Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 96

Fréttablaðið - 24.02.2018, Side 96
Það er hlutverk leikstjórans að taka verkið inn í samtím- ann og láta Það enduróma Þar. Benedict Andrews er ástralskur leikstjóri, búsettur í Reykjavík en starfar í London og víðar um veröldina. Aðspurður um ástæðu þessa heimshornaflakks segir hann svarið auðvitað vera ástina. En þrátt fyrir að hann starfi mest erlendis gefst Íslendingum nú um helgina kostur á að sjá sýningu á Cat on a Hot Tin Roof eftir bandaríska leikskáldið Tennessee Williams í leikstjórn Andrews. Sýningin verður í beinni útsendingu frá Young Vic leikhúsinu í London í Bíói Paradís bæði laugar- dags- og sunnudagskvöld kl. 20. Cat on a Hot Tin Roof (Köttur á heitu blikkþaki) er eitt þekktasta verk Tennessee Williams og Andr- ews segir að óneitanlega feli þetta í sér mikla áskorun. „Minn skilningur felur það í sér að allir í þessu verki eru undir hælnum á persónunni Big Daddy sem minnir einna helst á Lé konung þar sem allt er knúið áfram í gegnum hann. Þetta er eins og risa- vaxin vél í meðförum Williams þar sem tannhjólin eru óstöðvandi og persónurnar fá lítið sem ekkert við ráðið. Fyrir vikið verður þetta eins og línudans fyrir persónurnar og línan er strengd yfir hyldýpi. Williams sér líka til þess að persónurnar skynja þetta hyldýpi og með sama hætti þá verða leikararnir líka tæknilega meðvitaðir um að fallið er hátt. Þeir verða stöðugt að leggja allt í sölurnar tilfinningalega.“ Hlutverk leikstjórans Andrews bætir við að innan hefð- bundinna þriggja þátta verksins sé engu að síður mjög sérstök upp- bygging. Persónurnar streymi fram á sjónar sviðið í fyrsta þætti og áherslan sé á fund Maggie og Bricks. En inn- koma Big Daddy og átökin á milli hans og Bricks í öðrum þætti séu líkast til besti leiktexti nútíma leik- ritunar. Þriðji þátturinn er svo um margt mjög sérstakur uppgjörsþáttur. „Ég nálgaðist þetta óneitanlega aðeins út frá því að ég hef tvisvar leikstýrt A Streetcar Named Desire eftir Willi- ams, einu sinni í Þýskalandi og svo í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Mér finnst að það hafi gefið mér ákveðna tilfinningu fyrir skáldskap hans og hvernig hann nálgaðist leikhúsið sem tæki til þess að rannsaka mann- eskjuna. Mér fannst vera fólgið í þessu ákveðið tækifæri til þess að skoða hvað er líkt með þessum verkum og taka þetta svo þaðan. Hvað leikarana varðar þá vildi ég skapa þeim rými og svigrúm til þess að takast á við þessar stóru amerísku erkitýpur. Þessar sterku, sjálfmiðuðu og karllægu amerísku persónur sem á sama tíma eru svo brothættar og jafnvel brotnar undir sinni hörðu skel. Þarna nálgumst við kjarna verksins sem er hvernig fólk sem lifir í lygi er þvingað til þess að horfast í augu við sannleikann. Mitt markmið er að hjálpa frábærum leikurum til þess að finna sannleikann í þessu á sama tíma og ég reyni að setja á svið þessa afhjúpun og láta hana tala inn í okkar samtíð. Taka þetta í sundur og afhjúpa þessa mannlegu eiginleika sem ná langt yfir öll tímaskeið og landsvæði ef út í það er farið. Það er hlutverk leikstjórans að taka verkið inn í samtímann og láta það endur- óma þar.“ Eflir leikhúsið Leikhús er upplifun sem, eins og And- rews segir sjálfur, snýst um að vera á staðnum en hvernig finnst honum það samræmast því að vera með beina útsendingu þaðan? „Leikhúsið er staður sem við förum á til þess að vera á sama stað og leikararnir og allt sem þeim fylgir. Ég elska leikhúsið en ég elska líka kvikmyndalistina en þetta eru tvö gjörólík listform. Þessi nýja leið, að sjónvarpa leik- húsinu, er eitthvað annað og eitt- hvað nýtt. Það er eitthvað alveg sérstakt við þetta og ég svona sann- færðist um þetta þegar ég horfði á útsendingu á minni eigin uppfærslu á A Streetcar Named Desire ásamt fullt af leikhúsfólki og vinum hérna heima. Þetta vakti með mér bæði einhverjar sjálfselskar tilfinningar út frá því að fólk í Sydney og Reykja- vík gæti verið að horfa á uppfærslu eftir mig í London og taka þátt í umræðunni. En hitt sem er mikil- vægt við þessa leið er að hún þykist ekki vera eitthvað annað en hún er. Bein útsending frá viðburði. Þegar Ísland fer og spilar á HM í Rússlandi og gengur vonandi vel þá er hætt við að við komumst ekki öll á völlinn. Sum okkar verða á Arnarhóli eða fyrir framan sjónvarpið. Þessar sýningar í Bíói Paradís eru einmitt þetta. Leið til þess að vera nánast á staðnum og taka þátt í upplifuninni og mér finnst það frábært. Ég held meira að segja að þetta hvetji fólk til þess að fara svo meira í leikhús.“ Andrews leggur áherslu á að hann sé ekkert að leikstýra þessu sérstak- lega. „Ég vann mína vinnu í leikhús- inu og svo kemur allt annað teymi inn til þess að sjá um þessa útsendingu. Við ræddum bara mínar áherslur, ég fékk að sjá prufutöku og gaf mínar nótur og þar með var þetta komið. Þannig að á laugardagskvöld verð ég með mínu fólki í Bíói Paradís á sýningunni og ég er bara farinn að hlakka til.“ Þess má geta að eftir sýn- inguna á laugardagskvöldið verður spurt og svarað með Benedict Andr- ews en Sigríður Jónsdóttir, leiklistar- gagnrýnandi Fréttablaðsins, stýrir umræðunum. Við komumst ekki öll á leikina á HM í Rússlandi Benedict andrews leikstýrði uppfærslu á Cat on a hot tin roof eftir tennessee Williams í Young vic leik- húsinu í london. sýningin verður í beinni útsendingu í Bíói Paradís á laugardags- og sunnudagskvöld. Benedict Andrews segist hafa viljað skapa leikurunum rými til þess að takast á við þessar stóru amerísku erkitýpur Williams. FréttABlAðið/StEFán lisa Palfrey og Michael J. Shannon í hlutverkum sínum í Cat on a Hot tin roof í leikstjórn Benedicts Andrews í Young Vic leikhúsinu. MYnd/JoHAn PErSSon Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Landeldi ehf. Þorlákshöfn, Íbúakynning Boðað er til kynningar vegna fyrirhugaðrar fiskeldisstöðvar Landeldis ehf, í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn, 1. mars, kl 17:30. Íbúar sveitarfélagsins eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér verkefnið, sem snýr að allt að 5.000 tonna eldi á laxfiski, við Laxabraut 1, Þorlákshöfn. Farið verður yfir gerð og framkvæmd verkefnis, skipulag, matsáætlun, áhrif og stefnu, ásamt atvinnuþróun. Auk kynningarerindis er gert ráð fyrir fyrirspurnum og umræðum. Landeldi ehf 2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r52 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð menning 2 4 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :3 5 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 0 C -F A C 8 1 F 0 C -F 9 8 C 1 F 0 C -F 8 5 0 1 F 0 C -F 7 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.