Víkurfréttir - 04.05.2017, Síða 14
14 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
@haskolinnireykjavik @haskolinn #haskolinnrvk @haskolinn
„Vestmannaeyjar eru mjög hentugur staður til að
stunda nám í haftengdri nýsköpun því maður kemst
ekki mikið nær sjávarútveginum en einmitt hér í
Eyjum. Námið er stutt og hnitmiðað og ekki skemmir
það heldur hversu samheldinn hópurinn verður.”
Svanhildur Eiríksdóttir
Nemi í haftengdri nýsköpun
„Þetta er frábært nám ef þú vilt öðlast
þekkingu á sjávarútvegi og öllu sem honum
tengist. Það gefur fólki möguleika á að koma
sínum nýsköpunarhugmyndum á framfæri
og vinna raunverkefni með atvinnulífinu.“
Hallgrímur Þórðarson
Nemi í haftengdri nýsköpun
Opið fyrir
umsóknir til
5. júní
Haftengd
nýsköpun
Eins og hálfs árs diplómanám sem þjálfar nemendur í
fjármálum og vöruþróun í sjávarútvegi. Kennt er í fjarnámi
eða í staðarnámi í Vestmannaeyjum.
Námið er samstarf Háskólans í Reykjavík og Háskólans
á Akureyri. Hægt er að nýta einingar áfram í grunnnám á
ákveðnum sviðum við HR og HA.
Frekari upplýsingar um námið:
hr.is/grunnnam/haftengd-nyskopun
■ Troðfullt var í Stapa þegar alþjóð-
legur dagur verkafólks, 1. maí, var
haldinn hátíðlegur. Í ár var yfirskrift
dagsins „Húsnæðisöryggi: Sjálfsögð
mannréttindi“. Guðbjörg Krist-
mundsdóttir, varaformaður VSFK,
setti hatíðardagskrána en á undan
henni lék Guðmundur Hermanns-
son nokkur lög fyrir gesti. Þá flutti
Kristján Þórður Snæbjarnarson, for-
maður RSÍ ræðu. Kynnir dagsins var
Guðbrandur Einarsson, formaður
Verslunarmannafélags Suðurnesja
og formaður Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna. Leik-
félag Keflavíkur sýndi brot út Litlu
Hryllingsbúðinni, Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson
spiluðu nokkur lög og formlegri
dagskrá lauk með söngsveitinni
Víkingum. Að dagsskrá lokinni var
boðið upp á léttar veitingar.
Glimrandi
góð þátttaka á
1. maí
Kristján Þórður Snæbjarnarson,
formaður RSÍ, flutti ræðu dagsins.
Salurinn var þétt setinn
á hátíðarsamkomunni.
Söngsveitin Víkingar söng undir
stjórn Jóhanns Smára Sævarssonar.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
og Davíð Sigurgeirsson
spiluðu nokkur lög.
Leikfélag Keflavíkur
sýndi brot út Litlu
Hryllingsbúðinni.