Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 20
20 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
VIÐBURÐIR
LÉTTUR FÖSTUDAGUR Á NESVÖLLUM
Spilabingó kl. 14:00 þann 5. maí. Allir hjartanlega velkomnir.
VILL ÞITT FYRIRTÆKI TAKA ÞÁTT Í HREYFIVIKU?
Hreyfivika UMFÍ verður 29. maí til 4. júní. Hægt er að senda til-
kynningu um þáttöku á hreyfivika@gmail.com fyrir 15. maí.
LISTAHÁTÍÐ BARNA ER HAFIN
Flottur fjölskyldudagur laugardaginn 6. maí. Kynnið ykkur dag-
skrána á Facebooksíðunni Listahátíð barna í Reykjanesbæ
eða á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.
RAPPSMIÐJA Í BÓKASAFNI REYKJANESBÆJAR
Laugardaginn 6. maí kl. 13:00 hefst rappsmiðja með rapparanum
GKR í tilefni listahátíðar barna. Smiðjan er fyrir börn 9 til 12 ára
og er þátttaka ókeypis. Skráning í afgreiðslu safnsins eða á
vefnum sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn.
Deildarstjóri yngra stigs
Kennarar
Umönnunarstarf fatlaðra barna
Safnfulltrúar
Sérkennslustjóri
Umsjónarkennari á miðstigi
Íþróttakennari
Starfsmenn í sumardagvistun fatlaðra barna
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari
upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni Reykja-
nesbær - laus störf.
HEIÐARSKÓLI
HÁALEITISSKÓLI
VELFERÐARSVIÐ
DUUS SAFNAHÚS
LEIKSKÓLINN HOLT
HOLTASKÓLI
AKURSKÓLI
ÖSPIN
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er
komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex
mánuði.
■ Kveikjan að verkefninu Sam-
tvinnun tónlistar og myndlistar var
sú að Listasafni Reykjanesbæjar
barst síðasta haust vegleg lista-
verkagjöf frá Hafliða Hallgrímssyni
tónskáldi sem búið hefur í Skotlandi
um árabil. Hafliði er, eins og margur
listamaðurinn, hagur á fleiri en eina
listgrein og ásamt því að vera eitt af
fremstu tónskáldum þjóðarinnar
hefur hann iðkað myndlist um ára-
bil. Gjöfin samanstóð af sjö mál-
verkum og fjórtán grafíkverkum,
nánar tiltekið silkigrafík og öll
verkin voru abstrakt.
Verkefnið gekk út á að halda sér-
stakt námskeið eða vinnusmiðju með
ungu fólki í Reykjanesbæ í tengslum
við Listahátíð barna í maí, þar sem
unnið væri með tengingu tónlistar
og myndlistar og listaverk Hafliða,
bæði myndverk og tónverk, yrðu lögð
fram sem kveikja. Unnið var með
nemendum bæði í tónlist og myndlist
og áhersla lögð á tónsmíðar og gerð
myndverka. Sérmenntaðir leiðbein-
endur voru fengnir til að vinna með
unga fólkinu, annars vegar tónskáld
og tónlistarkennarar frá Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar og hins vegar
myndlistarmenn og myndlistarkenn-
arar frá Listasafni Reykjanesbæjar og
þremur grunnskólum bæjarins. Hóp-
arnir unnu svo ýmist einir eða allir
saman í rúma tvo mánuði og verður
afraksturinn kynntur með uppákomu
í Bíósal Duus Safnahúsa laugardaginn
6. maí klukkan 13:00.
Hafliði Hallgrímsson verður kynntur
og opnuð samsýning á málverkum
hans og myndverkum unga fólksins
sem unnin voru á tímabilinu. Einnig
verður leikin tónlist eftir Hafliða og
úrval af þeim tónverkum sem samin
voru á námskeiðinu. Uppákomunni
lýkur svo með gjörningi þar sem tón-
listarnemendur túlka valið verk eftir
Hafliða í frumsaminni tónlist og á
sama tíma munu myndlistarnem-
endur túlka tónlist samnemendanna
í myndverkum. Þetta er liður í Lista-
hátíð barna í Reykjanesbæ og allir
hjartanlega velkomnir. Verkefnið
hlaut styrk frá Uppbyggingarsjóði
Suðurnesja.
Samtvinnun tónlistar og myndlistar
Rótarýdagurinn 2017
■ Rótarýklúbbur Keflavíkur varð
72 ára í ár og hefur allan þennan
tíma skipað sitt hlutverk í félaga-
flóru Suðurnesja. Stofnfélagar
á sínum tíma voru ýmsir mektar-
menn sem vildu taka þátt í að byggja
upp gott samfélag hér á svæðinu og
tóku þeir þátt í alls kyns samfélags-
verkefnum sem öll miðuðu að því
að gera Keflavík að betri bæ til að
búa í. Laugardagurinn 6.maí er svo-
kallaður Rótarýdagur og með grein
þessari langar okkur klúbbfélaga að
vekja athygli á klúbbnum og þeim
markmiðum sem félagarnir fylgja
enn þó svo að ýmislegt annað hafi
breyst hér í bæ, hér í Reykjanesbæ.
