Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 12
12 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Thrifty Car Rental, bílaleiga Brimborgar, leitar að röskum og
jákvæðum starfsmanni í framtíðarstarf þjónustufulltrúa á starfsstöð
í Keflavík.
Stutt lýsing á starfi:
· Afhending bíla til erlendra sem innlendra viðskiptavina og
móttaka við leiguskil
· Samskipti við innlenda sem erlenda söluaðila· Upplýsingagjöf, sala þjónustu og skráning bókana
Hæfniskröfur:
· Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegu starfi· Hæfni í tölvunotkun· Gilt bílpróf· Framúrskarandi þjónustulund· Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Unnið er á vöktum frá 06:00-18:00 (2,2,3).
Æskilegt er að viðkomandi sé búsettur á svæðinu.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á www.brimborg.is (laus störf)
Umsóknarfrestur er til 12. maí 2017
Þjónustufulltrúi
í Bílaleigu
í Keflavík
FRAMTÍÐAR
STARF
Thrifty Atvinnuaugl. framtíðarstarf 20170502_END.indd 1 02/05/2017 14:02
Listahátíð barna í Reykjanesbæ
verður sett með pompi og prakt
fimmtudaginn 4. maí í tólfta sinn.
Hátíðin er samvinnuverkefni
Listasafns Reykjanesbæjar, allra
10 leikskóla bæjarins, allra 6
grunnskólanna, Tónlistarskólans,
dansskólanna Bryn Ballett Aka-
demíunnar og Danskompanís og
listnámsbrautar Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Duus Safnahús undirlögð
Duus Safnahús verða undirlögð undir
myndlistarsýningar leik-, grunn- og
framhaldsskólans auk þess sem þar
verður sýning á verkum eftir tón-
skáldið og myndlistarmanninn Haf-
liða Hallgrímsson. Nemendur hafa
unnið hörðum höndum stóran part
úr vetri að verkefnum sínum sem líta
dagsins ljós á hátíðinni en yfirskrift
sýninganna er Dýrin mín stór og smá.
Hægt er að fullyrða að þótt einstaka
furðufugl hafi stundum ratað inn í
Duus Safnahús hefur dýralífið þar
aldrei verið jafn fjölbreytt og nú og
þótt víðar væri leitað. Þar getur að líta
allt frá músum upp í gíraffa og ýmis
konar furðuskepnur og má enginn
láta þessar skemmtilegu sýningar
fram hjá sér fara.
Hæfileikahátíð grunnskólanna í Stapa
Föstudaginn 5. maí fer fram Hæfi-
leikahátíð grunnskólanna í Stapa þar
sem úrval stórglæsilegra árshátíðarat-
riða úr öllum grunnskólum bæjarins
verða sýnd fyrir fullu húsi.
Frábær fjölskyldudagur
Laugardaginn 6. maí er svo boðið upp
á skemmtilegan fjölskyldudag með alls
kyns listasmiðjum og uppákomum og
af því tilefni hrærir Skessan í hellinum
í lummusoppu og býður gestum og
gangandi upp á rjúkandi lummur.
Meðal þeirra verkefna sem unnið
hefur verið að í tilefni hátíðarinnar er
samtvinnun tónlistar og myndlistar
út frá tónverkum og myndverkum
tónskáldsins og myndlistarmanns-
ins Hafliða Hallgrímssonar en hann
færði Listasafni Reykjanesbæjar veg-
lega myndlistargjöf nýlega sem varð
kveikjan að þessu verkefni. Um eins
konar gjörning verður að ræða laugar-
daginn 6. maí og verður listamaður-
inn sjálfur viðstaddur þegar hann fer
fram.
Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á
Facebook síðunni Listahátíð barna í
Reykjanesbæ og á vefsíðunni reykja-
nesbaer.is.
Skessan í
hellinum
býður til
Listahátíðar
barna
Fjölskyldudagskrá
laugardaginn 6. maí
Okkur vantar fólk til framleiðslustarfa
við framleiðslu á Fíbra-einingum.
Um er að ræða framtíðarstörf. Reynsla af hverskonar
handverki er hefur áhrif á launin til hækkunar. Mikil
vinna framundan. Uppl. í Jónsvör 5. Vogum.
Regin Eysturoy Grímsson
Framkvæmdastjóri/Direktor
Sérfr í trefjaplasti / fiberglass specialis
Sími/Tel(+354) 772-9296 regin@fibra.is
Gerðaskóli er rúmlega 200 barna skóli í Sveitarfélaginu
Garði. Þar búa rúm 1500 íbúa. Nánari upplýsingar um
Garð er að finna á heimasíðunni www.svgardur.is
Gildi skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing,
gleði, leikur, sköpun, ábyrgð.
Gerðaskóli auglýsir eftir aðstoðarskólastjóra
Staða aðstoðarskólastjóra við Gerðaskóla í Garði
er laus til umsóknar.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2017.
Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að viðhalda og
byggja upp öflugt skólasamfélag af metnaði og dugnaði
með virðingu og ánægju að leiðarljósi.
Markmið og verkefni
• Fagleg forysta
• Stjórnun, ábyrgð á daglegri starfsemi sem stað-
gengill skólastjóra í forföllum hans
• Stuðla að framþróun skólastarfsins
• Aðkoma að ráðningum, mannauðsstjórnun og
vinnutilhögun
• Þekking og góður vilji til að leiða samstarf skóla-
samfélagsins út frá skólastefnu sveitarfélagsins
og gagnvart samstarfsverkefnum/samningum
sem skólinn á við aðrar stofnanir
Menntun, færni og eiginleikar
• Grunnskólakennaramenntun og önnur reynsla
skv. lögum nr. 87/2008, 12. gr.
• Framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
• Reynsla af skipulagi og stjórnun kostur
• Mjög góð færni í samskiptum og góð meðmæli
þar um
• Hvetjandi og góð fyrirmynd
Umsóknarfrestur er til 18. maí.
Umsóknir, ásamt ferilskrá og upplýsingum um um-
sagnaraðila berist á netfangið johann@gerdaskoli.is eða
ragnhildur@gerdaskoli.is
Heimasíða skólans er gerdaskoli.is og sími 4227020
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Geirdal skólastjóri, sími
8984808.
ATVINNA