Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 40
Þegar vatnselgurinn
gengur berserks-
gang um göturnar er hætt
við að margir verði
blautir í fæturna og þá er
táfýlan ekki langt undan.
Táfýla kemur vegna samspils raka á fótum og baktería og þess vegna er mikilvægt að
halda fótum þurrum. Þegar vatns-
elgurinn gengur berserksgang um
göturnar er hætt við að margir
verði blautir í fæturna. Þegar svo
gefst ekkert endilega alltaf tími til
að þurrka skó og sokka verða til
kjöraðstæður fyrir táfýlu. Sokkana
er einfalt að setja í þvottavél en
ekki eru allir skór til þess fallnir að
snúast í hringi rennblautir í lokuðu
rými. Hér fylgja nokkur handhæg
húsráð til að losna við óþef úr
skóm og fylla þá aftur hunangs-
sætri angan hreinna fóta.
Vefjið skóna inn í plastpoka og
stingið í frystinn yfir nótt. Látið
þiðna í sólskini næsta morguns.
Langlíklegast er að bakteríurnar
sem valda lyktinni leggist í dvala
en spurning hvort þær vakna aftur
þegar hlýnar í kringum þær. Sakar
samt ekki að prófa.
Bleytið tuskur í mýkingarefni og
setjið í skóna eftir notkun og hafið
yfir nótt. Anganin ætti að sitja eftir
þegar tuskurnar eru fjarlægðar.
Afhýðið appelsínu, greip, sítrónu
eða límónu og setjið hýðið í skóna.
Sítrusávaxtahýði er bæði bakteríu-
drepandi og gefur góða angan.
Setjið nokkra dropa af ilmolíu í
skóna. Einn tveir dropar á sólann
ættu að duga til að fæla fýluna
burt.
Púður eða úða sem nota má gegn
fótsveppi er einnig kjörið að setja í
skó til að gera út af við óþef.
Matarsódi er til margs nytsam-
legur og meðal þess er að losna
við vonda lykt. Látið væna skeið í
hvorn skó og látið setjast í sólann
yfir nótt. Hristið skóinn næsta
morgun og notið svo eins og vandi
er til.
Ekki er hægt að tala um matar-
sóda án þess að minnast á edik.
Ediki og vatni blandað til helm-
inga er úðað inn í skóinn og látið
þorna í hálftíma. Ef þú ert að flýta
þér væri ráð að nota hárþurrku til
að þurrka skóinn. Til að gulltryggja
niðurstöður er svo hægt að nota
matarsóda-yfir-nótt trikkið.
Kattasandur er sérhann-
aður til að draga í sig lykt og oft
er ljómandi góð lykt af hreinum
kattasandi. Setjið slatta af hreinum
kattasandi í sokk, bindið fyrir og
leggið í skóinn yfir nótt.
Svífið svo á angandi skýi inn í
næsta dag en forðastu ketti sem
gætu haldið að skórnir þínir væru
til þess gerðir að skilja eftir enn
verri lykt en þá sem þú varst að
reyna að ná úr í byrjun.
Best er þó að reyna að forðast
að verða blaut í fæturna og ganga í
stígvélum þegar slabbið hylur göt-
urnar. Ef hégóminn er skynsem-
inni yfirsterkari má líka vera með
plastpoka um fæturna í skónum.
Stökkvið táfýlunni á brott!
Táfýla er hvimleiður gestur sem þrífst best á blautum fótum. Þegar táfýlan hefur sest að getur
verið þrautin þyngri að ná henni burt en sítrushýði, matarsódi og kattasandur geta gert kraftaverk.
Táfýlu hefur verið lýst sem samblandi af lykt af gömlum osti, ammoníaki eða einhverju þaðan af verra.
Góður kjúklingaréttur sem frábært er að bera fram þegar kalt er í veðri. Þetta er
ítalskur réttur sem auðvelt er að
gera. Uppskriftin miðast við fjóra.
8 kjúklingalæri
1 dl hveiti
4 msk. ólífuolía
2 laukar
6 hvítlauksrif
1 gul og ein rauð paprika
300 g sveppir
1 stór gulrót
2 dl rauðvín
10 kvistir timían
1 tsk. óreganó
Smávegis salt
400 g kirsuberjatómatar
1 dl svartar ólífur, steinlausar
Fersk steinselja
Veltið kjúklingalærunum upp úr
hveiti. Skerið lauk, papriku, sveppi,
gulrót og hvítlauk smátt.
Steikið lauk, hvítlauk og kjúkl-
ingalærin saman. Kjúklingurinn á
að vera gullinbrúnn. Bætið papriku
og gulrót út í pottinn. Steikið
stutta stund en bætið þá rauðvíni
saman við, sveppunum, timían
og óreganó. Látið malla í nokkrar
mínútur. Blandið þá tómötum
og ólífum út í. Allt látið malla í 30
mínútur undir loki. Hrærið af og til
í blöndunni. Stráið steinselju yfir
í lokin og berið réttinn fram með
pasta.
Ítalskur kjúklingaréttur
Ítalskur kjúklingaréttur sem upplagt er að prófa um helgina.
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
Fálkagata 18
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
3 TEGUNDIR AF
SÚRDEIGSBRAUÐUM
VELDU GÆÐI!
PREN
TU
N
.IS
................................................
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . F e B R úA R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
0
D
-6
7
6
8
1
F
0
D
-6
6
2
C
1
F
0
D
-6
4
F
0
1
F
0
D
-6
3
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K