Víkurfréttir - 04.05.2017, Síða 8
8 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og
jákvæðum starfsmanni í sumarstarf (2017) þjónustufulltrúa á
starfsstöð í Keflavík.
Stutt lýsing á starfi:
· Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og
móttaka við leiguskil
· Samskipti við innlenda sem erlenda söluaðila· Upplýsingagjöf, sala þjónustu og skráning bókana
Hæfniskröfur:
· Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi· Hæfni í tölvunotkun· Gilt bílpróf· Framúrskarandi þjónustulund· Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Unnið er á vöktum frá 06:00-18:00 og 18:00-06:00 (5/4)
Æskilegt er að viðkomandi sé búsettur á svæðinu.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf)
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2017
Þjónustufulltrúi
í Bílaleigu
í Keflavík
SUMAR
2017
Thrifty Atvinnuauglysing 20170502_END.indd 1 02/05/2017 14:02
■ Nú styttist í að teknir verði í notkun
nýir útsýnispallar við Brimketil á
Reykjanesi. Starfsmenn frá ÍAV hafa
í vetur unnið að smíði pallanna sem
nú er verið að setja upp. Nú er unnið
að því að leggja ristarnar í gólfið.
Stefnt er að formlegri opnun í Geop-
ark-vikunni sem í ár er 29. maí til 3.
júní. Meðfylgjandi myndir tók Egg-
ert Sólberg Jónsson hjá Reykjanes
Geopark af pöllunum við Brimketil.
Útsýnispallar taka á
sig mynd við Brimketil
■ Fjallræðan verður umfjöllunar-
efni Queen-messu sem flutt verður
í Keflavíkurkirkju þann 14. maí
næstkomandi en þar mun Jón Jósep
Snæbjörnsson, betur þekktur sem
Jónsi í Svörtum fötum, flytja þekkt
lög Queen við íslenska texta ásamt
hljómsveit og Kór Keflavíkurkirkju.
Sóknarpresturinn Erla Guðmunds-
dóttir mun leggja stuttlega út frá
stefum fjallræðunnar á milli laga en
hún segir hugmyndina hafa kviknað
fyrir þremur árum.
„Sú hugmynd að gera íslenska trúar-
lega texta við þekkta tónlist hljóm-
sveitarinnar Queen kom frá kór-
félögum fyrir nokkrum árum en
kórinn hafði áður flutt messu með
trúarlegum textum við lög U2 og Jesus
Christ Superstar og komust færri að en
vildu sem er skemmtilegt að segja frá.
Kórinn vildi gera eitthvað afgerandi í
tilefni af 500 ára siðbótarafmæliinu en
árið 1517 hengdi munkurinn Martin
Lúther 95 greinar á hallardyrnar í
Wittenberg í Þýskalandi sem markaði
upphaf siðbótarhreyfingarinnar. Fáir
í nútímanum þekkja Lúther eða gera
sér grein fyrir hversu mikilð velferða-
samfélag okkar er byggt á honum. Því
hvet ég fólk til að „googla“ kallinn og
kynnast honum aðeins og hvað sið-
bótin var og er, “ segir Erla kankvís.
En hvert er markmiðið með þessu
framtaki og á popp erindi í kirkj-
una?
„Svo sannarlega á popp erindi í
kirkjuna. Lúther gaf góð ráð um það
hvernig ætti að sigrast á erfiðleikum
lífsins með lífsgleðinni. Lúther sagði
að þegar þunglyndi og dimmir dagar
sækja að eiga menn að grípa til lífs-
gleðinnar, borða vel og drekka, því
djöfullinn ætti erfiðara með að glíma
við þá sem væru með magann fullan
af góðum mat og höfuðið fullt af
skemmtilegum sögum. Tónlist, dans
og íþróttir væru líka mikilvæg, enda
sagði Lúther djöfulinn ekki þola að
hjarta mannsins gleddist og sérstak-
lega þegar það tengist orði Guðs. Þetta
var grundvallarafstaða hans til lífsins.
