Víkurfréttir - 04.05.2017, Page 24
24 fimmtudagur 4. maí 2017VÍKURFRÉTTIR
Sumarstarfsmaður
óskast
Skeljungur óskar eftir sumarstarfsmanni til
starfa á bensínstöð Orkunnar, Fitjum
Reykjanesbæ.
Um er að ræða þjónustustarf frá maí til september
sem felur í sér þjónustu við viðskiptavini Orkunnar.
Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund,
vera stundvís, áreiðanlegur og svo auðvitað orkumikill.
Skeljungur hvetur konur jafnt sem karla til að
sækja um starfið.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Áhugasamir geta sótt um starfið á heimasíðu
Skeljungs á www.skeljungur.is/starf
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.
Nánari upplýsingar veitir
Logi L. Hilmarsson - rekstrarstjóri stöðva
444 3000 / llh@skeljungur.is
Vill að skólinn verði hjartað í hverfinu
Í Dalshverfi búa nú 85 börn sem fara
í 1., 2. og 3. bekk næsta haust í tíma-
bundið skólahúsnæði. Helgi segir að
jafnvel geti farið svo að fjöldinn verði
120 börn. Gangi áætlanir eftir verður
skólahús tilbúið haustið 2018. Nýi
skólinn í Dalshverfi verður bæði leik-
og grunnskóli og verður mikil áhersla
lögð á að kennarar vinni þvert á skóla-
stig og að yngri og eldri nemendur
vinni saman að fjölbreyttum viðfangs-
efnum. Efnt var til samkeppni um
hönnun skólans og var tillaga Arkís
valin sú besta. Áður en arkitektarnir
fengu verkefnið í hendur vann hópur
fólks úr ýmsum áttum góða undirbún-
ingsvinnu. Í hópnum voru foreldrar,
nemendur, starfsfólk skóla og ýmsir
hagsmunaaðilar. „Ferlið kallast „De-
sign Down Process“ og hefur verið
notað við undirbúning á byggingum
skóla í Reykjavík og víðar,“ segir Helgi.
Ferlið byggist á því að hópurinn byrjar
að velta fyrir sér hugmyndum um
skólann í víðu samhengi og þrengir
það svo. „Fyrst velti hópurinn fyrir sér
umhverfi og aðstæðum við skólann og
hver tækifærin væru. Hugmyndin var
að hópurinn gerði sér grein fyrir því
hvernig skólinn ætti að vera.“
Meðal hugmynda sem komu fram hjá
hópnum voru að þar yrði leikskóli,
grunnskóli, frístund, tónlistarskóli og
félagsmiðstöð undir sama þaki. Aldrei
áður hefur verið byggður grunnskóli í
Reykjanesbæ þar sem gert er ráð fyrir
frístundaheimili í teikningum, heldur
hefur þeim alltaf verið bætt við eftir
á. Í kringum skólann verður grænt
svæði og verður lögð mikil áhersla
á útinám og tengsl við náttúruna og
sjóinn. „Eitt af gildum skólans verður
sveigjanleiki, til dæmis að skóladagur-
inn geti byrjað á mismunandi tímum
eftir aldri nemenda. Sömuleiðis er
mikill áhugi á því að skólinn sé í takt
við fjölskyldulíf á 21. öldinni þar sem
fjölskyldur eru eins mismunandi og
þær eru margar,“ segir Helgi.
Skólinn er hannaður með það í huga
að fólk upplifi sig velkomið þegar
það kemur inn í bygginguna. Í miðju
skólans er rými sem kallað er hjartað,
þaðan sem allar leiðir liggja. Helgi
segir hugmyndina að skólinn verði
hverfismiðstöð, ekki aðeins fyrir börn,
heldur líka fyrir foreldra og aðra íbúa.
