdóttur um
nöfnin.
Þá liggur fyrir yfirferð og mat á tilboði
lægstbjóðanda í gatnagerð á mið-
svæði en ráðist verður í gatnagerðina
á þessu ári. Lagt er til að gengið verði
til samninga við lægstbjóðanda, Jón
og Margeir ehf., á grundvelli tilboðs
þeirra.
Tóku tilboði Hýsis í
bráðabirgðahúsnæði
grunnskóla
■ Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
samþykkt að taka tilboði frá Hýsi
í tímabundið húsnæði grunnskóla
í Dalshverfi í Innri Njarðvík. Til-
boðið var samþykkt á fundi bæjar-
ráðs 27. apríl síðastliðinn. Tilboð
Hýsis er upp á 131.489.115 krónur.
Í tímabundna kennsluhúsnæðinu
verða kennslustofur, fjölnota salur og
starfsmannaaðstaða. Í haust verður
byrjað með kennslu fyrir nemendur í
1. til 3. bekk.
10 ára
KEILIR Á ÁSBRÚ
á Hringbraut fimmtudagskvöld kl. 20:00 og 22:00