Djöfullinn er nú ekki mikið í daglegri
umræðu okkar en þetta með sönginn
er svo satt. Hann er sáluhjálp”, segir
Erla og tekur fram að söngurinn hafi
alltaf verið einn af sterkum þáttum
safnaðarstarfsins í Keflavíkurkirkju.
„Við eigum einn mesta og besta organ-
ista landsins, með fallegt trúarhjarta
og drifkraft sem er öðrum hvatning
og hefur leitt marga til bjartari daga
í söng. Á Lúthersárinu er markmið
Keflavíkurkirkju að leggja til tónlistar-
gleði með Guðs orði og svo sannarlega
verður enginn djöfull í kring,“ segir
Erla og hlær.
Fjallræðan er umfjöllunarefnið,
hvers vegna og hvert er innihald
hennar?
„Þessi merkasta ræða allra tíma sem
Jesús flutti á fjallinu er myndefni
altaristöflunnar okkar í Keflavíkur-
kirkju. Því þótti okkur tilvalið að
söngtextarnir myndu fjalla um hvert
stef ræðunnar.
Hún er ekki mjög löng en afar inni-
haldsrík og rituð í 5 til 7. kafla Matte-
usarguðspjalls. Í fjallræðunni eru
perlur sem margir kannast við eða
þekkja. Eins og orðin um að við eigum
ekki hafa áhyggjur af morgundeg-
inum, því hann hafi sínar áhyggjur.
Þar er gullna reglan sem hvetur okkur
til að líta í eigin barm áður en við
aðhöfumst gagnvart öðrum, einnig
er tvöfalda kærleiksboðorðið þar að
finna sem og orðin um hinn vangann
og dæmisöguna af húsunum á bjargi
og sandi.”
Í fjallræðunni er að finna Faðir vorið,
sjálfa bænina sem Jesús kenndi, sælu-
boðið og svo margt fleira og hvetur
Erla fólk til að lesa þá ræðu þar sem
hún hafi ráð við svo mörgu í and-
streymi daganna.
„Ef við stöndum frammi fyrir erfið-
leikum og vandasömum ákvörðum
ættum við að lesa fjallræðuna, ef ekki
aftur og aftur. Fjallræðan hefur að
geyma meginatriðin í siðakenningu
Jesú þar sem hann kemur fram með
nýtt og mikilvægt viðhorf.”
Queen-messan verður flutt tvisvar í
Keflavikurkirkju, klukkan 17 og 20
og er miðaverð 1.500 krónur. Forsala
miða fer fram í Keflavíkurkirkju og
hjá kórfélögum en eins verður hægt að
kaupa miða við innganginn.
Verulegur afkomubati – ánægjuleg tilbreyting
Árrsreikningur Reykjanesbæjar og stofnana hans fyrir árið 2016 sýnir glöggt að verulegur við-
snúningur hefur orðið í rekstri Reykjanesbæjar.
Bæði bæjarsjóður (A hluti) og sam-
stæða ( A og B hluta fyrirtæki í eigu
eða meirihlutaeigu sveitarfélagsins)
skila jákvæðri rekstrarniðurstöðu og
markar slíkt þáttaskil.
Afkoma bæjarsjóðs fyrir afskriftir og
fjárhagsliði er jákvæð um kr. 1.759
milljónir sem gefur tæplega 14%
framlegð og er rekstrarniðurstaða
bæjarsjóðs jákvæð um tæpar 49 millj-
ónir.
Afkoma samstæðu fyrir afskriftir og
fjármagnsliði er jákvæð um rúman 4,1
milljarð sem gefur rúmlega 21% fram-
legð og er rekstrarniðurstaða sam-
stæðu jákvæð um 92 milljónir. Um
er að ræða talsverðan afkomubata frá
fyrri áætlunum sem voru settar fram
með varfærnissjónarmið í huga.
Verulegur tekjuauki og mikið að-
hald
Þessi niðurstaða hefur orðið til af
tvennu þ.e. talsverðum tekjuauka
vegna fjölgunar starfa og minnkandi
atvinnuleysis en ekki síður vegna
mikils aðhalds í rekstri.
