Fréttablaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 09.04.2018, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Láru G. Sigurðardóttur BAkþAnkAR Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Stendur undir nafni Ég ætla alltaf að fá skólamat,“ sagði tíu ára sonur minn eftir fyrsta daginn í nýjum grunn- skóla. „Það er flatbaka á föstudögum og á öðrum dögum eru pylsur og hamborgarar.“ Víða í okkar vestræna heimi er að finna fæði sem inniheldur leynigest sem er orsök háþrýstings sem veldur flestum ótímabærum dauðsföllum á heimsvísu eða 7,5 milljónum ár hvert. Háþrýstingur mælist hjá um 40% fólks yfir 25 ára. Oftast verðum við ekki vör við leynigestinn því bragðlaukarnir aðlagast honum hratt. Hann leynist í heimilismat eins og brauði, ostum, beikoni, skinku og flestum tilbúnum réttum og skyndibitum. Hann er vin- sæll því hann eykur geymsluþol mat- væla og losar dópamín í heilanum. Þessi leynigestur er salt. Flestir innbyrða tvöfalt meira af salti en telst innan heilbrigðra marka sem er minna en teskeið á dag (5 g, viðmið er minna fyrir börn). Mikil saltneysla eykur hættu á háþrýstingi því saltið dregur að sér vatn og eykur rúmmál æðakerfisins. Hægt og hljóðlega getur ómeðhöndlaður háþrýstingur valdið skemmdum víða í líkamanum sem geta leitt til dauða. Að minnka saltneyslu er ein hag- kvæmasta aðgerð sem ríki geta ráðist í til að bæta heilsu þjóðar. Alþjóða- heilbrigðismálastofnunin (WHO) bendir á að stjórnvöld geti beint neyslu í átt að hollara fæði og fylgjast skuli með þróun saltneyslu í skólum. Sjálf getum við gert hluti eins og að salta matinn okkar minna, hafa ekki saltstauka á borðum og velja mat- vöru með minna saltinnihaldi. Strákurinn minn fær ennþá skólamat og við borðum saltbættan mat meðvituð um að leynigesturinn hefur hreiðrað um sig í flestum mat sem kemur ekki beint úr smiðju náttúrunnar. Við verðum að snúa þessari þróun við. Leynigesturinn 0 9 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 6 1 -3 B 0 4 1 F 6 1 -3 9 C 8 1 F 6 1 -3 8 8 C 1 F 6 1 -3 7 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 8 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.