Víkurfréttir - 04.05.2017, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Vilt þú vera í sterku liði?
Landhelgisgæsla Íslands
er löggæslustofnun sem
hefur það hlutverk að sinna
löggæslu og eftirliti sem og
leit og björgun á hafsvæðinu
umhverfis Ísland. Einnig
fer Landhelgisgæslan með
daglega framkvæmd öryggis-
og varnarmála samanber
varnarmálalög nr. 34/2008,
þ.m.t. er rekstur Öryggissvæða,
mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar
Atlantshafsbandalagsins/LHG
og ratsjár- og fjarskiptastöðva.
Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi viðkomandi
stéttarfélags og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
�
�
�
�
�
Umsóknarfrestur
15. maí
Landhelgisgæsla Íslands leitar að reglusömum og nákvæmum einstaklingum með góða samskiptahæfileika í þrjú störf sem öll eru
með aðal staðsetningu á starfsstöð Landhelgisgæslunnar í Keflavík.
Viðkomandi skulu vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa góða íslensku- og enskukunnáttu, góða almenna tölvukunnáttu og hafa
gild ökuréttindi. Ítarlegri lýsingu á störfunum má nálgast á heimasíðu Capacent.
Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu umsækjendur uppfylla
skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.
Capacent — leiðir til árangurs
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf eða önnur menntun sem
nýtist í starfi.
Reynsla sem nýtist í starfi.
Líkamleg geta til að starfa við erfiðar
aðstæður.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Gott almennt nám tengt tæknimálum og/
eða flugi.
Grunnnám í flugumferðarstjórn, flugnám
eða annað flugtengt nám er kostur.
Góð tækniþekking og reynsla í
tækniumhverfi æskileg.
Geta til að vinna vaktavinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf eða önnur menntun sem
nýtist í starfi.
Reynsla á sviði þjálfunar- og gæðamála.
Fagmennska, skipulagshæfileikar og geta
til að vinna sjálfstætt.
Frumkvæði og geta til að vinna undir
álagi.
�
�
�
�
�
�
�
Upplýsingar og umsókn
capacent.is/s/4930
Upplýsingar og umsókn
capacent.is/s/4931
Upplýsingar og umsókn
capacent.is/s/4933
GAGNAFULLTRÚI
Gagnafulltrúi óskast í stjórnstöð
Atlantshafsbandalagsins/LHG á
Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Um vaktavinnu er að ræða. Helstu
verkefni eru loftrýmiseftirlit, stuðningur
við loftrýmisgæslu og samskipti við
stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins.
FULLTRÚI ÞJÁLFUNAR- OG
GÆÐAMÁLA VARNARTENGDRA
VERKEFNA
Helstu verkefni eru umsjón og
samræming þjálfunar starfsmanna
vegna varnartengdra verkefna auk
gæðaeftirlits. Meginstarfssvæðið er á
Öryggissvæðunum á Keflavíkurflugvelli,
ratsjár- og fjarskiptastöðvunum
(Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfs-
víkurfjalli og Stokksnesi) og öðrum
tengdum svæðum. Starfið krefst
tilfallandi ferða á stöðvarnar.
VERKEFNASTJÓRI Á SVIÐI ÁÆTLUNAR
OG ÞRÓUNAR ÖRYGGISSVÆÐANNA,
UMHVERFISMÁLA OG SVÆÐIS-
SKIPULAGSMÁLA
Leitað er að verkefnastjóra til að taka
þátt í starfi við framtíðaruppbyggingu
Öryggissvæðanna og samræmingu með
þeim verkefnum. Í starfinu felst þátttaka
í gerð og viðhaldi langtímaáætlunar
um þróun, rekstur, uppbygginu og
hagnýtingu Öryggissvæðanna. Auk
þess sinnir viðkomandi umsjón með
umhverfismálum Öryggissvæðanna og
tekur þátt í svæðisskipulagsverkefnum.
Það er mikil gæfa að eiga góða vini.
Kalli Sævar var einmitt svoleiðis vinur.
Hann var einn af þeim fyrstu sem ég
kynntist þegar ég flutti til Keflavíkur
enda stutt á milli "Street" og Hafnar-
götu 18. Kalli var einn af þeim sem
vakti áhuga minn á ferðalögum sem
hann hafði stundað þá um tíma ásamt
vinum sínum, sem urðu svo einn-
ig vinir mínir. Leiðir okkar Huldu
með Höllu og Kalla lágu oft saman,
á heimaslóðum og í fjallaferðum. Í
slíkum ferðum kynnist maður fólki
vel og við það myndast iðulega ótrú-
lega sterk vinabönd.
