Víkurfréttir - 04.05.2017, Page 23
23fimmtudagur 4. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Opnunartími
9:00 til 18:00 virka daga - 12:00 til 16:00 laugardaga. Vaktsími lyfjafræðings er 8211128 ef afgreiða þarf lyf utan opnunartíma.
Hólagötu 15 260 Reykjanesbæ. s: 421-3393 læknasími 421-3394 og fax: 421-3383
með 25% afslætti út maí
Nældu þér í lífrænt Ofurfæði frá Natures Aid.
Ofurfæðið er lífrænt vottað og framleitt eftir ströngustu gæðakröfum.
Natures Aid
Verið hjartanlega velkomin
■ Keilir hefur boðið upp á aðfara-
nám til háskóla frá árinu 2007.
Miklar framfarir hafa orðið á
þessum tíma í kennsluháttum sam-
hliða breyttum þörfum og kröfum
nemenda, og hefur Keilir brugðist
við með því að innleiða nýjungar
í kennsluháttum og fjölbreyttara
fyrirkomulag námsins. Nú geta
nemendur því valið að sækja Há-
skólabrú í staðnámi eða fjarnámi,
bæði með og án vinnu. Allt miðast
þetta við að nemandinn geti tekið
námið á sínum forsendum.
Hingað til hefur fyrirkomulag náms-
ins miðast við að Háskólabrú í stað-
námi hefjist á haustin en í fjarnámi á
vorin. Frá og með haustinu 2017 geta
nemendur hins vegar í fyrsta skipti
valið að sækja Háskólabrú í staðnámi
bæði á Ásbrú og Akureyri, eða í fjar-
námi með og án vinnu. Við þessar
breytingar á fyrirkomulagi námsins
hefur einnig skapast svigrúm til hag-
ræðingar og hefur Keilir því ákveðið
að lækka skólagjöld í Háskólabrú um
40% frá og með skólaárinu 2017 -
2018. Breytingin mun þannig gilda
fyrir alla þá sem stunda nám í Há-
skólabrú frá og með haustönn 2017,
bæði núverandi nemendur og ný-
nema. Eftir breytinguna mun fullt
nám á tveimur önnum í félagsvísinda-
og lagadeild kosta um 270.000 krónur.
Um 1.500 einstaklingar hafa lokið
Háskólabrú á tíu árum
Á þeim tíu árum sem boðið hefur
verið upp á aðfaranám til háskóla í
Keili, hafa á bilinu 150 til 200 nem-
endur útskrifast árlega úr stað- og
fjarnámi Háskólabrúar. Samtals hafa
þannig hart nær 1.500 einstaklingar
lokið náminu og hefur mikill meiri-
hluti þeirra (um 85%) haldið áfram
í háskólanám bæði hérlendis og er-
lendis við góðan orðstír.
Keilir markaði sér sérstöðu í að veita
einstaklingsmiðaða þjónustu og
stuðning við nemendur. Kennslu-
hættir miða við þarfir fullorðinna
nemenda, miklar kröfur eru gerðar
um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru
raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir
í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa
sýnt að nemendur sem koma úr Há-
skólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu
yfir þá sem telja sig vel undirbúna
fyrir háskólanám.
Umsóknarfrestur um nám á haustönn
2017 er til 12. júní næstkomandi. Nán-
ari upplýsingar um námið má nálgast
á www.haskolabru.is.
Keilir miðlar þekkingu
um vendinám
- Taka þátt í Erasmus+ verkefni til tveggja ára
■ Keilir tekur þátt í nýju verkefni
sem gengur út á að miðla reynslu
og þekkingu á vendinámi í Evr-
ópu. Verkefnið er til tveggja ára
og er styrkt af Erasmus+ mennta-
áætlun Evrópusambandsins.
Verkefnið kallast INTEMIS - Inn-
ovative Teaching Method for an
Inclusive School og hófst í ágúst
2016. Það gengur út á að fræða
kennara í starfsmenntaskólum um
nýjungar í kennsluháttum, þar á
meðal vendinámi til að draga úr
brottfalli, auka gæði í kennslu og
innleiða nýjar aðferðir sem taka
mið af upplýsingatækni og tölvum
í skólastarfi.
Skólinn sem sótti um verkefnið
er IIS Leonardo da Vinci starfs-
menntaskólinn á Sikiley á Ítalíu.
Aðrir samstarfsskólar, auk Keilis,
eru í Danmörku, Ítalíu, Spáni og
Grikklandi. Hlutverk Keilis í verk-
efninu verður að stýra tveimur
fimm daga vinnustofum fyrir
kennara á Spáni, Ítalíu og Grikk-
landi um innleiðingu og notkun
vendináms við kennslu.
Nýtt fyrirkomulag og lægri
skólagjöld í Háskólabrú Keilis
Einstakir tónleikar í Hljómahöll
■ Einstakir tónleikar, Hljómlist án
landamæra, fóru fram í Hljómahöll
á sumardaginn fyrsta. Þar komu
fram fatlaðir og ófatlaðir tónlistar-
menn frá Suðurnesjum, Selfossi og
Akranesi.
Fram komu Salka Sól og Embla Sól
Björgvinsdóttir, Salka Sól og Davíð
Már Guðmundsson við undirleik
Rokksveitarinnar, Már Gunnarsson,
Vox Felix undir stjórn Arnórs Vil-
bergssonar og Lára Ingimundardóttir,
Sönghópurinn Gimsteinar, Karitas
Harpa Davíðsdóttir og Kristín Þóra
Albertsdóttir við undirleik Tómasar
Guðmundssonar og Baggabandið
ásamt Evu Dögg Héðinsdóttur, Frey
Karlssyni, Heiðrúnu Hermanns-
dóttur, Jóni Agnarssyni og Stefáni
Trausta Rafnssyni og síðast en ekki
síst danshópur frá Danskompaní.
Kynnar á tónleikunum voru skemmti-
kraftarnir Guðjón Davíð Karlsson,
betur þekktur sem Gói og Hallgrímur
Ólafsson. Meðfylgjandi myndir tók
Hilmar Bragi á skemmtuninni.
Sönghópurinn Gimsteinar.
Lára Ingimundardóttir ásamt Vox Felix.
Kjartan Már bæjarstjóri lék á fiðlu og kenndi dans.
Már Gunnarsson.
Salka Sól og Davíð Már Guðmundsson.