Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 28
Á Barnaspítala Hrings-ins er starfræktur grunnskóli og leik-stofa fyrir börn sem liggja inni á spítal-anum. Grunnskól-
inn er vel búinn námsgögnum og
þar fá börn kennslu eftir því sem
heilsan leyfir. Kennarar fara einnig
stundum á sjúkrastofur barnanna ef
að þau komast ekki í skólastofuna.
„Það er mikilvægt að vera jákvæð-
ur og glaður í þessari vinnu hér því
hér ganga börn í gegnum erfiðleika
og oft alvarleg veikindi,“ segir Guð-
rún og bendir á að það sé nauðsyn-
legt þrátt fyrir veikindi að reyna
að stunda námið eins og hægt er.
Það gefst yfirleitt vel,“ segir Guð-
rún. „Þau gleyma frekar veikindum
þegar þau koma í skólann og eru á
leikstofunni.“
Það sem hún tekur eftir og segir
áhugavert er að börn sem hafa
gengið í gegnum mikla erfiðleika
muni frekar eftir því sem gekk vel
og veitti þeim gleði. „Þar kemur
leikstofan og skólinn svo sterkt inn,“
segir Guðrún.
Guðrún segist finna fyrir þakklæti
bæði frá börnunum og foreldrum
þeirra. „Hér er verið að gera allt sem
hægt er fyrir börnin. Það er mikið
álag fyrir fjölskyldur þegar barn
veikist. Og breytir oft miklu hjá
fólki. Ef um mjög alvarleg veikindi
er að ræða þá fer bara lífið hreinlega
á hvolf,“ segir Guðrún.
„Við höfum að sjálfsögðu alltaf
samband við heimaskóla barnanna.
Sérstaklega ef börnin eru lengi hjá
okkur. Vinnum í samræmi við það
sem kennararnir leggja upp með.
Stundum eru krakkarnir í sambandi
við bekkinn sinn í gegnum Skype
eða Messenger. Við leggjum mikið
upp úr því að mæta barninu þar sem
það er statt af skilningi og kærleika.
Starfið er mjög gefandi og oft kenna
börnin okkur fullorðna fólkinu því
að þau eru alveg ótrúlega vitur mörg
og skynsöm. Sérstaklega þegar þau
eru að ganga í gegnum svona veik-
indi.
Við leggjum áherslu á að vinna
með gildin. Einnig reynum við
að hafa leikinn og gleðina í for-
gangi. Spilum og málum. Vinnum
skemmtileg verkefni. Eins og til
dæmis verkefni um Barnasáttmál-
ann. Þar hafa þau teiknað myndir af
sjálfum sér, hvert barn segir eitthvað
viturlegt sem í því býr um réttindi
barna. Til dæmis, öll börn hafa rétt á
að vera í skóla. Öll börn eiga að eiga
fjölskyldu og fá að fara í bíó.
Eitt barn sagði við mig um daginn
að það væri ekki nógu góður nem-
andi. Ég spurði hvað það meinti
með því, þá sagði það að það væri
ekki nógu gott í stærðfræði. Ég sagði
að ég teldi að það væri góður nem-
andi. Af því það hefði mjög góða
samskiptahæfileika, það væri sam-
viskusamt, kærleiksríkt og gott. Það
væri að vera góður nemandi. Ekki
endilega að fá tíu í stærðfræði.“
Guðrúnu vill leggja áherslu á að
börnin hafi góða sjálfsmynd. „Ég
vil leggja áherslu á sjálfsmyndina,
sjálfsvirðinguna, sköpunina og
samvinnu. Og að leggja áherslu á
styrkleikana og að vinna með hæfi-
leika barnanna. Öll börn eru stútfull
af hæfileikum og það er mikilvægt
að rækta þá. Það er þetta viðhorf
að horfa á styrkleikana sína og góð
gildi,“ segir Guðrún.
Guðrún notar stundum brúður í
starfi sínu með afar góðum árangri.
Brúðan Emma hefur komið sterk
inn hjá yngstu nemendunum.
„Börnin tala öðruvísi við brúðurnar
heldur en okkur kennarana. Þau tala
yfirleitt aldrei um sjúkdóma sína
við okkur kennarana. En við brúð-
urnar geta þau sagt allt. Brúðurnar
hafa gengið í gegnum ýmislegt,
til dæmis hún Emma sem er með
sykur sýki. Einn nemandi hjá okkur
tók til dæmis að sér að kenna Emmu
mannasiði. Það er alveg merkilegt
að sjá hvernig tengingin verður
sterk á milli barnsins og brúðunnar.
Það var barn sem sagði einu sinni
við mig; þetta er bara brúða! Þá
svaraði ég, já. En þegar ég fer inn í
brúðuna með hendurnar þá verður
þetta lifandi brúða. Stundum segir
brúðan: Ég er bara brúða, þú getur
sagt mér allt.“
Brúðumeðferðir eru mjög vel
þekktar á sjúkrahúsum, til dæmis í
Bandaríkjunum og Bretlandi og
reynast til dæmis mjög vel þar
sem börn hafa glímt við tilfinn-
ingalega erfiðleika og orðið fyrir
áföllum. Hér í skólastofunni nota ég
brúðurnar meira í gegnum leikinn.“
Guðrúnu veitist þetta létt, hún
er leikkona og kannski muna ein-
hverjir eftir henni frá níunda ára-
tugnum þegar hún sá um barnatíma
Stöðvar 2.
Ég er brúða,
þú getur
sagt mér allt!
Guðrún notar stundum brúður í starfi sínu. Þetta er brúðan Emma sem hefur komið sterk inn hjá yngstu nemendunum.
Fréttablaðið/EyÞór
Guðrún með Emmu og einum nemanda sínum. Fréttablaðið/EyÞór
Venjulegt fólk
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Ég vil
leggja
áherslu
á sjálfs-
myndina,
sjálfsvirð-
inguna,
sköpunina
og sam-
vinnu.
frettabladid.is Horfa má á við-
talið í nýjum vefþætti, sem kallast
Venjulegt fólk, á vefnum.
Starf grunnskóla-
kennara Barna-
spítala Hringsins er
metnaðarfullt og
þar er lögð áhersla
á að mæta barninu
þar sem það er statt.
Guðrún Þórðardóttir
grunnskólakennari
er annar viðmælandi
Fréttablaðsins í vef-
þáttaröðinni Venju-
legt fólk.
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r28 H e L G i n ∙ f r É T T a b L a ð i ð
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-2
2
4
8
1
F
0
D
-2
1
0
C
1
F
0
D
-1
F
D
0
1
F
0
D
-1
E
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K