Fréttablaðið - 09.04.2018, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Láru G.
Sigurðardóttur
BAkþAnkAR
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Stendur undir nafni
Ég ætla alltaf að fá skólamat,“ sagði tíu ára sonur minn eftir fyrsta daginn í nýjum grunn-
skóla. „Það er flatbaka á föstudögum
og á öðrum dögum eru pylsur og
hamborgarar.“
Víða í okkar vestræna heimi er að
finna fæði sem inniheldur leynigest
sem er orsök háþrýstings sem veldur
flestum ótímabærum dauðsföllum
á heimsvísu eða 7,5 milljónum ár
hvert. Háþrýstingur mælist hjá um
40% fólks yfir 25 ára.
Oftast verðum við ekki vör við
leynigestinn því bragðlaukarnir
aðlagast honum hratt. Hann leynist
í heimilismat eins og brauði, ostum,
beikoni, skinku og flestum tilbúnum
réttum og skyndibitum. Hann er vin-
sæll því hann eykur geymsluþol mat-
væla og losar dópamín í heilanum.
Þessi leynigestur er salt. Flestir
innbyrða tvöfalt meira af salti en
telst innan heilbrigðra marka sem er
minna en teskeið á dag (5 g, viðmið
er minna fyrir börn). Mikil saltneysla
eykur hættu á háþrýstingi því saltið
dregur að sér vatn og eykur rúmmál
æðakerfisins. Hægt og hljóðlega
getur ómeðhöndlaður háþrýstingur
valdið skemmdum víða í líkamanum
sem geta leitt til dauða.
Að minnka saltneyslu er ein hag-
kvæmasta aðgerð sem ríki geta ráðist
í til að bæta heilsu þjóðar. Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin (WHO)
bendir á að stjórnvöld geti beint
neyslu í átt að hollara fæði og fylgjast
skuli með þróun saltneyslu í skólum.
Sjálf getum við gert hluti eins og að
salta matinn okkar minna, hafa ekki
saltstauka á borðum og velja mat-
vöru með minna saltinnihaldi.
Strákurinn minn fær ennþá
skólamat og við borðum saltbættan
mat meðvituð um að leynigesturinn
hefur hreiðrað um sig í flestum mat
sem kemur ekki beint úr smiðju
náttúrunnar. Við verðum að snúa
þessari þróun við.
Leynigesturinn
0
9
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
6
1
-3
B
0
4
1
F
6
1
-3
9
C
8
1
F
6
1
-3
8
8
C
1
F
6
1
-3
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K