Rótarý er alheimshreyfing þar sem
félagar eru valdir án tillits til trúmála,
stjórnmála eða þjóðernis. Markmið
klúbbsins eru að auka kynni á meðal
fólks, efla siðgæði í leik og starfi, auka
viðurkenningu á gildi nytsamra starfa,
efla virðingu félaga fyrir eigin starfi,
setja þjónustu við aðra ofar eigin hag
og efla góðvild og frið milli þjóða.
Einkunnarorð Rótarý, svokallað fjór-
próf hljóðar svo: Er það satt og rétt?
Er það drengilegt? Eykur það velvild
og vinarhug? Er það öllum til góðs?
Við getum við öll verið sammála um
að þar sem þessi orð eru iðkuð ætti
að vera gott samfélag. Það má nefna
sérstaklega tvö samfélagsverkefni sem
Rótarýklúbbur Keflavíkur hefur sinnt
hér í heimabyggð á liðnum árum og
eru það Krabbameinsfélag Suður-
nesja og Skógræktarfélag Suður-
nesja. Klúbburinn hefur einnig stutt
frumkvöðla með ákveðnum styrk-
veitingum og oft hlaupið undir bagga
í einstökum stuðningsverkefnum
í bæjarfélaginu. Klúbburinn hefur
einnig tekið þátt í fjölda hjálparverk-
efna á heimsvísu með öðrum Rótarý-
klúbbum og er skemmst að minnast
Polio plus herferðarinnar sem sett var
af stað í þriðja heiminum til að út-
rýma lömunarveiki.
En Rótarý er líka gert fyrir ein-
staklinginn og ég get hæglega nefnt
sjálfa mig sem dæmi. Ég var í þessum
fyrsta hópi kvenna sem var hér um
árið boðið á kynningarfund í karla-
klúbbinn Rótarý af þáverandi forseta,
kvenlækninum Konráð Lúðvíkssyni.
Hvort hann þótti hafa auðveldari að-
gang að kvenfólki bæjarins eða hver
svo sem ástæðan var, þá fóru að tínast
inn konur í klúbbinn á þessum tíma!
Mín staða þá, var að ég var virkur
meðlimur í nokkrum hópum sem allt
voru flottir hópar en kannski svolítið
einslitir, svona faghópar, kynskiptar
klíkur. Þegar þarna var komið við
sögu var ég nýkomin í nýja vinnu og
vantaði nýtt tengslanet og svo var ég
líka svolítið forvitin, hvernig skyldu
svona karlaklúbbar virka? Rótarý sem
starfsgreinaklúbbur vakti hjá mér
meiri áhuga en ýmsir aðrir hópar því
ég bjóst við að þarna gæti verið fjöl-
breyttur hópur með mismunandi bak-
grunn og fjölbreytt áhugamál. Og
það var einmitt lóðið. Í Rótarý fáum
við vikulega fjölbreytta fyrirlestra um
alls kyns efni og þar er alltaf verið að
skoða þau málefni sem eru efst á baugi
hverju sinni og skipta máli og það á
vandaðan og faglegan hátt. Þarna fá
félagar nasasjón af ýmsu sem þeir ann-
ars myndu aldrei láta sér detta í hug að
kynna sér að fyrra bragði þannig að
sjóndeildarhringurinn kemst ekki hjá
því að víkka, þeim sjálfum og örugg-
lega samfélaginu líka til góðs. Fjöl-
breytni hópsins er ekki einungis falin
í mismunandi starfsgreinum heldur
einnig breiðu aldursbili og báðum
kynjum sem gefur þessu enn meiri
breidd. Og ég fullyrði það hér og nú að
jafnrétti kynjanna er vel gætt í Rotary
og á mjög svo afslappaðan og eðli-
legan máta, þ.e. a.s. þannig að maður
tekur ekkert eftir því og er ekkert að
spá í það. Það bara er.
Rótarý er sem sagt ekki bara skemmti-
legur félagsskapur heldur hefur hann
líka góð gildi sem eru þess verð að
vinna að. Þar er borin virðing fyrir
samfélagslegri ábyrgð og þar er unnið
að alþjóðlegu hjálparstarfi. Rótarý
er góður hópur karla og kvenna sem
býður upp á skemmtilegan og þrosk-
aðan félagsskap og gefandi tengslanet
bæði innanlands sem utan. Ef áhugi
einhverra vaknar á að kynna sér Rót-
arýklúbb Keflavíkur betur við lestur
þessarar greinar, þá má hafa samband
við undirritaða.
Valgerður Guðmundsdóttir
forseti Rótarýklúbbs Keflavíkur
■ Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur
verið ráðin forstöðumaður Fjör-
heima og 88 Hússins. Gunnhildur er
uppeldis- og menntunarfræðingur
frá Háskóla Íslands og hefur starfað
sem tómstundaráðgjafi í Fjör-
heimum undanfarin ár ásamt því að
starfa í Frístundaskólanum í Myllu-
bakkaskóla og að undanförnu sem
umsjónarmaður Frístundaskólans í
Myllubakkaskóla.
Gunnhildur Gunnars-
dóttir nýr forstöðu-
maður Fjörheima og
88 Hússins
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900