Víkurfréttir - 04.05.2017, Blaðsíða 25
25fimmtudagur 4. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
Skrifstofur sýslumannsins á Suðurnesjum
í Keflavík og Grindavík
verða lokaðar
föstudaginn 5. maí. nk.
vegna starfsdags.
Þann dag liggur öll starfsemi embættisins niðri, þ. á m. símsvörun.
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Ásdís Ármannsdóttir
Lokað föstu-
daginn 5. maí
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík - Sími 458-2200 - Kt. 610576-0369
www.syslumenn.is - sudurnes@syslumenn.is
„Ég sagði við Sindra áður en hann
skaut að hann væri Garðsari. Hann
hikaði síðan og ég las hann,“ sagði
Eyþór Guðjónsson, markvörður
Víðis í Garði sem var hetja liðsins
þegar Garðmenn lögðu Keflvíkinga í
Borgunarbikarleik liðanna í Reykja-
neshöllinni síðasta laugardag. Ey-
þór varði spyrnu Sindra í bráðabana
en eftir fimm fyrstu spyrnurnar
var staðan 4-4. Garðmenn eru því
komnir í 32 liða úrslit eftir þennan
óvænta sigur. Víðir er í 2. deild en
Keflavík í þeirri fyrstu.
Leikurinn í heild var frekar jafn og
ekki mikið um góð marktækifæri. Í
framlengingu voru þó bæði lið nálægt
því að skora. Eftir jafntefli í framleng-
ingu þurfti að grípa til vítaspyrnu-
keppni. Þar vörðu Sindri Keflavíkur-
markvörður og Eyþór Víðishetja sitt
hvort skotið. Úrslitin réðust svo þegar
Víðismenn skoruðu í fyrsta bráða-
banavítinu en Eyþór varði frá frænda
sínum úr Garðinum, Sindra Guð-
mundssyni. Annar uppalinn Garðsari,
Jóhann B. Guðmundsson, misnotaði
hitt vítið fyrir Keflavík og því er hægt
að segja að Garðmenn í Keflavíkur-
liðinu hafi hjálpað Garðmönnum að
komast áfram í Borgunarbikarnum.
Leikurinn átti að fara fram á Nettó-
vellinum í Keflavík en vegna snjó-
komu á föstudag og ástands vallarins
á laugardagsmorgunn þurfti að færa
leikinn inn í Reykjaneshöll. Um 200
til 300 áhorfendur mættu þangað og
fylgdust með leiknum sem var frekar
bragðdaufur, þangað til í vítaspyrnu-
keppninni.
Kristmundur Gíslason, landsliðs-
maður í taekwondo, skrifaði undir
afrekssamning við taekwondodeild
Keflavíkur í síðustu viku. Krist-
mundur hefur verið einn allra sterk-
asti taekwondo keppandi landsins síð-
ustu ár og stefnir hraðbyr á Ólympíu-
leikana árið 2020. Þetta er, svo vitað sé,
fyrsti samningur sinnar tegundar sem
íslenskur taekwondo keppandi hefur
gert við félag og segir í tilkynningu
frá deildinni að það sé mikill heiður
að eiga svo metnaðarfullan keppanda.
Kristmundur hefur einnig þjálfað hjá
félaginu um áraraðir og náð góðum
árangri á Íslandi og erlendis.
Ekki er langt síðan Keflvíkingur-
inn Katla Ketilsdóttir setti tvö Ís-
landsmet í ólympískum lyftingum
á Heimsmeistaramóti unglinga
í Bangkok í Thailandi, en Katla er
einungis 16 ára gömul.
Þegar blaðamaður Víkurfrétta náði
tali af Kötlu var hún á leið um Reykja-
nesbraut, en samhliða íþróttunum
stundar hún nám við Fjölbrautaskóla
Garðabæjar þar sem hún lærir leik-
list. „Þetta gekk bara nokkuð vel. Ég
reyndi líka við Norðurlandamet, en
það fór ekki upp. Það met er eldgam-
alt, en ég reyni við það aftur á næsta
móti sem verður í Kosovo.“
Fyrir mótið voru stífar æfingar hjá
Kötlu og mataræðið tekið í gegn. Katla
æfir CrossFit hjá CrossFit Suðurnes
en hún æfði einnig fimleika í mörg
ár og segir það hjálpa henni helling.
„Það er örugglega besti grunnur sem
þú gætir haft í CrossFit. Markmið
mitt í því er að komast á Heimsleikana
og í ólympísku lyftingunum er það
vonandi bara Ólympíuleikarnir einn
daginn.“
Ungt júdófólk úr
Njarðvík stóð sig vel
Njarðvíkingum gekk vel á Íslands-
meistaramóti fullorðinna í júdó
sem fram fór um helgina. Mótið var
firnasterkt og mætti allt besta júdó-
fólk landsins til leiks.
Meðalaldur liðs Njarðvíkur á mótinu
var 18 ár og vann það til fimm verð-
launa. Heiðrún Fjóla varð önnur í
-78kg flokki kvenna, Ægir Már Bald-
vinsson varð annar í -60kg flokki
karla, Bjarni Darri Sigfússon varð
þriðji í -73kg flokki karla og Gunnar
Gustav Logason varð annar í +100kg
flokki karla.
Í opnum flokki kvenna er keppt óháð
þyngd og má segja að sigurvegarar í
þeim flokkum séu bestu júdómenn
landsins. Heiðrún Fjóla gerði sér lítið
fyrir og varð þriðja í þeim flokki.
Í tilkynningu frá júdódeild Njarðvík-
ur segir að árangurinn sé sögulegur
því að aldrei hafi jafn margir júdóm-
enn úr Njarðvík unnið til verðlauna á
Íslandsmeistaramóti fullorðinna.
Kristmundur
skrifar undir hjá
taekwododeild
Keflavíkur
Setti tvö Íslandsmet og
stefnir á Ólympíuleikana
Katla ásamt Inga Gunnari Ólafssyni,
þjálfara sínum, og Katli Gunnarssyni,
föður sínum.
l Ekkert stöðvar kraftakonuna Kötlu Ketilsdóttur
l Garðmenn slógu Keflavík út í Borgunarbikarnum eftir vítaspyrnukeppni í Reykjaneshöllinni
EYÞÓR HETJA VÍÐIS
Eyþór ver hér spyrnu frænda síns, Sindra og tryggir Víði sigur í leiknum.
Víðismenn fagna markverði sínum en Keflvíkingar ganga súrir á brott. VF-mynd/pket
Reynismenn steinlágu
fyrir Haukum í bikarnum
n Reynismenn töpuðu stórt gegn Haukum í Borgunarbikarkeppni karla
í knattspyrnu um sl. helgi. Sandgerðingar fengu á sig fjögur mörk og eru
dottnir út úr keppninni.
Haukar skoruðu fyrsta markið á 13. mínútu en síðan bættu þeir þremur við á
tuttugu mínútna kafla seint í síðari hálfleik. Haukamenn eru því komnir áfram
en Sandgerðingar eru dottnir út.
MEIRA SPORT Á VF.IS