Víkurfréttir - 04.05.2017, Page 27
27fimmtudagur 4. maí 2017 VÍKURFRÉTTIR
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Við óskum Keflavík til hamingju með
Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna. Landsbankinn er stoltur bakhjarl
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.
Til hamingju
Keflvíkingar!
Það klikkaði bara eiginlega allt. Það fór bara ekkert ofan í,
sama hvað við reyndum. Baráttan datt öll þeirra megin og við
vorum bara ekki nógu góðir til að vinna KR í þessum leik,“
sagði Grindvíkingurinn Ólafur Ólafsson, eftir tapið í Vestur-
bænum gegn KR í hreinum úrslitaleik Domino’s deildarinnar í
körfubolta sl. sunnudagskvöld.
Grindvíkingar sáu aldrei til sólar í fimmta úrslitaleiknum. Þeir
léku sennilega sinn lélegasta leik á árinu og töpuðu stórt fyrir
KR-ingum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur 95-56 eftir að
staðan í hálfleik var 49-18.
Leiknum var í raun lokið í hálfleik. Grindvíkingum var fyrir-
munað að skora og að ná ekki nema 18 stigum í fyrri hálfleik
er með ólíkindum. Sem dæmi um hvað Grindvíkingum gekk
illa að finna leiðina ofan í körfuna þá skoraði Lewis Clinch Jr.,
einn besti útlendingurinn í deildinni í vetur, ekki körfu fyrr en
í lokaleikhlutanum og aðeins 6 stig í heildina.
Myndina hér að ofan tók Sólborg Guðbrandsdóttir, ljósmynd-
ari Víkurfrétta, á leiknum þegar KR-ingar fögnuðu sigrinum.
„Það fór bara ekkert ofan í“
l GRINDVÍKINGAR SÁU ALDREI TIL SÓLAR Í ÚRSLITALEIKNUM GEGN KR