Þegar umræðan um stofnun björg-
unarsveitarinnar Stakks hófst var
Kalli þar fremstur í flokki og manna
áhugasamastur um starf og velgengni
hennar. Sjómennska var honum í blóð
borin og allt sem að henni snéri enda
varið löngum stundum á sjó. Hann
gat því upplýst okkur um allt sem að
sjómennsku snéri við æfingar sveitar-
innar. Þau tóku frá byrjun fullan
þátt í starfi björgunarsveitarinnar af
miklum áhuga og sinnti Kalli þar öllu
sem þurfti til að efla starf hennar í
hvívetna. Hann var lengi vel varafor-
maður sveitarinnar og tók svo við sem
formaður árið 1977.
Við félagarnir í Stakki unnum af
miklum áhuga og krafti við æfingar
fjáraflanir og öll þau verkefni sem
sveitin þurfti að sinna til að gegna
hlutverki sínu, sum stór og önnur
smærri. Björgun og leitir voru eðli-
lega aðaltilgangur hennar, með hléum
að vísu og svo ekki má gleyma upp-
byggingarstarfi sveitarinnar við að
koma sér upp tækjabúnaði, húsnæði
og björgunarbifreiðum. Öllu þessu
sinnti Kalli af miklum áhuga og sam-
viskusemi.
Þrátt fyrir mikið annríki við starf
okkar í Stakki sinntum við áfram
áhuga okkar á ferðalögum til fjalla.
Við höfðum lengi rennt hýru auga
til jöklanna, þessa stóru víðlendu
risa sem blöstu við okkur alls staðar
sem við fórum um hálendið og rætt
mikið um hvernig við gætum komið
okkur upp búnaði til að ferðast um
þá. Það varð svo úr að við Kalli ásamt
nokkrum félögum okkar úr Stakki
eignuðumst saman tvo snjóbíla sem
notaðir voru til jökla og vetrarferða
árum saman. Í slíkum ferðum var
Kalli í essinu sínu.
Ferðir inn á hálendið með fjölskyldum
ásamt nokkrum ferðum á Vatnajökul
skildu eftir ómetanlega ánægju og
minningar. Hálendisferðir voru þá
ekki algengar og þarna voru vetrar- og
jöklaferðir enn sjaldgæfari. Eftir langt
og gæfuríkt starf innan björgunar-
sveitarinnar tóku nokkrir félagar sig
saman um að stofna ferðahóp til að
viðhalda tengslum og minningum um
þá góðu tíma sem við erum búin að
eiga í starfi og ferðum og voru þau
Kalli og Halla félagar þar frá fyrstu
tíð. Hópurinn kallar sig 1313 og hefur
haldið sambandi í meira en 30 ár.
Við félagar hans í fjallaferðum og
björgunarstarfi þökkum honum sam-
starfið með þakklæti fyrir ánægjuna
og lífsgleðina sem fylgdi honum í
okkar ferðum. Okkar dýpsta samúð er
hjá afkomendum þeirra Höllu.
Karl G. Sævar, kæra þökk fyrir sam-
fylgdina.
F.h. Félaga í Björgunarsveitinni
Stakkur og Ferðahópsins 1313.
Garðar Sigurðsson
Karl G. Sævar - minning
Kveðja frá Stakksfélögum og ferðahópnum
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja
Skyggnilýsingarfundur
Skyggnilýsingarfundur
Skyggnilýsingarfundur verður
mánudaginn 8. maí í húsi félagsins að
Víkurbraut 13 Kef. Miðlar eru Svana
(frá Kef ) og Þórunn Björg, fundurinn
byrjar kl 20:30. Húsið opnar kl 20:00.
Aðgangseyrir 2500 kr. Allir velkomnir.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÓSKAST
Ég er sjálfstætt starfandi bókari. Mig
langar að vera i faglegum samskiptum
við aðra bókara. Ef þú hefur áhuga
sendu þá nafn á bokhald.sh@gmail.
com
Létt hlutastarf óskast 30-50 % sem
fyrst flest kemur til greina er vön t.d
verslunarstörfum , vinna með öldr-
uðum og liðveslu . Uppl. 898-5752.
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84