Fréttablaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 11
Einar skautar hins vegar í öllu fram hjá að svara því er fram kemur í skýrslu norsku vísindanefndarinnar þar sem staðfest var að mestu ógnina við villta laxastofn- inn þar í landi megi rekja til laxeldis í sjókvíum og að laxalúsin frá sjókvíaeldinu nái til allra stofna í Noregi, líka þeirra sem eru ekki í nálægð við veiðiár og árósa. Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM NISSAN MICRA NISSAN MICRA VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR. HUGVITSSAMLEG NEYÐARHEMLUN ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ: DÍSIL 3,2 L/100 KM.* BENSÍN 4,4 L/100 KM.* AKGREINAVIÐVÖRUN OG LEIÐRÉTTING E N N E M M / S ÍA / N M 8 6 5 2 6 N is s a n M ic ra 5 x 2 0 a lm e n n f e b *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. B íll á m yn d N is sa n M ic ra T ek na . V er ð 2 .6 9 0 .0 0 0 k r. Einar K. Guðfinnsson, formaður stjórnar Landssambands fisk-eldisstöðva, viðheldur enn þrályndi sínu í grein er hann ritar í Fréttablaðið þann 23. mars sl. og telur mig stritast við að halda uppi andófi gegn uppbyggingu atvinnu- tækifæra og verðmætasköpunar í fiskeldi. Ekki er nú málefnaleg byrj- unin hjá honum Einari, en lengi skal manninn reyna. Rétt er að halda því til haga að ég er í engu afhuga fiskeldi í lokuðum kerfum. „Þrákelkni“ mín snýr ein- vörðungu að eldi í sjókvíum og þá sérstaklega þeirri ótrúlegu stað- reynd að notast sé við kynbættan lax af norskum stofni í eldinu. Það er hins vegar gömul saga og ný að ef einhver gerist svo djarfur að vilja vernda náttúru Íslands fyrir nátt- úruspjöllum fær viðkomandi slíka einkunn frá þeim sem rekur áróðurs- maskínuna. Í þeirri grein er Einar kveðst vera að svara fór ég skilmerki- lega yfir þá miklu fjárhagslegu hags- muni sem eru í húfi í hinum dreifðu byggðum landsins. Eins og við var að búast svaraði Einar því hins vegar í engu enda stendur hann þétt að baki hinum erlendu aflandsfélögum sem ætla að fénýta íslenska náttúru. Einar lætur sannleikann ekki þvælast fyrir sér er hann síterar til áhættumats Hafrannsóknastofn- unar þar sem hann heldur því rang- lega fram að áhætta af erfðablöndun sé bundin við þrjár ár aukinheldur sem hann heldur því fram að sú erfðablöndun sem tilkynnt var af framangreindri stofnun í sex vatns- föllum á Vestfjörðum ágústmánuði í fyrra, sé ekki marktæk þar sem árnar eigi það sammerkt að vera ekki með eiginlega laxastofna! Er það nema von að mér verði orða vant að lesa svona rangfærslur. Einari er vel kunnugt um það að margir þættir í hinu tilvitnaða áhættumati eru mjög umdeildir, m.a. það dreifingarlíkan sem mat þetta byggir á. Í skýrslunni kemur vissulega fram að gert sé ráð fyrir að fjórar ár séu í hvað mestri hættu, þ.e. af þeim ám er féllu undir þau viðmið er skýrslu- höfundar miðuðu við. Í þessu sam- bandi má m.a. vísa til nýlegs viðtals við Leó Alexander Guðmundsson líffræðing þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni að laxeldi ógni villta laxastofninum og vísar sérstak- lega til þess að ýmsar ár sem séu á eldissvæðum séu ekki inni í áhættu- matinu. Þá vísar Leó einnig til þess að erfðasamsetning stofna á Vest- fjörðum gefi til kynna að þeir myndi sérstakan erfðahóp, m.a. þær ár sem Einar kveður ekki vera með eigin- lega laxastofna. Sjókvíaeldi er vissulega stundað í nálægð við veiðiár og árósa í Nor- egi, sem skýrir m.a. hið skelfilega ástand laxastofna í Noregi þar sem erfðamengun hefur verið greind í tveimur þriðja hluta laxastofnana. Einar skautar hins vegar í öllu fram hjá að svara því er fram kemur í skýrslu norsku vísindanefndarinnar þar sem staðfest var að mestu ógn- ina við villta laxastofninn þar í landi megi rekja til laxeldis í sjókvíum og að laxalúsin frá sjókvíaeldinu nái til allra stofna í Noregi, líka þeirra sem eru ekki í nálægð við veiðiár og árósa. Norskar rannsóknir hafa líka sýnt að strokulaxar hafa ferðast í allt að 2.000 km áður en þeir hafa gengið upp í ár. Hér má t.a.m. taka ána Tista í Noregi sem dæmi en hún er í um 500 km fjarlægð frá næstu eldisstöð en er samt sem áður upp- full af eldislaxi. Þessar staðreyndir byggja á vísindum og þekkingu. Þá vísar Einar til þess að á sama tíma og laxeldi hafi margfaldast í Noregi séu villilaxastofnarnir þeir sterkustu í Norður-Atlantshafi. Það mætti hafa gaman af þessari nálgun Einars að staðreyndum ef málefnið væri ekki svona alvarlegt. Staðreyndin er einfaldlega sú að umræddur erfðamengaður villilaxa- stofn hefur ávallt verið sá sterkasti á umræddu svæði en hefur engu að síður minnkað um rúmlega helm- ing. Til að setja þetta í rökfræðilegt samhengi að hætti áróðursmeistar- ans mætti líkja þessu við það að gefið hefði verið út sérstakt leyfi á Íslandi í lok maí 1844 til veiða á geirfugli þar sem sá stofn væri sá sterkasti í Norður-Atlantshafi, en eins og sagan segir okkur voru þeir tveir síðustu veiddir í Eldey í júní 1844. Að lokum varðandi tilvísun Ein- ars til niðurstaðna Kevins Glover, prófessors í Bergen. Glover hefur sjálfur staðfest að umrætt líkan eigi ekki við Ísland þar sem eldi á norskum ræktuðum laxi feli í sér aukaáhættu vegna viðbótar erfða- fræðilegra þátta sem ekki er tekið tillit til í líkaninu. Glover hefur einnig í ræðu og riti lýst þeirri skoðun sinni að full ástæða sé til að óttast erfðablöndun villtra laxa og eldislaxa hér á landi og að viðbúið yrði að sambærileg þróun mundi eiga sér stað á Íslandi og í Noregi með auknu laxeldi. Þar með eru öll „rök“ Einars K. Guðfinnssonar, sem hann skrýddi sig með, fallin. Það þarf ekkert lítið barn til að hrópa „En áróðursmeistarinn er allsber“ til að opna augu almennings hér um. Nýju rökin áróðursmeistarans Jón Þór Ólason formaður Stangaveiði- félags Reykjavík- ur og lögmaður S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 9 . A p R í L 2 0 1 8 0 9 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 1 -3 F F 4 1 F 6 1 -3 E B 8 1 F 6 1 -3 D 7 C 1 F 6 1 -3 C 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.