Víkurfréttir - 04.05.2017, Side 28
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Ég er Rollsinn
í fréttum á
Suðurnesjum!
Skoðaðu fjölda tilboða á
heilsuvörum í bæklingi Lyfju
eða í vefversluninni á lyfja.is
Heilsutjútt
3.–14. maí
Góð heilsa er gulli betri -
vertu hress fyrir sumarið!
Við stefnum að vellíðan allan ársins hring.
10–30%AFSLÁTTUR
af völdum heilsuvörum
www.lyfja.is
Skemmtilega leiðinlegt
Ég er rosalegur aðdáandi leiðinlegs
fólks. Því leiðinlegra sem fólk er, sam-
kvæmt hinum almenna mælikvarða
leiðinda, því skemmtilegra þykir mér
það í raun. Ég kýs að kalla þetta fólk
„skemmtilega leiðinlegt“, þ.e. það
er svo djöfulli leiðinlegt að það fer í
raun hringinn og verður skemmtilegt.
Margir af mínum bestu vinum eru
einmitt ævintýralega leiðinlegir.
Því miður er leiðinlegt fólk á undan-
haldi og það sama má í raun segja um
fólk með alls kyns sérstöðu, sérstöðu
sem í fyrstu kann að teljast galli í fari
viðkomandi en þegar betur er að gáð
er þessi sérstaða það sem gerir við-
komandi að því sem hann er. Hér er
ég að tala um einkenni eins og nísku,
feimni, þvermóðsku, frekju og tuð
sem eru karakterseinkenni sem þóttu
algeng fyrir nokkrum árum en virðast
vera að deyja út ásamt leiðindum og
fleiri „skemmtilega leiðinlegum“ ein-
kennum.
Ég held að þetta sé hluti af alheimskr-
ísu, vandamáli sem er fólgið í því að
fólk virðist einhvern veginn vera að
steypast í sama mótið. Karaktersein-
kenni eru að hverfa og við erum öll
að verða straumlínulöguð og eins.
En eins og einhver óvenju jákvæður
maður sagði fyrir einhverjum árum í
Eitthvaðistan eru vandamálin til þess
að tækla þau. Með samstilltu átaki
skulum við tækla þetta vandamál í
sameiningu. En hvernig?
Jú, hættum að vera straumlínulöguð –
förum að vera leiðinleg!
LOKAORÐ
Sævars Sævarssonar
■ Rolls Royce og Icelanda ir fögnuðu í vikunni sex tíu
ára sam starfi með stuttri at höfn í flug skýli Icelandair á
Kefla vík ur flug velli. Við athöfnina afhenti Bruce Blythe,
aðstoðarfor stjóri Rolls-Royce, Birki Hólm Guðna syni,
fram kvæmda stjóra Icelanda ir, minja grip gerðan úr vél-
ar hlut um í til efni tíma mót anna. Farþegar Icelanda ir
milli Bret lands og Íslands munu í vikunni fá glaðning frá
Rolls-Royce.
Icelanda ir hefur sér stöðu meðal viðskipta vina Rolls-Royce
vegna langr ar sam starfs sögu, en einnig vegna viðhalds-
ár ang urs og nýt ing ar meta sem fé lagið hef ur sett í notk un
RB211 hreyf ils ins, meðal annars heims met sem náðist árið
2000 þegar hreyf ill hafði verið á sama vængn um sam fellt í
40.531 flug stund ir en það jafngildir 37 ferðum til tungls ins
og til baka.
Sex tíu ára sam starfs saga fyr ir tækj anna bygg ir á eft ir far andi
flug véla- og hreyfla teg und um, en fyrsta flug vél in af Vic-
kers Viscount gerð kom til lands ins 2. maí 1957: Vickers
Viscount 1957-1967 – Dart hreyfl ar, Can ada ir CL-44 1964-
1973 – Tyne hreyfl ar, Fokk er F27 1965-1993 – Dart hreyfl ar
og Boeing 757 1990+ - RB211-535E4 hreyfl ar.
Icelanda ir er í dag með 28 Boeing 757 þotur í farþega flug-
flota sín um um þess ar mund ir sem all ar eru með Rolls-
Royce hreyfla.
Rolls Royce og Icelanda ir fagna sex tíu ára sam starfi
Starfsmönnum í flugskýli Icelandair
var boðið upp á rjómatertu í tilefni
tímamótanna.
Bruce Blythe, aðstoðarfor stjóri Rolls-Royce, afhenti
Birki Hólm Guðna syni, fram kvæmda stjóra Icelanda ir,
minja grip gerðan úr vél ar hlut um í til efni tíma mót anna.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagskvöld kl. 20:00