Sú sýn Sjálfstæðismanna um að vaxta-
berandi skuldasöfnun þeirra í gegnum
árin, sem þeir nefna fjárfestingar, sé
nú skila sér, hlýtur að teljast æði sér-
kennileg þegar ljóst er að minnkandi
atvinnuleysi á svæðinu vegna fjölg-
unar starfa í Flugstöð ræður þar mestu
um þá miklu breytingu sem nú er að
eiga sér stað.
Þeir geta heldur ekki þakkað sér til-
tekt í rekstri sem þeir greiddu atkvæði
gegn á sínum tíma.
Reykjaneshöfn áfram með neikvæða
afkomu
þrátt fyrir þennan afkomubata er
rekstrarniðurstaða Reykjaneshafnar
áfram neikvæð og verður svo áfram
nái áætlanir um uppbyggingu í Helgu-
vík ekki fram að ganga. Því er nauð-
synlegt að fylgja eftir þeim áætlunum
til að koma í veg fyrir að það reyni á
ábyrgð bæjarins á skuldum hafnar-
innar.
Skuldaviðmið lækkar
Sá tekjuauki sem orðið hefur á ár-
inu leiðir það af sér að skuldaviðmið
lækkar. Á sama tíma hafa fjárfestingar
ekki aukist og því sjáum við verulegar
breytingar hvað þetta varðar. Skulda-
viðmiðið á samstæðu er nú komið í
209% en var 234% þegar að núver-
andi meirihluti tók við. Skuldavið-
mið bæjarsjóðs hefur einnig lækkað
verulega og er nú komið í tæp 167%.
Við höfum því fimm ár til að koma
skuldaviðmiði samstæðu úr 209% í
150% eins og lög mæla fyrir um. Það
mun krefjast verulegrar útsjónarsemi
því á sama tíma mun Reykjanesbær
þurfa auka fjárfestingar í innviðum
vegna mikillar fjölgunar íbúa.
Siglt í rétta átt
Með þessari rekstrarniðurstöðu er
ljóst að verið er að sigla í rétta átt þótt
lítið megi út af bregða. Eiginfjárstaða
sveitarfélagsins er ekki góð og skuldir
alltof miklar. Núverandi meirihluti
lagði áherslu á að gæta aðhalds og
það hefur hann gert en jafnframt lagt
áherslu á að gæta að stöðu barnafjöl-
skyldna í bænum okkar.
Því verkefni sem við tókumst á hendur
eftir síðustu kosningar er hvergi nærri
lokið og því verður ekki lokið fyrr
en skuldaviðmiðið er komið undir
150% og eftirlitsnefnd með fjármálum
sveitarfélaganna sleppir hendinni af
Reykjanesbæ.
Guðbrandur Einarsson Bein leið
Friðjón Einarsson
Samfylking og óháðir
Gunnar Þórarinsson Frjálst afl
Kristján Jóhannsson Bein leið
Guðný Birna Guðmundsdóttir
Samfylking og óháðir
Davíð Páll Viðarsson Frjálst afl
Queen-messa í Keflavíkurkirkju
Tónlistargleði með guðs orði
SUNNUDAGUR 7. MAÍ
Holtaskólabörn verða fermd í
tveimur athöfnum klukkan 11 og 14
af prestum kirkjunnar, Erlu og Evu
Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur
undir stjórn Arnórs organista og
messuþjónar verða Stefán Jónsson,
Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór
Jakobsson.
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ KL. 11:00
Vorferð Kyrrðastundarsamfélagsins,
Neskirkja í Reykjvík verður sótt heim
og þar tekur sr. Skúli Ólafsson á
móti okkur. Við fræðumst um sögu
Neskirkju og sækjum kyrrðastund og
boðið verður uppá súpu og brauð í
safnaðarheimili Neskirkju.
Fimmtudagskvöld kl. 20:00