„Dalshverfið er í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá miðbæ Reykjanesbæjar
og því er mikilvægt að skólinn verði
miðstöð fyrir ýmsa viðburði og jafn-
vel bókasafn. Þannig að hinn almenni
íbúi njóti góðs af byggingunni og
sömuleiðis að hún sé nýtt vel.“
Um 200 grunnskólanemendur
í nýju Hlíðahverfi
Fyrsta skóflustungan að Hlíðahverfi
var tekin á dögunum. Gangi áætlanir
eftir munu rísa um 500 íbúðir þar á
næstu árum. Holtaskóli er sá grunn-
skóli sem er staðsettur næst hverfinu
og að sögn Helga er ekki víst að skól-
inn geti tekið við öllum þeim grunn-
skólanemendum sem munu búa í
hverfinu og því verður hverfið lík-
lega skilgreint sem nýtt skólahverfi þar
sem byggja verður skóla. Samkvæmt
spám Reykjanesbæjar verða um 170
börn á grunnskólaaldri í hverfinu árið
2022. Helgi segir einn möguleikann
sem nefndur hefur verið að flytja
tímabundna húsnæðið úr Dalshverfi
í Innri Njarðvík í Hlíðahverfið haustið
2018, verði fyrsti áfangi skólabygg-
ingar tilbúinn. Ljóst er að í hverfinu
mun einnig þurfa leikskóla og er enn
í skoðun hvernig þau mál verði leyst.
Mikil fjölgun íbúa á Ásbrú
Rúmur áratugur er síðan fyrstu
íbúarnir fluttu inn á Ásbrú eftir að
Bandaríkjaher yfirgaf varnarsvæðið.
Hverfisskólinn þar, Háaleitisskóli, er
þétt setinn enda búa um 2.500 manns á
svæðinu. „Nú er ljóst að fasteignafélög
munu setja nokkur hundruð íbúðir á
leigumarkaðinn á næstu mánuðum og
misserum. Því munu bæði fylgja tæki-
færi og áskoranir fyrir Reykjanesbæ.
Meðal næstu mála á dagskrá eru því
hvernig við viljum byggja upp innviði
í hverfinu til framtíðar.“
dagnyhulda@vf.is
Fjölgun
íbúa kallar
á fleiri skóla
l Þörf fyrir frekari skólauppbyggingu á Ásbrú og í Hlíðahverfi l Hugmyndir um að nýr skóli í Dalshverfi verði hjarta hverfisins
Íbúum í Reykjanesbæ fjölgaði um 7,4 prósent á síðasta ári og gangi spár
eftir mun þeim halda áfram að fjölga næstu árin. Samfara fjölgun íbúa þarf
að byggja upp innviði, svo sem leik- og grunnskóla. Nýlega var tilkynnt að
næsta haust verði skólahúsnæði til bráðabirgða tekið í notkun í Dalshverfi í
Innri Njarðvík þar sem Akurskóli er yfirfullur. Helgi Arnarson, sviðsstjóri
fræðslusviðs hjá Reykjanesbæ, og hans samstarfsfólk, hafa staðið í ströngu
við undirbúninginn. Ekki verður látið staðar numið í Dalshverfi því ljóst er
að þegar Hlíðahverfi, gamla Nikel-svæðið, byggist upp verður örugglega þörf
á grunn- og leikskóla þar. Miðað við nýjustu fregnir af uppbyggingu á Ásbrú
er þegar komin þörf á að stækka Háaleitisskóla og er það verkefni skyndilega
komið í forgang. „Það er óhætt að segja að helstu vaxtarbroddarnir séu í
Innri Njarðvík, Hlíðahverfinu og á Ásbrú,“ segir Helgi og bendir á að víðar
sé verið að byggja í bæjarfélaginu og þétta byggð en að fjöldi íbúða þar kalli
ekki á byggingu nýrra skóla.
Hönnun Arkís á nýjum skóla í Dalshverfi var valin sú besta. Í skólanum verða bæði grunn- og leikskóli.