Fréttablaðið - 24.02.2018, Blaðsíða 96
Það er hlutverk
leikstjórans að
taka verkið inn í samtím-
ann og láta Það enduróma
Þar.
Benedict Andrews er ástralskur leikstjóri, búsettur í Reykjavík en starfar í London og víðar um veröldina. Aðspurður um ástæðu
þessa heimshornaflakks segir hann
svarið auðvitað vera ástina. En þrátt
fyrir að hann starfi mest erlendis
gefst Íslendingum nú um helgina
kostur á að sjá sýningu á Cat on a Hot
Tin Roof eftir bandaríska leikskáldið
Tennessee Williams í leikstjórn
Andrews. Sýningin verður í beinni
útsendingu frá Young Vic leikhúsinu
í London í Bíói Paradís bæði laugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 20.
Cat on a Hot Tin Roof (Köttur á
heitu blikkþaki) er eitt þekktasta
verk Tennessee Williams og Andr-
ews segir að óneitanlega feli þetta í
sér mikla áskorun. „Minn skilningur
felur það í sér að allir í þessu verki
eru undir hælnum á persónunni Big
Daddy sem minnir einna helst á Lé
konung þar sem allt er knúið áfram
í gegnum hann. Þetta er eins og risa-
vaxin vél í meðförum Williams þar
sem tannhjólin eru óstöðvandi og
persónurnar fá lítið sem ekkert við
ráðið. Fyrir vikið verður þetta eins og
línudans fyrir persónurnar og línan
er strengd yfir hyldýpi. Williams sér
líka til þess að persónurnar skynja
þetta hyldýpi og með sama hætti
þá verða leikararnir líka tæknilega
meðvitaðir um að fallið er hátt. Þeir
verða stöðugt að leggja allt í sölurnar
tilfinningalega.“
Hlutverk leikstjórans
Andrews bætir við að innan hefð-
bundinna þriggja þátta verksins sé
engu að síður mjög sérstök upp-
bygging. Persónurnar streymi fram á
sjónar sviðið í fyrsta þætti og áherslan
sé á fund Maggie og Bricks. En inn-
koma Big Daddy og átökin á milli
hans og Bricks í öðrum þætti séu
líkast til besti leiktexti nútíma leik-
ritunar. Þriðji þátturinn er svo um
margt mjög sérstakur uppgjörsþáttur.
„Ég nálgaðist þetta óneitanlega aðeins
út frá því að ég hef tvisvar leikstýrt A
Streetcar Named Desire eftir Willi-
ams, einu sinni í Þýskalandi og svo í
Bandaríkjunum fyrir skömmu. Mér
finnst að það hafi gefið mér ákveðna
tilfinningu fyrir skáldskap hans og
hvernig hann nálgaðist leikhúsið
sem tæki til þess að rannsaka mann-
eskjuna. Mér fannst vera fólgið í þessu
ákveðið tækifæri til þess að skoða
hvað er líkt með þessum verkum og
taka þetta svo þaðan.
Hvað leikarana varðar þá vildi ég
skapa þeim rými og svigrúm til þess
að takast á við þessar stóru amerísku
erkitýpur. Þessar sterku, sjálfmiðuðu
og karllægu amerísku persónur sem
á sama tíma eru svo brothættar og
jafnvel brotnar undir sinni hörðu
skel. Þarna nálgumst við kjarna
verksins sem er hvernig fólk sem lifir
í lygi er þvingað til þess að horfast í
augu við sannleikann. Mitt markmið
er að hjálpa frábærum leikurum til
þess að finna sannleikann í þessu á
sama tíma og ég reyni að setja á svið
þessa afhjúpun og láta hana tala inn í
okkar samtíð. Taka þetta í sundur og
afhjúpa þessa mannlegu eiginleika
sem ná langt yfir öll tímaskeið og
landsvæði ef út í það er farið. Það er
hlutverk leikstjórans að taka verkið
inn í samtímann og láta það endur-
óma þar.“
Eflir leikhúsið
Leikhús er upplifun sem, eins og And-
rews segir sjálfur, snýst um að vera á
staðnum en hvernig finnst honum
það samræmast því að vera með
beina útsendingu þaðan? „Leikhúsið
er staður sem við förum á til þess að
vera á sama stað og leikararnir og allt
sem þeim fylgir. Ég elska leikhúsið
en ég elska líka kvikmyndalistina en
þetta eru tvö gjörólík listform.
Þessi nýja leið, að sjónvarpa leik-
húsinu, er eitthvað annað og eitt-
hvað nýtt. Það er eitthvað alveg
sérstakt við þetta og ég svona sann-
færðist um þetta þegar ég horfði á
útsendingu á minni eigin uppfærslu
á A Streetcar Named Desire ásamt
fullt af leikhúsfólki og vinum hérna
heima. Þetta vakti með mér bæði
einhverjar sjálfselskar tilfinningar
út frá því að fólk í Sydney og Reykja-
vík gæti verið að horfa á uppfærslu
eftir mig í London og taka þátt í
umræðunni. En hitt sem er mikil-
vægt við þessa leið er að hún þykist
ekki vera eitthvað annað en hún er.
Bein útsending frá viðburði.
Þegar Ísland fer og spilar á HM í
Rússlandi og gengur vonandi vel þá
er hætt við að við komumst ekki öll á
völlinn. Sum okkar verða á Arnarhóli
eða fyrir framan sjónvarpið. Þessar
sýningar í Bíói Paradís eru einmitt
þetta. Leið til þess að vera nánast á
staðnum og taka þátt í upplifuninni
og mér finnst það frábært. Ég held
meira að segja að þetta hvetji fólk til
þess að fara svo meira í leikhús.“
Andrews leggur áherslu á að hann
sé ekkert að leikstýra þessu sérstak-
lega. „Ég vann mína vinnu í leikhús-
inu og svo kemur allt annað teymi inn
til þess að sjá um þessa útsendingu.
Við ræddum bara mínar áherslur, ég
fékk að sjá prufutöku og gaf mínar
nótur og þar með var þetta komið.
Þannig að á laugardagskvöld verð
ég með mínu fólki í Bíói Paradís á
sýningunni og ég er bara farinn að
hlakka til.“ Þess má geta að eftir sýn-
inguna á laugardagskvöldið verður
spurt og svarað með Benedict Andr-
ews en Sigríður Jónsdóttir, leiklistar-
gagnrýnandi Fréttablaðsins, stýrir
umræðunum.
Við komumst ekki öll á leikina á HM í Rússlandi
Benedict andrews leikstýrði uppfærslu á Cat on a hot tin roof eftir tennessee Williams í Young vic leik-
húsinu í london. sýningin verður í beinni útsendingu í Bíói Paradís á laugardags- og sunnudagskvöld.
Benedict Andrews segist hafa viljað skapa leikurunum rými til þess að takast á við þessar stóru amerísku erkitýpur Williams. FréttABlAðið/StEFán
lisa Palfrey og Michael J. Shannon í hlutverkum sínum í Cat on a Hot tin roof
í leikstjórn Benedicts Andrews í Young Vic leikhúsinu. MYnd/JoHAn PErSSon
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Landeldi ehf. Þorlákshöfn,
Íbúakynning
Boðað er til kynningar vegna fyrirhugaðrar
fiskeldisstöðvar Landeldis ehf, í Versölum,
Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn, 1. mars, kl 17:30.
Íbúar sveitarfélagsins eru sérstaklega hvattir
til að mæta og kynna sér verkefnið, sem snýr
að allt að 5.000 tonna eldi á laxfiski,
við Laxabraut 1, Þorlákshöfn.
Farið verður yfir gerð og framkvæmd verkefnis,
skipulag, matsáætlun, áhrif og stefnu,
ásamt atvinnuþróun.
Auk kynningarerindis er gert ráð fyrir
fyrirspurnum og umræðum.
Landeldi ehf
2 4 . f e b r ú a r 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r52 m e n n i n G ∙ f r É T T a b L a ð i ð
menning
2
4
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:3
5
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
0
C
-F
A
C
8
1
F
0
C
-F
9
8
C
1
F
0
C
-F
8
5
0
1
F
0
C
-F
7
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K